Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 56

Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 56
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR40 bio@frettabladid.is Kvikmyndin Coriolanus verður frum- sýnd í Bíó Paradís annað kvöld. Mynd- in er frumraun Ralph Fiennes í leik- stjórastólnum og hefur hann hlotið einróma lof fyrir. Coriolanus er fyrsta kvikmyndin sem Ralph Fiennes leikstýrir og segir frá herforingjanum Coriolanus sem ákveður að leita hefnda gegn íbúum Rómar eftir að hafa verið rekinn brott frá borginni. Til að ná fram hefndum tekur hann höndum saman við erkióvin sinn, Tullus Aufi- dius. Myndin er byggð á leik- verki Williams Shakespeare en er hér flutt til samtímans. Auk þess að leikstýra myndininni fer Fiennes með hlutverk Coriolanusar en með önnur hlutverk fara gæðaleikararnir Gerard Butler, Vanessa Redgrave og Brian Cox. Myndin var að mestu tekin upp í Belgrad í Serbíu og var fyrst sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðinni í Berlín í febrúar á síðasta ári. Myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og Fiennes hlaut BAFTA-verðlaunin í flokknum Out standing Debut by a British Writer, Director or Producer. Á vefsíðunni Rotten Tomatoes segir einn gagn- rýnandi meðal annars að Fiennes hafi tekist að gera eitt af óþekktari verkum Shakespeares að frábærri kvikmynd og að hún eigi eftir að falla í kramið jafnt hjá aðdáendum leikskáldsins og aðdáendum hasarmynda. HERFORINGI NÆR HEFNDUM ■ Kvikmyndin er byggð á samnefndu leikriti eftir William Shakespeare. Verkið er harmleikur og líklega ritað á milli 1605 og 1608. ■ Leikverkið er byggt á ævi rómverska hershöfð- ingjans Caius Marcius Coriolanus sem átti að hafa verið uppi á 5. öld fyrir Krists burð. ■ Fiennes heitir fullu nafni Ralph Nathaniel Twisleton Wykeham Fiennes og er fjarskyldur ættingi Karls Bretaprins. ■ Joseph Fiennes, bróðir Ralph, lék sjálfan William Shakespeare í kvikmyndinni Shake- speare in Love sem kom út árið 1998. GAMALL HARMLEIKUR Á HVÍTA TJALDIÐ HARÐUR GAUR Herforinginn Coriolanus vill hefna sín á íbúum Rómar eftir að hann er hrakinn brott úr borginni. Handritshöfundurinn og leik- stjórinn Joss Whedon skrifaði handritið að myndinni The Cabin in the Woods sem og stór- myndinni The Avengers. Í við- tali við Empireonline.com upp- lýsti Whedon að hann teldi Hulk eiga mestu lífslíkurnar skyldu Marvel- hetjurnar óvart enda í hryllilegu húsi úti í skógi. „Ætli það væri ekki The Hulk því Brenner myndi átta sig á hlutunum og svo gæti Hulk unnið sig í gegnum erfiðleikana,“ sagði Whedon þegar blaðamaður Empire online bar spurninguna upp. Hulk lifir af HELDUR MEÐ HULK Joss Whedon telur The Hulk líklegastan af Marvel- hetjunum til að lifa af í hryllingshúsi. NORDICPHOTOS/GETTY Tom Cruise hefur verið orðaður við hlutverk vampíru- banans Abrahams Van Helsing í mynd er fjallar um ævintýri kappans. Universal mun framleiða mynd- ina og vill fyrirtækið fá handritshöfundana Alex Kurtzman og Roberto Orci til liðs við sig. Tvíeykið á meðal annars heiður- inn að kvikmyndum á borð við Mission: Impossible III, Trans- formers þríleikinn og Star Trek. „Alex og Roberto eru sérstaklega hæfi- leikaríkir höfundar sem kunna að byggja upp spennu. Við erum spennt fyrir að fá þá til liðs við okkur,“ sagði Adam Fogel- son hjá Universal um væntanlegt samstarf. Síðast mátti sjá Cruise í hlutverki Ethan Hunt í kvik- myndinni Mission: Impossible – Ghost Protocol. Hann fer einnig með hlutverk í kvikmyndinni Oblivion, en tökur á henni munu að einhverju leyti fara fram á Íslandi í sumar. Tom Cruise í hlut verk Van Helsing VAMPÍRUBANI Tom Cruise hefur verið orðaður við hlutverk Van Helsing í samnefndri mynd. NORDICPHOTOS/GETTY Auk myndarinnar Coriolanus, sem er frum- sýnd í Bíó Paradís um helgina og fjallað um hér að neðan, eru tvær aðrar myndir frumsýndar. Mel Gibson leikur aðalhlutverkið og er annar handritshöfundur myndarinnar How I Spent My Summer Vacation sem er væntan leg í kvikmyndahús á morgun. Gib- son leikur glæpamann sem er handsamað- ur og færður í mexíkóskt fangelsi þar sem aðstæður eru afar hættulegar og fanga- verðir taka þátt í spillingunni og glæp- unum. Hann lærir þó fljótt á hnútana þökk sé níu ára gömlum dreng sem er þar með móður sinni. Hlutirnir flækjast þó þegar foringi glæpaklíkunnar hyggst nota drenginn sem líffæragjafa fyrir sig og persóna Gibson leggur sig í líma við að vernda hann á sama tíma og hann skipu- leggur aðgerðir til að ná til baka ránsfeng sínum úr höndum spilltra lögreglumanna. Spennumyndin The Raid er einnig frumsýnd á morgun. Þar segir frá áhlaupi sérsveitarliðs lögregunnar á hús í fá tækra hverfi í Djakarta sem hýsir marga hættulegustu glæpamenn heims. Til gangur áhlaupsins er að handsama eiturlyfja- foringjann sem fer með öll völd í húsinu. Sérsveitin lendir þó í vanda þegar glæpa- mennirnir átta sig á innrás þeirra inn í húsið. Glæpamennirnir ná yfirhöndinni þegar þeir festa sérsveitina á sjöttu hæð hússins, slökkva öll ljós og loka öllum útgöngu leiðum. - trs Glæpsamleg helgi í bíóhúsum BERJAST Sérsveit lögreglunnar berst við hættulegustu glæpamenn heims í bíó- myndinni The Raid. ★★★★★ THE AVENGERS „Alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó vísað á dyr fyrir óspektir.“ ★★★★★ THE CABIN IN THE WOODS „Hressandi hrollur sem kemur áhorfandanum sífellt á óvart.“ ★★★★★ 21 JUMP STREET „Mátulegur skammtur af formúlu- skopi. Allt gott og blessað.“ ★★★★★ BATTLESHIP „Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur.“ - hva KVIKMYNDARÝNI THE AVENGERS Rekstrarvörur - vinna með þér Myndin var upp í Belgrad í Serbíu og var fyrst sýnd á alþjóðlegu kvikmyndahá- tíðinni í Berlín í febrúar á síðasta ári. > MYNDUM LEKIÐ AF LOVELACE Búið er að leka á netið fyrstu kvikmyndastillunum úr myndinni Lovelace, sem fjallar um ævi klám- myndaleikkonunnar Lindu Lovelace. Það er Amanda Seyfried sem leikur aðalhlut- verkið en hún þurfti að lita ljósu lokkana brúna fyrir hlutverkið. Einnig má sjá James Franco í hlutverki Playboy- eigandans Hugh Hefner og leikarana Peter Sarsgaard, Hank Azaria og Wes Bentley. Lovelace verður frumsýnd síðar á þessu ári en Rob Epstein og Jeffrey Friedman sjá um leikstjórn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.