Fréttablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 57
Fyrstu orð Kela Þorsteinssonar
sem er mikið einhverfur og
talar ekki. Hann lærði að tjá
sig í fyrsta skipti 10 ára gamall
með hjálp stafaborðs.
Bókin með ævintýralega hattinum eftir Kate Winslet,
einhverfa strákinn Kela og mömmu hans Margréti
bíður þín í Hagkaup.
Ef þú hefðir verið mikið einhverfur, ótalandi og fengir gullinn
töfrahatt sem gæfi þér mál, hvað myndirðu segja?
Þetta er spurningin sem Kate Winslet spurði alla þá frægu
einstaklinga sem tóku þátt í gerð bókarinnar. Með bókinni er
athygli vakin á því að það er öllum mikilvægt að geta tjáð sig,
en áætlað er að um helmingur fólks með einhverfu geti ekki talað.
Til að veita þeim rödd og stuðning hefur fjöldi heimsfrægra
einstaklinga tekið mynd af sjálfum sér með „gullna hattinn“ og
tjáð sig um eitthvað sem skiptir þau máli. Bókin fjallar líka um
sögu Margrétar og Kate og í henni eru birtir tölvupóstarnir sem
innsigluðu vináttubönd þeirra.
Gefðu með hjartanu!
Þú gefur einhverfum rödd og sýnileika með því að kaupa þessa
fallegu bók sem er bæði gott að eiga og hlýlegt að gefa.
Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til The Golden Hat
Foundation sem vinnur í þágu einstaklinga með einhverfu.
Fæst í Hagkaup, einnig á netinu á goldenhatfoundation.org
og amazon.com.
The Golden Hat er komin út
„Ég er raunverulegur“
Taktu þátt í ævintýrinu
og vertu hluti af hópnum
Þú getur látið gott af þér leiða og orðið hluti af hópnum
í bókinni með því að fara á heimasíðuna okkar,
www.goldenhatfoundation.org og á The Golden Wall.
Þar getur þú tekið mynd af þér með gullna hattinn og
deilt með umheiminum hver þín fyrsta setning yrði.
Þá ertu kominn í hóp með Kate Winslet, Kobe Bryant, Zac
Efron, James Franco, Ricky Gervais, Elton John, Jude Law,
Rosie O'Donnell, Justin Timberlake, Oprah Winfrey o.fl.
Myndina þína með gullna hattinn geturðu svo notað sem
prófílmynd á Facebook og hvatt aðra til að láta gott af sér
leiða. Þinn stuðningur skiptir máli.
social.goldenhatfoundation.org
„Ég er hjartanlega þakklát öllum sem
komu að gerð myndarinnar Sólskins-
drengurinn með beinum og óbeinum
hætti og þá sérstaklega aðalstuðnings-
og styrktaraðila hennar, Actavis.“
Margrét D. Ericsdóttir