Fréttablaðið - 03.05.2012, Blaðsíða 48
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR32
BAKÞANKAR
Friðriku
Benónýs
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. ryk, 6. í röð, 8. máltíð, 9. rénun, 11.
fíngerð líkamshár, 12. vaxa, 14. skraut,
16. tveir eins, 17. húsfreyja, 18.
skammstöfun, 20. hróp, 21. spírun.
LÓÐRÉTT
1. loga, 3. kringum, 4. hugarró,
5. nögl, 7. kæna, 10. kvenkyns
hundur, 13. útdeildi, 15. hljóðfæri,
16. knæpa, 19. mun.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. kusk, 6. áb, 8. mál, 9. lát,
11. ló, 12. stíga, 14. skart, 16. kk,
17. frú, 18. rek, 20. óp, 21. álun.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. um, 4. sálarró,
5. kló, 7. bátskel, 10. tík, 13. gaf,
15. túpa, 16. krá, 19. ku.
Þá er komið
að stóru
stundinni!
Nýjasta frá
Dutch Oven
Massacre!
Það er ekk-
ert annað!
Þessari hef
ég beðið
eftir lengi!
Sagan
segir að
þessi
plata sé
grimmari
en sú
síðasta!
Er það mögulegt?
Síðasta plata var
svo svakaleg að
það blæddi úr eyr-
unum á mér og ég
þurfti að sofa með
ljósin kveikt!
Þetta
lofar
góðu!
Þunga-
rokk!
Ég sé bréfa-
klemmurnar þínar og
hækka um niður-
lægjandi verkefni að
eigin vali.
Ég sé niðurlægjandi verk-
efnið þitt og hækka um
brjálað atriði á fjölförnu
kaffihúsi.
Hækka um að bora í
nef fyrir framan heita
gellu og ég kalla.
Þrátt fyrir að
við leggjum
ekki peninga
undir, þá er
ekki lítið í
húfi.
Ætlið þið að
fylgjast með systur
ykkar á meðan
ég spjalla við
mömmu Krissu? Já.
Ekki hleypa
henni úr
augsýn.
Ókei.
Lofið þið?
Við
lofum.
Þetta er
allt þér að
kenna.
Þú teipaðir
hana við
sjónvarpið!
Næsti biskup Íslands verður kven-kyns. Þúsund ára einokun karla á því
embætti er lokið og fagnaðarlátunum ætlar
aldrei að linna. Enn eitt dæmið um það
hvað Íslendingar eru líbó og langt komnir
í jafnréttismálum. Fréttaflutningur af
biskupskjörinu nánast einskorðast við kyn
biskupsins tilvonandi og sú staðreynd að
kjörið sýnir fyrst og fremst þann ásetning
kirkjunnar manna að viðhalda status quo
og slá um leið vopnin úr höndum þeirra sem
gagnrýnt hafa kirkjuna fyrir kvenfyrir-
litningu fellur í skuggann. Íhaldssöm kona
er sjálfkrafa betri kostur en frjálslyndur
karl að mati jafnréttissinna.
JAFNRÉTTISUMRÆÐAN á Íslandi
snýst nefnilega um það hversu
mörgum konum sé hægt að tylla
í áberandi embætti til að vekja
aðdáun útlendinga. Eða svo virðist
manni að minnsta kosti á stundum.
Forsætisráðherrann er kona, for-
seti Alþingis er kona, ráðherrar eru
fleiri kvenkyns en karlkyns og margt
bendir til þess að næsti forseti lýð-
veldisins verði kona. Lengra er nú
varla hægt að komast í jafnréttinu,
eða hvað? Hverjum er ekki sama
hver veruleikinn er að baki þessari
flottu gluggaútstillingu?
Spurningin sem öll þessi umræða
um framgang kvenna í opinberum
stöðum vekur er þessi: Hefur þetta
skilað sér í aukningu á raunverulegu jafn-
rétti kynjanna? Og því miður er ansi fátt
sem bendir til þess. Kvennastéttir eins og
leikskólakennarar, hjúkrunarfræðingar og
kennarar, svo ekki sé nú minnst á ófag-
lærðar starfskonur og verkakonur, eru enn
meðal lægst launuðu stétta landsins og fá
merki um það að framsókn kvenna í opin-
berum stöðum hafi nokkur áhrif þar á. Kyn-
ferðisbrotum gegn konum fjölgar ár frá ári
og verða sífellt hrottalegri en dómar fyrir
slík brot líkjast enn í besta falli lélegum
bröndurum. Klámvæðingin og kvenfyrir-
litningin blómstra sem aldrei fyrr og eftir-
spurn eftir vændi hefur aldrei verið meiri.
Veruleikinn sem hin almenna íslenska kona
býr við stangast hressilega á við glans-
myndina um kvenfrelsisríkið Ísland.
AUÐVITAÐ ber að fagna því að konur nái
frama innan embættismannakerfis og
pólitíkur en umræðan má ekki stöðvast
þar. Það að kona fari úr prófastsembætti
í biskupsembætti hefur því miður sorg-
lega lítið með jafnrétti kynjanna að gera.
Því jafnrétti miðar ekkert áfram á meðan
dætur okkar standa frammi fyrir því að
verða fyrst og síðast metnar út frá kynferði
sínu en ekki atgervi. Jafnrétti snýst ekki
um flauelsklædda stóla fyrir fáar útvaldar
heldur að allt fólk, karlkyns og kvenkyns,
af öllum stéttum og stigum sitji við sama
borð hvað varðar afkomumöguleika og
virðingu.
Gínurnar í glugganum