Fréttablaðið - 03.05.2012, Side 70
3. maí 2012 FIMMTUDAGUR54
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Þetta er bara lyginni líkast, sem á ákaflega vel við
þegar Múnkhásen er annars vegar,“ segir Gunnar
Helgason.
Hann leikur í sýningunni Ævintýri Múnkhásens
í Gaflaraleikhúsinu sem hefur verið boðið á eina
stærstu barnaleikhúshátíð heims, The International
Children´s Festival, í Edinborg. Hún verður haldin í
júní á næsta ári.
Virginia Gillard, sem leikur frú Múnkhásen,
sendi forsvarsmönnum hátíðarinnar í Edinborg póst
um sýninguna og þeir brugðust skjótt við. „Það kom
á óvart hvað viðbrögðin voru strax jákvæð því þeir
voru ekki búnir að sjá neitt nema smá myndbands-
efni sem við sendum þeim,“ segir Gunnar og bætir
við að þetta sé mikill heiður fyrir Gaflaraleikhúsið
í Hafnarfirði.
Ekki er samt öruggt að leikhúsið þekkist boðið.
„Þetta er allt á byrjunarreit. Við eigum eftir að
skoða öll fjármál og mín reynsla er sú að fagna ekki
fyrr en allt er orðið klappað og klárt.“
Þrettán sýningum af Ævintýrum Múnkhásens er
lokið og hefur verið nánast fullt á þær allar. Gagn-
rýnendur hafa einnig hrósað verkinu í hástert.
Sýningum verður haldið áfram í maí. „Það eru ekki
rosalega margar sýningar eftir og ef fólk hefur
áhuga ætti það að skella sér sem fyrst.“ -fb
Múnkhásen boðið til Edinborgar
ÆVINTÝRI MÚNKHÁSENS Verkið verður líklega sýnt á alþjóð-
legri barnaleikritahátíð í Edinborg á næsta ári.
„Ég verð að segja hamborgar-
arnir sem eru grillaðir fyrir leiki
á KR-vellinum. Grillaðir af góð-
mennsku og það er eins gott að
það er stutt í fyrsta leik.“
Andrea Röfn Jónasardóttir, fyrirsæta
Hátt í þrjú þúsund manns hafa
skráð sig í nýja Fantasy-deild vef-
síðunnar Fótbolti.net í tengslum
við Pepsi-deildina í sumar.
Aðspurður segir ritstjórinn
Magnús Már Einarsson að deildin
hafi ekki verið stofnuð til höfuðs
vefsíðunni Fantasydeildin.net sem
fór í loftið fyrir skömmu.
„Alls ekki. Við erum búnir að
stefna að þessu í marga mánuði
og þeirri vinnu lauk í gærkvöldi
[á þriðjudagskvöld]. Þetta er mjög
líkt ensku Fantasy-deildinni. Við
horfum á hana sem fyrirmynd,“
segir Magnús Már en þúsundir
íslenskra fótboltaáhugamanna eru
skráðir til leiks í ensku deildinni.
„Við hefðum viljað koma þessu
fyrr í loftið en við ætlum að nýta
tímann vel fram að móti og það er
vonandi að sem flestir skrái sig.
Það hefur verið vöntun á svona
leik og þessi hugmynd kviknaði í
sumar. Viðtökurnar sýna að þetta
er eitthvað sem hefur vantað.“
Það er því ljóst að hörð sam-
keppni verður utan vallar sem
innan í íslenska boltanum í sumar.
Rúmlega þrjú þúsund lið eru skráð
til leiks á Fantasydeildin.net en
sú deild er einmitt í samstarfi
við samkeppnisaðila Fótbolta.
net, vefsíðuna 433.is. Samanlagt
eru íslensku sýndarfótboltaliðin
því orðin um sex þúsund talsins.
Aðspurður um þessa óvæntu sam-
keppni í Fantasy-leiknum segist
Aron Már Smárason hjá Fantasy-
deildin.net lítið vita um nýju síðuna
hjá Fótbolta.net. Hann fagnar
samkeppninni en viðurkennir að
stofnun síðunnar hafi komið sér á
óvart svona skömmu fyrir mót.
Þeir sem taka þátt í nýju
Fantasy- deildinni fá, rétt eins og
í hinni Fantasy-deildinni, hundrað
milljónir króna til að kaupa fimm-
tán leikmenn úr Pepsi-deildinni í
fótbolta. Leikmennirnir fá síðan
stig fyrir frammistöðu sína á
vellinum. Dýrustu leikmennirnir
eru Garðar Jóhannsson, Steven
Lennon og Kjartan Henry
MAGNÚS MÁR EINARSSON: HEFUR VERIÐ VÖNTUN Á SVONA LEIK
Hart barist í íslenskum
sýndarfótbolta á netinu
SÝNDARFÓTBOLTI. HVAÐ ER ÞAÐ?
Finnbogason. Sá keppandi sem
endar efstur þegar Fantasy-
mótinu lýkur í haust fær ferð
fyrir tvo á leik í ensku úrvals-
deildinni í boði Úrvals Útsýnar.
Stigahæsti keppandinn í hverri
umferð fyrir sig fær einnig
verðlaun. Hægt er að skrá sig
á slóðinni Fantasy.fotbolti.net.
Í Fantasydeildin.net eru einnig
mánaðarleg verðlaun. Ekki er búið
að ákveða hver aðal vinningurinn
verður þar á bæ. „Við erum að
skoða það. Það liggur ekkert á því
fyrr en í september. Það verður
stór vinningur, jafnvel stærri en
hjá þeim,“ segir Aron Már.
freyr@frettabladid.is
„Ég var orðinn svo þreyttur á að fólk væri
að spyrja mig hvað það ætti að gera á föstu-
dagskvöldum núna þegar þátturinn væri
hættur, svo við ákváðum að skella í sex
þætti í viðbót,“ segir Logi Bergmann Eiðs-
son, stjórnandi Spurningabombunnar sem
er væntanleg aftur á skjáinn 18. maí.
Upphaflega átti Spurningabomban að
vera einn áramótaþáttur en það endaði þó
í heilli þáttaröð með 22 þáttum. „Þetta var
svo skemmtilegt og gekk svo fáránlega vel
að við héldum bara áfram að búa til fleiri
og fleiri þætti,“ segir Logi. Þættirnir verða
á sama sýningartíma og þeir voru og með
svipuðu sniði. „Þetta verða bara sömu fífla-
læti og voru í vetur. Nú þurfum við að hella
okkur í að búa til spurningar og gjöra svo
vel að fara að bóka einhverja gesti,“ bætir
hann við. Reikna má með að sjá gömul
og góðkunn andlit meðal gesta þáttarins
auk þess sem einhverjir nýir skjóta upp
kollinum.
„Við erum alveg óhrædd við að fá sömu
gesti aftur. Þetta er allt í gamni gert og allir
skemmta sér vel. Þegar keppnisandinn er
orðinn meiri en bjánaskapurinn er þetta
bara komið út í einhverja vitleysu, en sem
betur fer virðist ekki vera neitt stórmál hjá
neinum að vinna þennan forljóta bikar,“
segir Logi og hlær.
Logi segist aldrei hafa skemmt sér jafn
vel og við að búa til Spurningabombuna og
það hlýtur að vera að skila sér til áhorfenda
miðað við þau ótrúlegu viðbrögð sem
þættirnir hafa fengið. „Ég get ekki beðið eftir
að byrja aftur,“ segir Logi að lokum. - trs
Bíður spenntur eftir nýrri Spurningabombu
SKEMMTILEGASTA SEM ÉG HEF GERT Logi Bergmann
segir Spurningabombuna vera það skemmtilegasta
sem hann hafi nokkru sinni gert. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fantasydeild, eða sýndarfótbolti, er ókeypis leikur þar sem keppendur fá
ákveðna upphæð til að búa til eigið fótboltalið á netinu. Leikmennirnir
kosta mismikinn pening og fer virði þeirra eftir getu leikmannanna. Þeir fá
stig eftir því hvernig þeir standa sig í raunverulegu deildinni sem er spiluð
samhliða Fantasydeildinni. Mínusstig eru gefin fyrir ýmislegt, þar á meðal
spjöld, mörk fengin á sig og sjálfsmörk en plússtig fyrir mörk, stoðsendingar,
að halda markinu hreinu og fleira. Einn keppandi stendur síðan eftir sem
sigurvegari þegar leiktíðinni lýkur.
HÖRÐ SAMKEPPNI
Magnús Már Einarsson, ritstjóri
hjá Fótbolta.net, bindur miklar
vonir við nýja Fantasydeild vef-
síðunnar. Aron Már Smárason
og Fannar Berg Gunnólfsson
stýra síðunni Fantasydeildin.
net. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Dregið verður 15. maí úr keyptum miðum í forsölu.
Í verðlaun er flug fyrir tvo til Evrópu með Iceland Express.
L
A
N
D
SM
ÓT HESTAM
AN
N
A
N
A
T
IO
N
AL HORSE SHOW
O
F
IC
E
L
A
N
D
Landsmót
hestamanna
Reykjavík
2012
Taktu þátt í forsöluleiknum
Kynntu þér forsölukjörin.
Athugið að forsölu lýkur 15. maí.
Sæti í stúku, miðar á landsmót
og hjólhýsastæði – allt bókanlegt
á www.landsmot.is
Minnum á afsláttarkjör félaga í LH og BÍ.
N1 korthafar fá 1.000 kr. afslátt.
25.06 – 01.07