Fréttablaðið - 03.05.2012, Side 4
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR4
GENGIÐ 02.05.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
226,731
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,29 125,89
202,93 203,91
164,68 165,6
22,136 22,266
21,75 21,878
18,518 18,626
1,5594 1,5686
193,67 194,83
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í umsögn gagnrýnanda um leikritið
Svar við bréfi Helgu í Fréttablaðinu 1.
maí féll út ein stjarna. Sýningin átti að
fá fjórar stjörnur. Beðist er velvirðingar
á þessu.
LEIÐRÉTT
China and the Arctic
Egill Þór Níelsson
ALÞJÓÐAMÁLASTOFNUN
RANNSÓKNARSETUR UM SMÁRÍKI
Kína og Norðurslóðir
OPINN FUNDUR: Föstudaginn 4. maí
frá kl. 12 til 13 í stofu 101 í Odda.
Egill Þór Níelsson heldur erindi um starfsemi
og framtíðarsýn Heimskautastofnunar Kína er
varðar rannsóknir á norðurslóðum. Einnig
fjallar hann um möguleika Íslands og Kína til
samstarfs. Fundurinn fer fram á ensku.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
21°
20°
21°
17°
19°
16°
16°
22°
12°
21°
20°
31°
15°
17°
17°
8°Á MORGUN
Strekkingur með A-
strönd annars hægur
vindur.
LAUGARDAGUR
Strekkingur með A-
strönd annars hægur
vindur.
4
68
-1
-1
6
6
8 8
7
8
6
9
7
5
4
66
5
4
4
5
4
2
4 3
5
4
6
10
3
3
2
BJARTIR DAGAR
eru framundan og
vindur verður hæg-
ur enda hæð yfi r
landinu. Sunnan til
verður þokkalega
milt en svalara
annars staðar og
á Norðausturlandi
má búast við vægu
frosti á laugardag.
Ekki lítur út fyrir
miklar breytingar
á veðri fyrr en eftir
helgi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
KANADA, AP Vélhjól af gerðinni
Harley Davidson rak í hálfopnum
gámi yfir hafið frá Japan til Kan-
ada, þar sem það fannst nýverið.
Hjólið var í geymslu í litlum
flutningagámi í Japan þegar
jarðskjálftinn mikli reið þar yfir
11. mars á síðasta ári. Gámnum
skolaði á haf út með stóru flóð-
bylgjunni sem lagði mikinn hluta
norðausturstrandar Japans í
rúst.
Það var Kanadamaðurinn
Peter Mark sem fann gáminn á
strönd Kanada og tók eftir vél-
hjólinu. Nokkru síðar skolaði
gámnum aftur út á haf en vél-
hjólið varð eftir.
Eigandi hjólsins í Japan,
Ikuo Yokoyama, varð heldur
betur feginn þegar fréttist af
fundinum, en hjólið er reyndar
illa farið og mikið ryðgað. - gb
Vélhjól týndist í flóðbylgju:
Rak frá Japan
til Kanada
Á STRÖNDINNI Í KANADA Eftir að
gámnum skolaði á haf út aftur varð
hjólið eftir og hálfgrófst niður í sandinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EGYPTALAND, AP Átök brutust út
í Kaíró í gær eftir að ráðist var
á hóp mótmælenda fyrir utan
varnarmálaráðuneytið þar í
borg. Þrjár vikur eru til forseta-
kosninga í landinu.
Mótmælendurnir eru mús-
limskir andstæðingar herforingj-
anna, sem farið hafa með völd
síðan að Mubarak forseti hraktist
frá völdum snemma á síðasta ári.
Þeir fullyrða að árásarmenn-
irnir hafi verið sendir út á vegum
herforingjastjórnarinnar eða
stuðningsmanna hennar. - gb
Átök brutust út í Kaíró:
Ráðist á hóp
mótmælenda
ÁRÁSARMÖNNUM SVARAÐ MEÐ GRJÓTI
Spenna fer vaxandi nú þegar styttist í
forsetakosningar. NORDICPHOTOS/AFP
ÖRGGISMÁL Björgunarsveitin
Klakkur á Grundarfirði var kölluð
út á níunda tímanum í gærmorgun
vegna smábáts sem fengið hafði
í skrúfuna. Báturinn var staddur
rétt utan við Grundarfjörð og var
einn maður um borð. Björgunar-
sveitin sótti bátinn og dró hann
til hafnar. Veður var gott og ekki
talin mikil hætta á ferðum.
Búist er við nokkru annríki
hjá björgunarsveitum Lands-
bjargar á næstu dögum vegna
strand veiðanna sem hófust í gær.
Reynslan sýnir að á meðan á þeim
stendur þurfa fjölmargir á aðstoð
að halda. - shá
Klakkur á Grundarfirði:
Drógu strand-
veiðibát í land
KÓPAVOGUR „Ég er að sjálfsögðu
að kalla eftir frekari skýringum
á þeim og met stöðuna þegar þær
liggja fyrir,“ segir Ármann Kr.
Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi,
um vaxtakjör sem Guðrún Páls-
dóttir, fyrrverandi bæjar stjóri
naut vegna lóðakaupa af bænum í
fjármálastjóratíð sinni.
Ármann segist fyrst nú hafa
fengið gögn um vaxtakjörin á sitt
borð og undirstrikar að upplýs-
ingarnar hafi verið teknar saman
að beiðni Guðríðar Arnardóttur,
þáverandi formanns bæjarráðs, í
byrjun ágúst í fyrra.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram
að Guðrún fékk hagstæðari vexti
en tíðkuðust hjá bænum á um
2,6 milljóna króna skuldabréf-
um sem gefin voru út 1996 vegna
lóðakaupa. Einnig að hún borgaði
ekki vexti af um 1,1 milljóna
króna gatnagerðargjöldum sem
hún greiddi upp á árunum 1999
til 2002. Skýrði hún vaxtakjörin
á skuldabréfunum sem „mannleg
mistök“ og vaxtaleysið á gatna-
gerðargjöldunum sem bætur
fyrir tafir vegna deiliskipulags-
breytinga.
Haft var eftir Guðríði Arnar-
dóttur í Fréttablaðinu í gær að
meðal annars þessi mál Guðrúnar
hafi orðið til þess að Samfylkingin
hafi ekki lengur stutt hana til setu
í bæjarstjórastólnum.
„Ég hef engar forsendur til að
draga þessar skýringar í efa að svo
komnu máli,“ segir Guðríður þó nú
um skýringar Guðrúnar. „En enn
sem fyrr er ég þeirrar skoðunar að
málið þurfi að skoða miklu betur
og meðal annars fara rækilega
yfir það í hvaða tilfellum heimildir
til niðurfellinga vaxta voru veittar
og þá af hverjum.“
Upphafspunktur s koðunarinnar á
kjörum Guðrúnar Pálsdóttur í lóða-
viðskiptunum var í læstum skjala-
skápi á bæjarskrifstofunni. Endur-
skoðunarfyrirtækið Deloitte var
ráðið í fyrra til að kanna skjöl úr
skápnum sem er steyptur inn í vegg
í opnu rými á skrifstofu bæjarins.
„Einn lykill er til að skápnum
sem er tvískiptur, annar hlutinn
er geymdur inni á skrifstofu fjár-
málastjóra og hinn í skjalageymslu
bæjarins. Margir starfsmenn vita
af þessari ráðstöfun og hafa þannig
hugsanlega aðgang að skápnum en
enginn ætti að fara í skápinn nema
með vitneskju fjármálastjóra,“
segir í skýrslu Deloitte.
Endurskoðunarfyrirtækið rann-
sakaði ávísanir, tryggingavíxla
og skuldabréf úr skjala skápnum.
Komu meðal annars í ljós um
og yfir tíu ára gamlar ávísanir
sem bærinn hafði aldrei inn-
leyst. Ólag virtist á ýmsum verð-
bréfum. „Skuldabréfið virðist hafa
dagað uppi í skjalaskápnum án
frekari innheimtuaðgerða,“ segir
sem dæmi um 911 þúsund króna
skuldabréf frá því á árinu 2002.
„Teljum við augljóst að sú með-
höndlun á gögnum sem hér hefur
verið lýst er ekki ásættanleg,“
segir Deloitte sem leggur til að
um slík viðskipti verði settar
skýrar og samræmdar reglur og
farið sé að öllu leyti eftir þeim
reglum.
gar@frettabladid.is
Skýringa leitað í máli
fyrrum fjármálastjóra
Verðbréf dagaði uppi óinnheimt í læstum skjalaskáp hjá Kópavogsbæ. Ármann
Kr. Ólafsson bæjarstjóri leitar skýringa á kjörum sem Guðrún Pálsdóttir, fyrr-
verandi bæjarstjóri, naut við lóðakaup er hún var fjármálastjóri bæjarins.
Samkvæmt prentmiðlakö p
Upptökur á nýrri plötu hafnar:
SVEITARSTJÓRNIR Guðrún Pálsdóttir,
sem lét af störfum sem bæjarstjóri
Kópavogs í febrúar, naut í tíð sinni
sem fjármálastjóri bæjarins sér-
kjara umfram aðra við lóðakaup.
Eftir athugun sem endurskoðun-
arfyrirtækið Deloitte var í fyrra-
sumar fengið til að gera á inni-
haldi peningaskáps sem steyptur
er í vegg á bæjarskrifstofunum
í Kópavogi komu meðal annars
í ljós fjögur skuldabréf vegna
kaupa Guðrúnar og eiginmanns
hennar á einbýlishúsalóð í Jökla-
lind 5. Bréfin, sem dagsett eru 27.
desember 1996, voru upp á sam-
tals 2.586.400 krónur. Vextir, sem
ekki byrjuðu að reiknast fyrr en
18. febrúar 1997, voru 6,0 prósent
auk verðtryggingar. Aðrir í sömu
stöðu greiddu 6,75 til 6,85 prósent
í vexti af sínum skuldabréfum
vegna lóðakaupa af bænum.
Síðar kom í ljós við nánari
könnun sem Guðríður Arnar-
dóttir, þáverandi formaður bæjar-
ráðs, lét gera að Guðrún borgaði
þess utan enga vexti af 1.105.265
króna gatnagerðar gjöldum. Engin
sambærileg dæmi fundust. Upp-
hæðina greiddi Guðrún á þremur
árum – frá því í nóvember 1999
þar til í nóvember 2002.
Mál þetta vó þungt í því að
meirihluti Samfylkingar, Vinstri
grænna, Næst besta flokksins og
Y-lista Kópavogsbúa undirbjó að
segja Guðrúnu upp bæjastjóra-
starfinu fyrr á þessu ári. „Eins
og komið hefur fram studdi
Samfylkingin ekki bæjarstjóra
til áframhaldandi starfa, meðal
annars vegna þessa máls,“ segir
Guðríður Arnardóttir um það
hvernig brugðist hafi verið við
málinu.
Núverandi meirihluti Sjálf-
stæðisflokks, Framsóknarflokks
og Y-lista Kópavogsbúa, sem tók
við í febrúar, samdi um starfs-
lok Guðrúnar sem bæjarstjóra
en réði hana jafnframt í nýja
sviðsstjórastöðu sem hún tekur
við í haust. Ármann Kr. Ólafsson
bæjar stjóri vill ekki tjá sig um
málið að svo stöddu. - gar
Fjármálastjóri í Kópavogi
á sérkjörum við lóðakaup
Guðrún Pálsdóttir, sem hætti sem bæjarstjóri í Kó
pavogi í febrúar, fékk í tíð sinni sem fjármálastjó
ri bæjarins
vaxtalaust lán fyrir gatnagerðargjöldum og hagst
æðari vaxtakjör en aðrir vegna kaupa á einbýlish
úsalóð.
Guðrún Pálsdóttir segist enga skýringu sjá á lægri vöxtu
m á skuldabréfunum
aðra en að um mannleg mistök hafi verið að ræða. „Þv
í miður veitti ég þessu
ekki athygli þegar við skrifuðum undir bréfin. Enda kom
þetta mér í opna
skjöldu nú 15 árum síðar.“ Spurð hver hafi tekið ákvörð
un um að innheimta
ekki vexti af gatnagerðargjöldum, segir hún að vegna d
eiliskipulagsbreytinga
hafi framkvæmdir við hús hennar tafist úr hófi og „því v
ar gert samkomulag við
yfirboðara mína um greiðslufyrirkomulag á viðbótargjö
ldunum.“
Aðspurð hvort þetta hafi verið venjulegt vinnulag segir
Guðrún: „Breytingar
af hálfu bæjarins sem skapa tafir hjá lóðarhöfum um le
ngri tíma hafa ætíð leitt
til niðurfellingar vaxta. Og oft skaðabótakrafna af hálfu
lóðarhafa.“
Guðrún segist ekki telja að hún hafi notið kjara, sem öð
rum stóðu ekki til boða.
Aðspurð hvort hún hafi gefið bæjarfulltrúum skýringar
á málinu segir hún:
„Fyrrverandi meirihluti skoðaði málið með mér og öðru
m embættismönnum.“
Mannleg mistök og tafir á framkvæmdum
FRÉTTABLAÐIÐ Í GÆR Fyrrverandi bæjarstjóri segir
mannleg mistök hafa leitt til að hún fékk hagstæðari
vaxtakjör en aðrir vegna lóðakaupa er hún var fjár-
málastjóri hjá Kópavogsbæ.
ÁRMANN KR.
ÓLAFSSON
SVEITARSTJÓRNARMÁL Huang Nubo
fær Grímsstaði á Fjöllum á leigu
til 40 ára samkvæmt samningi
sem lagður verður fyrir ríkis-
stjórn á föstudag. Lagt er til að
hlutafélag í eigu sveitarfélaga
á Norður- og Austurlandi kaupi
jörðina. Þetta kom fram í kvöld-
fréttum RÚV í gærkvöld.
Atvinnuþróunarfélögin í Eyja-
firði og Þingeyjarsýslu hafa skilað
útfærslu á því með hvaða hætti
sveitarfélög á Norður- og Austur-
landi geti eignast land á Gríms-
stöðum á Fjöllum í því skyni að
leigja það kínverska fjárfestinum
Huang Nubo. Meðal þess sem lagt
er til er að íslenskt félag Huangs
Nubo leigi landið til 40 ára og
greiði leigufé fyrirfram. Kaup
sveitarfélaganna á landinu verði
þannig fjármögnuð með fyrir-
framgreiddri leigu, að því er segir
í frétt RÚV.
Huang Nubo hugðist kaupa
Grímsstaði fyrir tæplega 860 millj-
ónir króna á sínum tíma, en var
synjað um kaupin af stjórnvöldum.
Í heildina er áætlað að fjárfest-
ingar Huangs Nubo verði um 20
milljarðar króna og skapi 400 til
600 störf. - shá
Leigusamningur Huang Nubo á Grímsstöðum lagður fyrir ríkisstjórn á morgun:
Fær Grímsstaði á leigu í 40 ár
FÆR GRÍMSSTAÐI Huang Nubo ætlar að
fjárfesta fyrir milljarða og skapa mörg
hundruð störf í leiðinni. NORDICPHOTOS/AFP
SÞ Öryggisráð Sameinuðu Þjóð-
anna samþykkti í gær ályktun
þar sem Súdan og Suður-Súdan
er gert að hætta stríðsátökum
á næstu tveimur sólarhringum,
annars verði gripið til refsiað-
gerða gegn löndunum.
Átökin hafa harðnað mjög á
undangengnum mánuðum og
óttast margir að allsherjarstríð
eigi eftir að brjótast út.
Þá lýsti Öryggisráðið yfir
stuðningi við friðaráætlun
Afríku sambandsins vegna átak-
anna á landamærum landanna.
Átök Suður-Súdan og Súdan:
Skipað að láta
af stríðsátökum