Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 31
TÍSKA
Sumarið 2006 gerðu bandarískir vísindamenn frá virtri jarð-fræðistofnun í New Jersey merkilega uppgötvun þegar þeir fundu óvenjulega tegund reyniviðar við rannsókn á berg-
lögum í Krýsuvík. Í byrjun vakti sérstök staðsetning trésins at-
hygli, sem og óvenjulegt útlit þess sem benti til mjög hás aldurs.
Norskur vísindamaður og sérfræðingur í rannsóknum trjáviðar
tók prufu úr trjástofninum og eftir aldursgreiningu vestra kom í
ljós að tréð væri um 5300 ára.
Aldrei áður hefur jafn fornt tré fundist á Íslandi og því var
aldur þess dreginn í efa. Við bættist sá orðrómur að vísinda-
maðurinn styddi uppgötvun sína með goðfræðilegum stoðum
og því ákveðið að hætta frekari rannsóknum og setja prufuna í
vörslu. Í norrænni goðafræði er reyniviður helgaður Þór sem tákn
um hamingju og lífskraft og Keltar litu á reynivið sem lífsins tré.
Árið 2011 gat norski vísindamaðurinn aftur gert tilkall til rann-
sókna á íslensku prufunni og eftir enn nákvæmari rannsóknir
voru fyrri niðurstöður staðfestar: íslenski reyniviðurinn er 5300
ára og því eldri en elsta tréð sem hingað til er vitað um, sem er
langær fura í White Mountains í Bandaríkjunum.
Nákvæmri staðsetningu reynisins í Krýsuvík er haldið opinber-
lega leyndri vegna uggs um að straumur ferðamanna skaði tréð,
en slíkt varð raunin í White Mountains.
Íslensk kona sem starfað hefur lengi að rannsóknum á trjám
á Íslandi hefur bent á að álfar hafi búsetu í íslenskum trjávið og
krafist þess að tré og umhverfi þeirra séu útilokuð frá frekari vís-
indalegum rannsóknum til að trufla ekki „hið ósýnilega fólk“.
Vísindamaðurinn telur þennan framgang „óheyrilega hindrun
vísindalegra rannsókna“ því reynitréð geti gefið vitneskju um
viðarlaust landslag Íslands á árum áður og aukið nýja þekkingu á
jarðfræði- og veðurfarslegri framvindu á Norðurhveli.
J. Weissenberg
5300 ÁRA
REYNITRÉ
JW KYNNIR Fyrir sex árum fannst 5300 ára gam-
all reyniviður á Íslandi. Álfar hindra nú frekari
rannsókn sem auka mundi þekkingu á jarðfræði
landsins.
Tískuheimurinn hefur lengi átt í eins konar ástarsambandi við heim
ævintýranna. Ástarsagan heldur áfram því nú hefur skó hönnuðurinn
Christian Louboutin hannað skó þar sem hann sækir innblástur í
ævin týrið um Öskubusku. Eftirlíking af glerskónum
kemur á markað í haust í tilefni þess að teiknimyndin
verður endurútgefin á mynddiski.
Tískuáhugafólk verður þó að bíða eftir
sumrinu til að berja dýrðina augum en sagt er að
hönnuðurinn, sem er frægur fyrir rauða skósóla,
muni þrátt fyrir gegnsæi ná að setja mark sitt á skóna.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem glerskórinn úr
ævintýri Grimms bræðra hefur orðið hönnuðum
innblástursefni. Martin Margiela setti sína
útfærslu af glerskónum á markað í takmörkuðu
upplagi fyrir nokkrum árum.
Það lítur út fyrir að ævintýrið um Mjall-
hvíti verði einnig uppspretta hugmynda
fyrir tískuhönnuði þökk sé nýrri
kvikmynd, Snow White and the
Huntsman sem verður frumsýnd í
haust. Nú þegar er snyrtivörulína
komin á markað sem gerir fólki
kleift að líkjast Mjallhvíti eða
vondu stjúpunni.
HANNAR GLERSKÓ
Í ÖSKUBUSKUSTÍL
AUGLÝSING
Skráning í inntökupróf
á Listdansbraut JSB
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
Nám og kennsla
Danslistarskóli JSB er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu sem
listdansskóli á grunn- og framhaldsskólastigi. Nánari upplýsingar um
nám við skólann er að finna á www.jsb.is undir Danslistarskóli JSB.
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Viltu gerast vinur JSB?
Danslistarskóli JSB er á facebook
Inntökupróf - framhaldsskólastig
Laugardaginn 12. maí kl. 15:00 – 16.30.
Inntökupróf - grunnskólastig
10 -12 ára, laugardaginn 19. maí kl. 14:00 – 15:00
13 -15 ára, laugardaginn 19. maí kl. 15:00 – 16:30
Kennslustaðir:
Danslistarskóli JSB í Kópavogi,
Íþróttahúsi Digraness.
Almenn braut.
Danslistarskóli JSB í Reykjavík,
Lágmúla 9 og Laugardalshöll.
Almenn braut og listdansbraut.
Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili
að Frístundakorti Reykjavíkurborgar
Innritun á haustönn fyrir listdansbraut er hafin!
Nánari upplýsingar eru á vefnum www.jsb.is og á facebook
| FÓLK | 3