Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 57

Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 57
Fyrstu orð Kela Þorsteinssonar sem er mikið einhverfur og talar ekki. Hann lærði að tjá sig í fyrsta skipti 10 ára gamall með hjálp stafaborðs. Bókin með ævintýralega hattinum eftir Kate Winslet, einhverfa strákinn Kela og mömmu hans Margréti bíður þín í Hagkaup. Ef þú hefðir verið mikið einhverfur, ótalandi og fengir gullinn töfrahatt sem gæfi þér mál, hvað myndirðu segja? Þetta er spurningin sem Kate Winslet spurði alla þá frægu einstaklinga sem tóku þátt í gerð bókarinnar. Með bókinni er athygli vakin á því að það er öllum mikilvægt að geta tjáð sig, en áætlað er að um helmingur fólks með einhverfu geti ekki talað. Til að veita þeim rödd og stuðning hefur fjöldi heimsfrægra einstaklinga tekið mynd af sjálfum sér með „gullna hattinn“ og tjáð sig um eitthvað sem skiptir þau máli. Bókin fjallar líka um sögu Margrétar og Kate og í henni eru birtir tölvupóstarnir sem innsigluðu vináttubönd þeirra. Gefðu með hjartanu! Þú gefur einhverfum rödd og sýnileika með því að kaupa þessa fallegu bók sem er bæði gott að eiga og hlýlegt að gefa. Allur ágóði af sölu bókarinnar rennur til The Golden Hat Foundation sem vinnur í þágu einstaklinga með einhverfu. Fæst í Hagkaup, einnig á netinu á goldenhatfoundation.org og amazon.com. The Golden Hat er komin út „Ég er raunverulegur“ Taktu þátt í ævintýrinu og vertu hluti af hópnum Þú getur látið gott af þér leiða og orðið hluti af hópnum í bókinni með því að fara á heimasíðuna okkar, www.goldenhatfoundation.org og á The Golden Wall. Þar getur þú tekið mynd af þér með gullna hattinn og deilt með umheiminum hver þín fyrsta setning yrði. Þá ertu kominn í hóp með Kate Winslet, Kobe Bryant, Zac Efron, James Franco, Ricky Gervais, Elton John, Jude Law, Rosie O'Donnell, Justin Timberlake, Oprah Winfrey o.fl. Myndina þína með gullna hattinn geturðu svo notað sem prófílmynd á Facebook og hvatt aðra til að láta gott af sér leiða. Þinn stuðningur skiptir máli. social.goldenhatfoundation.org „Ég er hjartanlega þakklát öllum sem komu að gerð myndarinnar Sólskins- drengurinn með beinum og óbeinum hætti og þá sérstaklega aðalstuðnings- og styrktaraðila hennar, Actavis.“ Margrét D. Ericsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.