Fréttablaðið - 21.02.2012, Page 34
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR22
BAKÞANKAR
Svavar
Hávarðsson
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. líkamshluti, 6. rún, 8. aldur, 9.
meðal, 11. drykkur, 12. tónstigi, 14.
dramb, 16. kvað, 17. sigti, 18. væta,
20. í röð, 21. bylta.
LÓÐRÉTT
1. æðaslag, 3. tímaeining, 4. nennu-
leysi, 5. atvikast, 7. heimilistæki, 10.
flík, 13. umrót, 15. stertur, 16. kóf,
19. þófi.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. háls, 6. úr, 8. rek, 9. lyf,
11. te, 12. skali, 14. stolt, 16. ku, 17.
sía, 18. agi, 20. fg, 21. fall.
LÓÐRÉTT: 1. púls, 3. ár, 4. letilíf, 5.
ske, 7. ryksuga, 10. fat, 13. los, 15.
tagl, 16. kaf, 19. il.
Þú heyrðir
í mér! Axl
Rose er miklu
svalari söngvari
en Gene
Simmons!
Á hverju
ert þú?
Simmons
er reiðasti
maður
heimsins!
Glætan! Rose
er svo reiður
að tenn-
urnar hans
eru orðnar
svartar!
Hvað með
Simmons,
hann er svo
reiður að
tungan hans er
klofin í tvennt!
Rose er svo
reiður að
hann getur
kveikt í
kirkju með
því að blása
á hana!
Simmons er
svo reiður að
enginn skilur
hvað hann
er að syngja!
Rose er svo
reiður að
ekki einu
sinni hann
sjálfur skilur
um hvað
hann syngur!
Simmons er
svo reiður
að það
lekur blóð
þegar hann
hummar!
Mér finnst Bon
Jovi vera ansi
góður!
Pabbi....
ekki!
Palli, af hverju
sýnirðu ekki
einhverjum þessi
málverk?
Vegna þess
að það
passar ekki
við ímynd
mína.
Hvernig er
ímyndin
þín?
Grjótharður
rokkari sem
lifir á brúninni.
Leiðinlegt að segja það,
en það passar ekki heldur
við ímynd þína.
Herra-
manna-
prufur
Mér þykir það leitt
strákar, við erum komin
með nógu marga.
Borð fyrir fimm
með litabókum,
barnastól
og þjóni
sem hefur lifað
af stríð.
Sögusviðið er Stöðvarfjörður haustið 1977. Þorpsbúar berjast við sinueld
þriðja daginn í röð. Í þetta skiptið er tví-
sýnt hvort eldurinn nái að læsa sig í efstu
húsin í þorpinu. Þeim fullorðnu er ekki
skemmt en fyrir þeim yngri er þetta ævin-
týri, enda gera þeir sér ekki grein fyrir
alvöru málsins. Þegar kvöldar tekst að ráða
niðurlögum eldsins og allir ganga til síns
heima. Það sem brennur á vörum allra er
spurningin: Hver er það sem kveikir í?
ÞESSUM dögum gleymi ég aldrei. Ég
var að verða tíu ára og ekkert vissi ég
þá skemmtilegra en að kveikja sinueld
og reyna að slökkva hann aftur. Ástæðan
fyrir því að þetta er minnisstætt er hins
vegar sú að ég var EKKI einn þeirra sem
börðust við eldana. Nei, ég sat þessa
daga í eldhúsinu heima og staglaðist
aftur og aftur í gegnum kvæðið um
finnska bóndasoninn Svein Dúfu,
undir ströngu eftirliti móður minn-
ar. Það var gert undir hótunum
kennara míns um að ef mér tæk-
ist ekki að sanna að ég væri orð-
inn sæmilega læs á afmælisdaginn
minn síðar um haustið, þá myndi ég
þann veturinn lesa Gagn og gaman
og það í hópi yngstu nemenda
skólans. Skömmin sem fylgdi
þeirri tilhugsun var öllu yfir-
sterkari. Ég taldist „læs“ um
miðjan október.
ÞETTA rifjaðist upp fyrir mér á dögunum
þegar birtar voru um það fréttir að sam-
kvæmt alþjóðlegri könnun getur fjórð-
ungur íslenskra stráka á unglingsaldri
ekki lesið sér til gagns. Stelpurnar eru
mun færri, hvað sem útskýrir það. Þetta
er mikið áhyggjuefni og ekki þarf að fara
mörgum orðum um þann vanda sem getur
beðið ungmenna sem dragast aftur úr.
Skólayfirvöld og áhugafólk um læsi liggja
yfir þessum niðurstöðum og leita svara við
aðkallandi spurningum. Hvað er að strák-
unum okkar? Hvað er að skólakerfinu?
Hvað er gert vel og hvað má gera betur?
SÍSÍ sá sól og Óli á lás virðast ekki hafa
heillað mig í upphafi skólagöngu. Ég velti
því fyrir mér hvað hefði frekar vakið
áhuga minn á þessum aldri. Hefðu textarn-
ir sem mér voru boðnir fram til tíu ára ald-
urs fjallað um sinueld þá hefði ég kannski
frekar setið kjurr. Sísí slekkur í sinu, hefði
kannski gert gæfumuninn.
EN Gagn og gaman er auðvitað ekki lengur
grunnlestrarbók íslenskra barna. Skárra
væri það nú. Bókin kom fyrst út árið 1944.
Bókin sem nú er kennd í fyrstu bekkjum
grunnskólanna heitir Lestrarlandið og kom
inn í skólana í fyrrahaust, en þá taldist
bókin Við lesum frá 1975 hafa þjónað æsku
landsins nægilega lengi. Ég velti því hins
vegar fyrir mér hvaða bók tekur við af
Lestrarlandinu árið 2050.
Sísí slekkur í sinu