Fréttablaðið - 21.02.2012, Blaðsíða 46
21. febrúar 2012 ÞRIÐJUDAGUR34
„Ég hef fengið mjög góðar viðtökur.
Bæði frá gagnrýnendum og aðdá-
endum – þau virðast strax vera búin
að samþykkja mig,“ segir tónlistar-
maðurinn Ragnar Sólberg.
Ragnar gekk nýlega til liðs við
sænsku progg-þungarokkhljóm-
sveitina Pain of Salvation. Hljóm-
sveitin á aðdáendur víða um heim
og er núna á tónleikaferðalagi um
Evrópu. Ragnar er ánægður með
viðtökurnar, en hann bjóst ekki við
að þær yrðu svona góðar.
„Ég bjóst algjörlega við því að
mæta mótspyrnu og var viðbúinn
því að þurfa að hrækja framan í
mótmælendur, en ég er alveg búinn
að sleppa við það hingað til,“ segir
Ragnar, sem var staddur í Suður-
Frakklandi þegar Fréttablaðið náði
í hann. Hann segir að mórallinn í
hljómsveitinni hafi verið góður frá
fyrsta degi tónleikaferðalagsins,
sem hófst í Skotlandi 10. febrúar.
„Það er auðvitað voða mikill einka-
húmor í gangi,“ segir Ragnar. „Sér-
staklega hjá mér og trommaranum,
báðir erum við innflytjendur og
leikum okkur glatt að því að bulla á
sænsku og búa til ný orð og svona.
Tæknimennirnir og rótararnir eru
á svipuðum aldri og ég og fullir af
fjöri, fara seinastir að sofa og vakna
fyrstir með bros á vör. Maður er
náttúrulega löngu búinn að snúa
sólarhringnum við þannig að aðal-
lífið er um nætur, yfirleitt hlustað
á Kiss eða horft á myndir á meðan
rótararnir djamma í sínu horni.“
Ragnar er kominn til Spánar og
kom fram ásamt Pain of Salvation
í Madríd í gær og kemur fram í
Barselóna í kvöld. Tónleikaferða-
lagið endar svo í Stokkhólmi 26.
mars eftir viðkomu í fjórtán löndum
Evrópu á rúmum mánuði.
atlifannar@frettabladid.is
LÖGIN VIÐ VINNUNA
Ég bjóst algjörlega við
því að mæta mót-
spyrnu og var viðbúinn því
að þurfa að hrækja framan í
mótmælendur.
RAGNAR SÓLBERG
TÓNLISTARMAÐUR
„Enski textinn er til en hann er ekki endan-
legur,“ segir Greta Salóme Stefánsdóttir, höf-
undur og annar flytjandi framlags Íslend-
inga til Eurovision-söngvakeppninnar í Bakú
í lok maí.
Ekki hefur verið ákveðið hvort lagið
Mundu eftir mér verði flutt með íslenskum
eða enskum texta í Eurovision ytra. Greta
segir það velta á því hvernig textinn hljómar
og hvort þau verði ánægð með hann. Hún
segir mikilvægt að hugsa hlutina í stóru
samhengi þegar horft er á keppnina úti þar
sem langflestir sem koma til með að kjósa
séu að heyra lögin í fyrsta skipti. „Enskan
höfðar til fleiri og við verðum að taka það
með í reikninginn, Margir útlendingar
virðast samt heillast af þessum álfablæ sem
fylgir íslenska textanum,“ segir Greta. Greta
segist hafa skoðað það að hafa blandaðan
texta með íslensku og ensku og ætlar ekki að
útiloka að það verði gert. „Ég er samt svona
allt eða ekkert manneskja og mér finnst
frekar þurfa að vera góður íslenskur texti
eða góður enskur texti,“ segir hún og tekur
skýrt fram að þó sungið yrði á ensku úti þá
komi íslenska útgáfan til með að lifa áfram.
Sami hópur flytur lagið á sviðinu í Bakú og
flutti það í Hörpu á dögunum og nú styttist í
að Greta og félagar þurfi að skila því af sér
út. „Við höfum þar til um miðjan mars til að
skila af okkur öllu sem tengist laginu,“ segir
Greta og bætir við að undirbúningur standi
nú yfir fyrir upptöku á myndbandi við lagið.
- trs
Enskur texti saminn við Mundu eftir mér
GRETA SALÓME Segir nauðsynlegt að hafa í huga að enskur
texti höfði til fleiri kjósenda.
„Þetta var rosalega skrýtinn
dagur og ég finn fyrir miklum
létti núna þegar vinnutörnin er að
taka enda,“ segir Erna Einarsdótt-
ir fatahönnuður sem sýndi fata-
línu sína á tískuvikunni í London
á föstudaginn.
Erna er útskriftarnemi í fata-
hönnun við Central Saint Martins
en útskriftarsýningar skólans er
alla jafna beðið með mikilli eftir-
væntingu af tískuheiminum enda
hefur skólinn alið af sér helstu
hönnuði heims.
„Mamma mín, tengdamamma
og kærasti voru í áhorfenda-
hópnum og þau sögðu að það hafi
allavega verið um 400-500 áhorf-
endur á sýningunni,“ segir Erna en
hún hefur eytt helginni í að skoða
umsagnir blaðamanna og bloggara
um fatnaðinn sinn.
Erna þarf engu að kvíða því
grátóna ullarpeysur hennar og
kálfa síð pilsin lögðust almennt
vel í tískuspekinga og er Erna
sérstaklega nafngreind í flestum
umsögnum um sýninguna sjálfa.
ID Online segir fatalínu Ernu bera
skandinavískan keim og setur hana
í topp fjóra af 20 nemendum sem
sýndu á sýningunni. Tim Blanks
hjá Style segir að fatalína Ernu
og þriggja annarra nemenda hafi
verið undantekning frá annars
heldur leiðinlegri sýningu. Jessica
Bumbs hjá breska Vogue var hins
vegar hrifin af sýningunni í heild
sinni og skrifar „Svölu gráu prjóna-
peysurnar hennar Ernu Einarsdótt-
ur mega koma og eiga heima í fata-
skápnum mínum núna strax.“
Erna notaði íslenska ull í sýn-
ingu sinni og fékk styrk frá Ístex
til að gera útskriftarlínuna. En
hvað tekur núna við hjá Ernu? „Það
er mánuður eftir af skólanum og
svo veit ég ekki. Ætli maður bíði
ekki aðeins og sjái hvað kemur út
úr þessu á næstu vikum en annars
er ég komin með smá heimþrá eftir
sjö ár erlendis. Það væri gaman að
koma heim og vinna.“ - áp
Vogue og ID hampa Ernu
FÉKK GÓÐ VIÐBRÖGÐ Erna var í spennu-
falli eftir að sýningin var afstaðin og
ánægð með góðar viðtökur blaðamanna
og bloggara.
Lagið Pretty Face með tónlistarkonunni Sóleyju hefur vakið
mikla lukku á myndbandasíðunni Youtube. Hlustað hefur
verið á það yfir 900 þúsund sinnum og fær það mjög
góða dóma hjá hlustendum. Lagið er tekið af fyrstu
sólóplötu Sóleyjar, We Sink, sem kom út í
fyrra á vegum þýska fyrirtækisins Morr
Music við góðar undirtektir. Fleiri lög af
plötunni hafa notið vinsælda á síðunni,
þar á meðal Smashed Birds, sem um 200
þúsund manns hafa hlýtt á.
Teiknimyndin Hetjur Valhallar: Þór heldur áfram
að gera góða hluti í Suður-Kóreu. Hún var fjórða
vinsælasta myndin í landinu aðra vikuna í röð eftir
síðustu helgi og jafnframt vinsælasta erlenda myndin.
Samanlagt hafa meira 410 þúsund manns séð myndina,
sem hlýtur að teljast frábær árangur svo skömmu
eftir frumsýninguna þar í landi. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
RAGNAR SÓLBERG: HLUSTA Á KISS Á MEÐAN RÓTARARNIR DJAMMA
Blíðar móttökur aðdáenda
Pain of Salvation í Evrópu
GERIR ÞAÐ GOTT Ragnar Sólberg ferðast nú um Evrópu ásamt hljómsveitinni Pain of Salvation. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég hlusta mest á Mugison
þessa dagana, nýju plötuna
hans. Mér finnst hann mjög
góður.“
Sóley Dröfn Davíðsdóttir, sálfræðingur.
Hefur þú gert
góðverk í dag?
VIÐ FELLSMÚLA, 108 REYKJAVÍK - SÍMI: 585 2888
50%
afsláttur
AF ÚTILJÓSUM Í
KOPAR OG GYLLTU
OPIÐ ALLA DAGA
Mán. til fös. kl. 9 -18
Laugard. kl. 10 -16
Sunnud. kl. 12-16
5.995
2.997
6.995
3.497
3.995
1.997
4.995
2.497
Hefst í mars á Stöð 2
Golden Globe - Besti dramaþáttur ársins
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT | 512 5100 | STOD2.IS