Fréttablaðið - 21.02.2012, Qupperneq 26
KYNNING − AUGLÝSINGKassakerfi & sjóðsvélar ÞRIÐJUDAGUR 21. FEBRÚAR 20126
GÓÐAR OG GILDAR REGLUR UM
KORTANOTKUN
Hafa þarf í huga ýmsar reglur við notkun á greiðslukortum bæði í
verslunum og á netinu.
■ PIN-númer kreditkorta á aldrei að gefa upp á netinu, í tölvupósti eða
í síma og aldrei nema annaðhvort segulrönd eða örgjörvi sé lesið á
afgreiðslustað.
■ Ef verslað er á netinu þarf að ganga úr skugga um að vefverslunin sé á
öruggu svæði. Þetta má sjá á því að vefslóðin hefst ekki á http:// heldur
https:// Auk þess sýnir vafrinn yfirleitt tákn (t.d. læstan smekklás) sem
gefur til kynna öruggt svæði. Einnig má skoða vefsíðuna með það í huga
hvort hún virðist áreiðanleg, fagmannleg, vel framsett og án stafsetn-
ingarvillna. Þá má athuga hvort réttindi viðskiptavina sé einhvers staðar
að finna á vefsíðunni, skilareglur og því um líkt.
■ Láttu kortið aldrei af hendi. Vertu alltaf viðstödd/-staddur þegar kortið
er lesið eða rennt í gegnum posa/afgreiðslukerfi.
■ Fylgstu með færslum á kortið upp á gamla mátann eða í heima-
bankanum frá degi til dags. Best er því að halda utan um allar kvittanir
eftir kaup á vörum og bera þær síðan saman við kortayfirlitið þegar það
berst.
■ Aldrei senda kortanúmer í tölvupósti. Tölvupóstur er ekki öruggur
nema til sérstakra ráðstafana sé gripið og hann dulkóðaður.
Uppruna búðarkassanna má rekja til ótta atvinnu-rekenda við að starfsfólkið
stæli frá þeim. Það var bareigand-
inn James Ritty sem hannaði fyrsta
kassann 1879, orðinn langþreyttur
á að barþjónarnir stungu hluta inn-
komunnar í vasann. Hann nefndi
kassann „áreiðanlega gjaldkerann“
og sú saga gekk að hann hefði orðið
fyrstur til að verðleggja allt á 49 eða
99 cent til þess að afgreiðslufólkið
þyrfti örugglega að opna kassann
til að sækja eitt cent í skiptimynt.
Fyrstu kassarnir voru algjörlega
handvirkir og ekki var um það að
ræða að viðskiptavinurinn fengi
k v it t u n ú r
þeim. Við þá
var tengd
bjalla sem klingdi þegar kassinn
var opnaður þannig að yfirmaður
verslunarinnar heyrði nú örugg-
lega í hvert sinn sem sala fór fram
og hefði þannig enn betri yfirsýn
yfir sölu dagsins. Allt í þeim til-
gangi að hamla þjófnaði afgreiðslu-
fólks.
Fyrstu kassarnir með pappírs-
rúllu þar sem upphæðir voru
skráðar komu á markað strax í lok
nítjándu aldar og enn sem fyrr var
hugsunin sú að engin sala færi
fram hjá eigandanum eða versl-
unarstjóranum. Kvittunin var því
í upphafi alls ekki hugsuð til hags-
bóta fyrir viðskiptavininn. Öll
þróun búðarkassans gekk út á það
að eigendur sölufyrirtækja yrðu
ekki af fé.
Árið 1906 hannaði Charles F.
Kettering kassa sem gekk fyrir raf-
magnsmótor og síðan þá hefur þró-
unin í búðarkössum aðallega geng-
ið út á það að halda í við tækni-
framfarir og tölvuvæðingu.
Áttu að koma í veg fyrir
þjófnað afgreiðslufólks
James Ritty hafði alls ekki hagsmuni viðskiptavinanna í huga þegar hann hannaði fyrsta búðarkassa sögunnar. Hann
vildi bara tryggja það að barþjónarnir á barnum hans styngju ekki peningum í vasann.
Fyrstu kassarnir voru handvirkir og sveifin tengd við sölutakkann svo ekki væri hægt að
opna þá án þess að sala hefði farið fram.
Búðarkassar fortíðarinnar voru glæsileg
hönnun með skreytingum og flúri.
SJÁLFSAFGREIÐSLA
FÆRIST Í VÖXT
Það færist í vöxt vestanhafs að
stórmarkaðir og fleiri verslanir
bjóði upp á sjálfsafgreiðslu. Við-
skiptavinurinn skannar þá sjálfur
inn strikamerkin á vörunum
og setur þær í þar til gerðan
poka. Pokinn er svo vigtaður
og ef þyngdin stemmir ekki við
upplýsingar búðarkassans um
viðkomandi vörur, er afgreiðslu
hætt. Einn starfsmaður fylgist
með nokkrum slíkum kössum
á tölvuskjá og skerst í leikinn ef
kassinn gefur þær upplýsingar
að eitthvað sé ekki eins og það
á að vera. Ef kassinn gerir engar
athugasemdir borgar viðskipta-
vinurinn með korti eða seðlum,
pakkar sínum vörum og þarf ekki
að hafa samskipti við nokkurn
starfsmann verslunarinnar.
Reikningar.is er mjög stór og öflug heildarlausn fyrir lítil og millistór fyrirtæki
í f lestum greinum,“ segir Ingvar
Guðmundsson, hjá Notando á Ís-
landi, en fyrirtækið býður upp á
netbókhaldskerfi sem inniheldur
sölu-, birgða-, launa og vefverslun-
arkerfi. Kerfið hefur verið í notkun
í fjögur ár við góðan orðstír og er
með mörg hundruð virka notend-
ur. „Notendur eru almennt sam-
mála um að það sé afar auðvelt í
notkun,“ segir Ingvar og bætir við:
„Þetta virkar í raun eins og net-
bankinn þinn og því er hægt að
nota kerfið í öllum gerðum tölva.“
Hægt er að kaupa kerfið sem heild-
arlausn eða í minni útgáfum. Þeir
sem ekki vilja færa bókhald, geta
gert reikningana sína og látið svo
aðra um að færa bókhaldið. Þá
geta verslanir byrjað með sölu-,
launa- og birgðakerfið en virkjað
vefverslunarhlutann síðar.
Margir kostir eru við kerfið en
til dæmis er hægt að hafa marga
notendur með mismunandi að-
gangsstýringu. Þá er hægt er að
komast í lausnina hvar sem er
með snjallsímum þar sem flestir
venjulegir vafrar virka ágætlega.
„Notendur eru heldur ekki bundn-
ir með samningum heldur höfum
við lausnina það góða að fólk vill
vera hjá okkur,“ segir Ingvar.
Fyrir þá sem vilja vefverslun er
þetta frábær heildarlausn. Vörur
sem skráðar eru gegnum inn-
kaupakerfið eru til sölu samstund-
is bæði í verslun og í vefverslun.
Þegar viðskiptavinur pantar vöru
á netinu er hann jafnframt stofn-
aður í bókhaldskerfinu, sölu-
reikningur gerður og búðareig-
andinn þarf bara að afgreiða vör-
una. Birgðir eru alltaf réttar þar
sem sölukerfi og vefverslun vinna
á sama grunni.
Vefverslunin er með staðlaðri
uppsetningu og er uppsett um leið
og notandi skráir sig hjá Reikning-
ar.is. Lítið annað þarf að gera en
að skrá inn vörur og vista eigin
haus. Notendur geta valið um
nokkur útlit. Þeir sem vilja eitt-
hvað annað geta hælega látið vef-
hönnuði breyta útlitinu að vild.
Frekari upplýsingar er að finna
á www.reikningar.is.
Ódýr heildarlausn
Reikningar.is er viðamesta netbókhaldskerfið á landinu. Heildarlausn fyrir lítil fyrirtæki
sem er auðvelt í notkun og fæst á hagstæðu verði.