Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 39
ÞRIÐJUDAGUR 21. febrúar 2012 27
SPRENGIDAGSSALTKJÖT
Fyrsta flokks hráefni er grunnurinn að góðri
máltíð. Goða saltkjöt er sérvalið og framleitt
af sannkölluðum fagmönnum.
Borðaðu vel á sprengidaginn!
Breska leikkonan
Minnie Driver segist
elska að búa í Kali-
forníu. Það fari þó í
taugarnar á henni að
hvert sem hún fari sé
hún minnt á mistök sín
eða það sem hún hefur
misst af.
Hún segir erfitt að
þurfa stöðugt að ganga
fram hjá stórum aug-
lýsingaskiltum með
myndum sem hún fékk
ekki hlutverk í, eða
með fyrrverandi kær-
ustum sínum.
Eitt vandræðaleg-
asta, en jafnframt
fyndnasta atvik sem
hún hefur lent í, segir
hún hafa verið fyrir
ekki svo löngu síðan
þegar hún gekk fram
hjá slíku auglýsinga-
skilti og áttaði sig á
því að hún hefði sæng-
að hjá öllum karlleik-
urunum sem voru þar
saman komnir.
Sængaði hjá heilu
auglýsingaskilti
Söngkonan Rihanna var
stödd í Lundúnum á 24 ára
afmælisdaginn sinn í gær
en aðdáendur söngkonunnar
fjölmenntu fyrir utan hótel
hennar í gærmorgun í von
um að fá að óska stjörnunni
til hamingju með daginn.
Afmæliskveðjum, blómum
og kortum rigndi því yfir
söngkonuna er hún gekk
út af hótelinu en Rihanna
sýndi mikla þolinmæði og
stillti sér upp með aðdá-
endum sínum. Rihanna er í
Lundúnum að taka upp nýtt
efni í stúdíói, eitthvað með
fyrrverandi kærasta sínum,
Chris Brown, og hún ætlar
að vera gestur á tískuvik-
unni sem fer fram í borg-
inni en hún var sérstakur
gestur Stellu McCartney á
sýningu hennar um helgina.
Afmæliskveðjum
rigndi yfir Rihönnu
AFMÆLI Í LONDON Rihanna var
stödd í London á afmælisdaginn.
NORDICPHOTOS/GETTY
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 21. febrúar 2012
➜ Tónleikar
12.15 Sópransöngkonan Þóra Einars-
dóttir og píanóleikarinn Steinunn
Birna Ragnarsdóttir flytja sönglög Henri
Duparc á fyrstu hádegistónleikum
Íslensku óperunnar í Hörpu. Yfirskrift
tónleikanna er Boðið í ferðalag. Þeir fara
fram í sal Norðurljósa.
➜ Umræður
15.00 Málstofa um Stífni nafnlauna og
launaákvarðanir verður haldin í fundar-
sal Seðlabankans í Sölvhóli. Frum-
mælendur eru þau Jósef Sigurðsson og
Rannveig Sigurðardóttir.
➜ Uppákomur
17.00 Borgarbókasafn býður upp á
dagskrá fyrir börn og fjölskyldur þeirra
í aðalsafni sínu í tilefni af Alþjóðlegum
móðurmálsdegi. Frú Vigdís Finnbogadótt-
ir verður heiðursgestur samkomunnar
sem er ætlað að skapa gleði og stolt hjá
börnum sem hafa annað tungumál en
íslensku að móðurmáli. Allir velkomnir.
➜ Tónlist
20.30 Kjeld Lauritsen tríó treður upp
á Jazztónleikaröðinni á KEX Hostel.
Aðgangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
HRESS Driver komst að því
að það borgar sig ekki að
vera lauslát í Hollywood.