Fréttablaðið - 21.02.2012, Qupperneq 27
KYNNING − AUGLÝSING Kassakerfi & sjóðsvélar21. FEBRÚAR 2012 ÞRIÐJUDAGUR 7
Vilji maður
fá góða
yfirsýn yfir
reksturinn
þá er LS
Retail málið
– lausn sem
veitir yfirlit
yfir tölur,
viðskiptavini
og fleira.
Ekki hefur mikið farið fyrir ís-lenska hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail þrátt fyrir að forsaga
þess nái meira en tvo áratugi aftur í
tímann eða til ársins 1988. Ástæðuna
má rekja til þess að megnið af viðskipt-
um fyrirtækisins fer fram á erlendum
vettvangi þar sem það er með fjölda
söluaðila.
„Okkar sérstaða felst fyrst og fremst
í því að við erum þróunarfyrirtæki sem
selur ekki beint til viðskiptavina held-
ur í gegnum fjölda samstarfsaðila úti
í heimi. Í dag erum við með yfir 120
samstarfsaðila í 60 löndum sem eru
okkar framlenging. Daglega starfa því
á bilinu þrjú til fjögur þúsund manns
um allan heim í tengslum við okkar
starfsemi, hafa lífsviðurværi sitt af
sölu á okkur hugbúnaði og alls kyns
þjónustu sem tengist honum,“ upplýs-
ir Magnús Norðdahl forstjóri LS Retail,
og getur þess að kostirnir við þetta
fyrirkomulag séu ýmsir.
„Þetta minnkar auðvitað persónu-
lega áhættu fyrir okkur en eykur á
móti hratt útbreiðslu hugbúnaðarkerfa
okkar á heimsvísu. Við höfum uppi á
söluaðilum í hverju landi og þeir hanna
síðan hentugar lausnir fyrir sitt fyrir-
tæki, markað og land.“
Ekki er þó hlaupið að því að gerast
samstarfsaðili LS Retail að sögn
Magnúsar heldur þarf viðkomandi að
hafa góða þekkingu jafnt á hugbúnað-
arkerfinu, sem sölu og þjónustu. „Bæði
er tímafrekt og kostnaðarsamt að verða
okkar samstarfsaðili. Það er ákveð-
in trygging fyrir því að viðkomandi sé
í stakk búinn til að selja eða þjónusta
markaðinn í sínu heimalandi enda er
það á hans ábyrgð að innleiða hugbún-
aðarkerfið þar og að ekki halli á okkar
merki. Þetta er því ávísun á samstarf
með viðurkenndum aðilum.“
2.000 viðskiptavinir nota LS Retail
Samkvæmt Magnúsi má lýsa hug-
búnaði LS Retail sem alþjóðlegum af-
greiðslukerfishugbúnaði eða verslun-
arhugbúnaði sem má nota hvarvetna
þar sem sala og greiðsla fer fram, og
fæst hann á yfir 30 tungumálum.
„Þetta er íslenskt hugvit sem hefur
verið í þróun síðan 1988 og því má
segja að innan fyrirtækisins sé gríð-
arleg reynsla af þróun og sölu á kassa-
kerfum,“ bendir hann á og bætir við
að hugbúnaðurinn keyri aukinheldur
á forriti frá Microsoft, Microsoft Dyna-
mics NAV, sem hafi ótvírætt ýmsa kosti
í för með sér. „Einn er sá að Microsoft
Dynamics NAV er heildarlausn, gagna-
grunnur sem nota má sameiginlega
fyrir kassakerfi, fjármálakerfi og svo
framvegis, á meðan samkeppnisaðil-
ar okkar nota kannski allt að þrjú kerfi
sem þarf að stilla sérstaklega saman.
Enda þótt okkar hugbúnaður sé ef til
vill eitthvað aðeins dýrari í innkaup-
um þá er fólk að fá heilt hugbúnaðar-
kerfi sem er mun hagkvæmari í notk-
un til lengri tíma litið. Vilji maður fá
góða yfirsýn yfir reksturinn þá er LS
Retail málið – lausn sem veitir yfirlit
yfir tölur, viðskiptavini og fleira.“
Þá segir Magnús líka hagkvæmt að
tengjast Microsoft sem sé eitt stærsta
og virtasta fyrirtæki heims á sviði hug-
búnaðar. „Með því að byggja okkar
lausn ofan á kerfi frá Microsoft fáum
við gríðarlegan stuðning frá risanum
á heimsvísu. Microsoft prófar og sam-
þykkir allan okkar búnað og þótt mikil
Hugbúnaður sem nýtist með
góðum árangri um allan heim
Íslenska fyrirtækið LS Retail stendur að baki háþróuðum afgreiðsluhugbúnaði sem hefur átt miklum vinsældum að fagna um árabil. Viðskipti
fyrirtækisins fara að mestu leyti fram erlendis þar sem það á nú í farsælu samstarfi við yfir 120 aðila í 60 löndum um allan heim.
Hjá LS Retail starfa nú um 70 manns með víðtæka háskólamenntun. Mestmegnis eru þetta tölvunarfræðingar en einnig
verkfræðingar, bókmenntafræðingar og svo fleiri sem vinna við að prófa hugbúnaðarkerfi fyrirtækisins.
„Þetta er íslenskt hugvit sem hefur verið í þróun síðan 1988 og því má segja að innan fyrirtækisins sé gríðarleg reynsla af þróun og sölu á kassakerfum,“ segir Magnús Norðdahl,
forstjóri LS Retail, um hugbúnaðarkerfi fyrirtækisins. MYND/ANTON
fjárfesting felist í því er það bæði gæða-
stimpill og þjónusta sem nýtist okkur
og okkar samstarfsaðilum. Þetta teng-
ir okkur við stærsta hugbúnaðarkerfi
heims. Af þeim sökum hefur okkur
tekist að ná í yfir 2.000 viðskiptavina
sem keyra á okkar búnaði í yfir 40.000
verslunum með um 80.000 kössum.
Þú getur rétt ímyndað þér þann fjölda
fólks sem vinnur við okkar hugbúnað
á hverjum degi. Microsoft Dynamics
NAV er langútbreiddasti viðskiptabún-
aðurinn í dag, notaður af hundruðum
þúsunda ef ekki milljónum fyrirtækja
og LS Retail klárlega stærsti aðilinn á
þessu sviði sem keyrir á búnaðinum.“
Mikill vöxtur síðustu ár þrátt fyrir
erfitt umhverfi
Þökk sé öflugu viðskiptalíkani hefur
LS Retail verið í mikilli sókn síðustu
ár, að sögn Magnúsar. Til marks um
það hafi velta fyrirtækisins aukist um
45 prósent árið 2010 miðað við árið á
undan. Núna, það er 2011, hafi veltan
aukist um 35 prósent síðan 2010. „Þetta
er auðvitað frábær árangur. Við erum
í raun að skapa útflutningstekjur á við
heilan togara, þar sem 98 prósent af
okkar tekjum koma erlendis frá,“ segir
Magnús og hlær og bendir á að velt-
an sveiflist því í takt við stöðuna á er-
lendum mörkuðum. „Nú er lítið að gera
í Norður-Evrópu, til dæmis í Bretlandi
sem hefur verið okkar besti markað-
ur. Það kemur hins vegar ekki að sök
þar sem mikil uppsveifla er í Asíu, Suð-
ur-Ameríku og annars staðar og við
fylgjum þeirri bylgju,“ útskýrir hann.
Þrátt fyrir að viðskipti LS Retail
eigi sér að mestu leyti erlendis fer öll
þróunarvinna fram hérlendis í höf-
uðstöðvum LS Retail að Höfðatúni
2. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 70
manns með víðtæka háskólamennt-
un. „Þetta eru langmest tölvunarfræð-
ingar en einnig verkfræðingar og svo
bókmenntafræðingar sem vinna að
útgáfu handbóka með hugbúnaðinum
og fimm manns sem prófa hann,“ upp-
lýsir Magnús og bætir við að ytra starfi
líka tólf viðskiptafulltrúar sem eru í
tengslum við samstarfsaðila LS Retail
um allan heim.
Hann tekur fram að LS Retail sé sí-
fellt á höttunum á eftir vel menntuðu
fólki og til marks um það hafi fyrirtæk-
ið ráðið mikið af nýútskrúfuðu fólki.
„Hins vegar vantar klárlega orðið fólk
sem er menntað í tölvunarfræði hér-
lendis. Erfitt starfsumhverfi gerir að
verkum að margir flýja hreinlega land
og ekki er vinnulöggjöfin til þess fall-
in að laða að hámenntaða starfsmenn
erlendis frá. Ráðamenn þjóðarinn-
ar þurfa klárlega að setja betri stefnu í
þeim málum til að laða fólk í stað þess
að fæla frá.“
Öflugt markaðsstarf
Magnús segir LS Retail jafnframt hafa
notið lítillar sem engrar utanaðkom-
andi aðstoðar við uppbyggingu fyrir-
tækisins. „Hér á landi er lítil sem engin
aðstoð veitt fyrirtækjum sem sérhæfa
sig í hugbúnaði eða annarri tengdri
nýsköpun og eru að markaðssetja sig
erlendis. Við erum auðvitað óralangt
í burtu frá okkar samstarfsaðilum og
viðskiptavinum og höfum því verið
virk í þátttöku á smásöluráðstefnum
erlendis,“ segir hann og bendir máli
sínu til stuðnings á fyrirhugaða þátt-
töku LS Retail á ráðstefnunum EuroCIS
í Düsseldorf í febrúar, Microsoft Con-
vergence í Houston í mars og Direc-
tions EMEA í Róm í apríl. „Svo erum
við sjálf að skipuleggja umfangsmikla
þriggja daga markaðsráðstefnu í Hörpu
í maí þar sem vænta má 200 gesta og
fáum ekki eina krónu í aðstoð. Engu
að síður erum við á blússandi siglingu
og eigum nú óbeinum í viðskiptum við
marga virta aðila, þar á meðal versl-
anakeðjur á borð við adidas og IKEA
sem nota allt frá einum og upp í nokk-
ur þúsund kassa sem keyra á okkar
búnaði.“