Fréttablaðið - 03.05.2012, Page 54
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 26. apríl - 2. maí 2012
LAGALISTINN
Vikuna 26. apríl - 2. maí 2012
Sæti Flytjandi Lag
1 The Black Keys ............................. Gold On The Ceiling
2 Fun / Janelle Monae .............................. We Are Young
3 Bubbi / Mugison ....................................................Þorpið
4 Ojba Rasta .......................................................Baldursbrá
5 Magni ..................................................................... Hugarró
6 KK ................................................................................ Frelsið
7 Alabama Shakes ................................................. Hold On
8 Gabríel, Valdimar og Opee ........................Stjörnuhröp
9 Michael Teló ..........................................Ai se eu te pego
10 Keane ...........................................Silenced By The Night
Sæti Flytjandi Plata
1 Bubbi Morthens......................................................Þorpið
2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
3 Mugison ....................................................................Haglél
4 Adele .................................................................................. 21
5 Chick Corea & Gary Burton .........................Hot House
6 Sigurður Guðmundsson og Sigríður Thorlacius ..............
................................. Ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands
7 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
8 Valgeir Guðjónsson .....................Spilaðu lag fyrir mig
9 Chick Corea ............................................................ Best Of
10 One Direction ...............................................Up All Night
Einn af hápunktum Listahátíðar í Reykjavík 2012 verða, án efa, tónleikar
breska tónlistarmannsins Bryans Ferry í Hörpu 27. og 28. maí.
Ferry er á meðal stóru nafnanna í poppsögu síðustu 40 ára. Hann
lærði myndlist á sjöunda áratugnum og stofnaði þá sínar fyrstu hljóm-
sveitir, The Banshees og Gas Board sem hvorug vakti nokkra athygli. Það
breyttist með hljómsveitinni Roxy Music árið 1970. Sveitin, sem í voru
auk Ferrys meðal annars Brian Eno og Phil Manzanera, var undir mikl-
um áhrifum frá myndlistinni, bæði hvað útlit, ímynd og sjálfa tónlistina
varðar. Fyrstu Roxy Music-plöturnar eru á meðal flottustu verka rokk-
sögunnar og höfðu mikil áhrif. Roxy hætti árið 1976, en var endurstofnuð
1978 og hefur starfað með hléum síðan.
Ferill Ferrys hefur lengst af skipst á milli hljómsveitarinnar og sóló-
ferilsins. Fysta sólóplatan hans, These Foolish Things, kom út 1973 og
hafði að geyma gamla dægursmelli í nýjum búningum, en sú nýjasta,
Olympia, kom út 2010. Í fyrra gerði Ferry víðreist til að fylgja henni eftir.
Hann hefur samið mikið af flottum lögum og textum, sérstaklega á fyrri-
hluta ferilsins, en hann hefur líka gert sínar útgáfur af lögum annarra,
m.a. mörgum Dylan-lögum. Ferry er frábær söngvari og mjög metnaðar-
fullur og kröfuharður tónlistarmaður.
Aðdáendur Ferrys skiptast í tvo hópa. Annars vegar eru það þeir sem
dýrka gömlu Roxy-plöturnar, hins vegar þeir sem féllu fyrir ofur fágaða
poppinu sem einkenndi tónlist Ferrys á níunda og tíunda áratugnum
þegar lög eins og Avalon, More Than This og Slave to Love slógu í gegn.
Ferry passar sig á því að höfða til beggja þessara hópa á tónleikum eins
og sjá má á lagalistanum frá tónleikum í Berlín í desember. Þar tók hann
24 lög, mikið af gömlum Roxy-lögum, poppsmellina frá níunda áratugnum
og nokkur tökulög, auk þriggja laga af Olympiu.
Stórviðburður í Hörpu
> Í SPILARANUM
Squarepusher - Ufabulum
Norah Jones - Little Broken Hearts
Damon Albarn - Dr. Dee
> PLATA VIKUNNAR
★★★ ★★
Nicki Minaj – Pink Friday:
Roman Reloaded
„Bestu lögin eru frábær,
önnur síðri.“ -tj
Bandaríska hljóm sveitin
Alabama Shakes hefur
vakið mikla athygli að
undanförnu fyrir grípandi
Suðurríkjarokk sitt. Fyrsta
platan er nýkomin út.
Alabama Shakes hefur vakið athygli
með lagi sínu Hold On sem hljómar
óneitanlega eins og eitthvað sem
Kings of Leon hefði getað sent frá
sér. Þetta Suðurríkja-sálarrokklag
er tekið af fyrstu plötu sveitarinnar,
Boys & Girls, sem kom út í síðasta
mánuði.
Alabama Shakes var stofnuð í
menntaskóla í Aþenu í Alabama.
Söngkonan Brittany Howard, sem
hafði lært á gítar nokkrum árum
áður, spurði bassaleikarann Zac
Cockrell hvort hann vildi spila með
henni. Þau byrjuðu að hittast eftir
skóla og semja saman. Trommarinn
Steve Johnson vann í einu plötu-
búðinni í bænum og Howard frétti
af því að hann kynni að spila á
trommur. Hún bauð honum í hljóm-
sveitina og þau héldu áfram að þróa
hljóm sinn.
Tríóið fór í hljóðver og tók upp
nokkur prufulög. Gítarleikarinn
Heath Fogg, sem hafði gengið í
sama skóla og þau, heyrði lögin og
bauð þeim að hita upp fyrir hljóm-
sveitina sína. Það gerðu þau með því
skilyrði að hann spilaði með þeim
og eftir það gekk hann til liðs við
bandið. Tónleikarnir gengu mjög
vel og eftir þá bættust nokkur töku-
lög við tónleikadagsskrána eftir
Led Zeppelin, James Brown, Otis
Redding og AC/DC.
Á þessum tíma kallaði hljómsveit-
in sig einfaldlega The Shakes. Næst
á dagskrá var að drífa sig til Nash-
ville í hljóðver. Þar spilaði sveitin
einnig í plötubúð við góðar undir-
tektir og eftir að tónlistarbloggari
setti lagið You Ain´t Alone á vefsíð-
una sína hrúguðust inn tölvupóstar
til Howard daginn eftir frá útgáfu-
fyrirtækjum og umboðsmönnum.
Nafninu var breytt í Alabama
Shakes, sveitin fór í tónleikaferð
með Drive-By Truckers og fyrsta
smáskífulagið Hold On leit dagsins
ljós í djammi á miðjum tónleikum. Í
október í fyrra spilaði hljóm sveitin
á CMJ-hátíðinni í New York-borg og
fengu tónleikarnir frábæra dóma
hjá New York Times.
Núna er fyrsta platan komin út
og náði hún þriðja sæti breska vin-
sældarlistans og því áttunda á þeim
bandaríska. Alabama Shakes verður
á tónleikaferðalagi um Evrópu og
Bandaríkin í sumar. Hún spilar á
öllum helstu hátíðunum, þar á meðal
Hróarskeldu, Rock Werchter, Lol-
lapalooza og Bestival, og á vafalítið
eftir að heilla tónleikagesti upp úr
skónum með einlægu Suðurríkja-
rokki sínu. freyr@frettabladid.is
Sálarrokk úr Suðurríkjum
HOWARD OG FOGG Brittany Howard og gítarleikarinn Heath Fogg úr Alabama Shakes. NORDICPHOTOS/GETTY
Jeff Hanneman, gítarleikari
Slayer, mun ekki spila með
þungarokkssveit-
inni á væntan-
legri tónleikaferð
hennar. Ástæðan er
heldur betur óvenjuleg,
eða köngulóarbit sem hann
varð fyrir.
Bitið var svo alvarlegt að
hann missti næstum hand-
legginn, fór í dá og þurfti að
gangast undir margar að-
gerðir til að losna við eitrið úr
líkamanum. „Hand leggurinn
var mjög heitur. Ég fór á
bráðamóttökuna og sem betur
fer vissi hjúkrunarkonan strax
hvað amaði að mér. Þrátt fyrir
að svona bit séu mjög sjaldgæf
hafði hún fyrir tilviljun séð
sams konar bit skömmu áður.
Á þeim tímapunkti var ég einni
klukkustund frá dauðanum,“
sagði Hanneman við Gigwise
og bætti við að læknirinn hefði
verið aðdáandi Slayer.
Ár er liðið síðan gítar-
leikarinn losnaði af sjúkra-
húsinu og síðan þá hefur hann
gengið í gegnum mikla endur-
hæfingu, meðal annars lært að
ganga á nýjan leik og fengið
húðígræðslu.
Bitinn af könguló
SLÆMT BIT Jeff
Hanneman
lenti í slæmu
köngulóarbiti.
NORDICPHOTOS/GETTY
Eigendur að 34,38% hlut í HS Veitum hf. hafa falið Fyrirtækjaráðgjöf
Íslandsbanka hf. að annast formlegt ferli sem lýtur að mögulegri
sölu á eignarhlut sínum í félaginu. Þessi hlutur er í dag í eigu
Reykjanesbæjar, Orkuveitu Reykjavíkur, Grindavíkurbæjar, Sand-
gerðisbæjar, Sveitarfélagsins Garðs og Sveitarfélagsins Voga.
HS Veitur hf. eru dreifiveita rafmagns samkvæmt Raforkulögum
nr. 65/2003 og annast að auki dreifingu heits vatns og ferskvatns á
starfssvæðum sínum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Reykjanesbæ en
jafnframt eru starfsstöðvar í Árborg, Hafnarfirði og í Vest manna-
eyjum.
Söluferlið er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla
skilyrði um að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr.
108/2007 um verðbréfaviðskipti, auk aðila sem búa yfir fullnægjandi
þekkingu og reynslu og geta sýnt fram á eiginfjárstöðu umfram 300
milljónir kr. Seljendur áskilja sér þó rétt til þess að takmarka aðgang
að söluferlinu, meðal annars í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru
lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist hlut í félaginu, svo
sem vegna samkeppnisreglna.
Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Fyrir-
tækjaráðgjöf Íslandsbanka í síma 440 4000 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið hsveitur2012@islandsbanki.is. Áhugasamir
fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðar yfir lýsingu ásamt því að
leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að
ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Í kjölfarið fá fjárfestar afhentar
frekari upplýsingar um tímasetningar og skilmála söluferlisins auk
upplýsinga um fjárhag og starfsemi félagsins.
34,38% hlutur í HS Veitum hf. í söluferli
- Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka falið
að annast söluferli
- Söluferlið opið öllum fjárfestum sem
uppfylla tilgreind skilyrði