Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 34

Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 34
Söngkonan ástsæla Sigríður Bein-teinsdóttir, sem flestir þekkja auðvitað sem Siggu Beinteins, verður fimmtug í júlí. Af því tilefni mun hún halda stórtónleika í Háskólabíói á afmælisdaginn sinn, fimmtudaginn 26. júlí. Söngkonan fagnar einnig þrjátíu ára starfsafmæli sínu í ár. Hún segist ekki hafa átt von á því, þegar hún hóf tónlistarferil sinn árið 1982, að þrjátíu árum síðar ætti hún eftir að syngja enn á sviði og vera hvergi nærri hætt. „Það var alltaf draumur minn að starfa við tónlist en á þeim tíma átti ég aldrei von á því að endast svo lengi í bransanum. Tíminn hefur svo sannarlega liðið hratt og stundum jafnvel of hratt.“ Á tónleikunum mun Sigga syngja lög frá 30 ára ferli sínum sem hófst með hljómsveitinni Kikk. Hún vakti fyrst verulega athygli hérlendis þegar hún söng lagið „Vertu ekki að plata mig“ með HLH flokknum árið 1984 og eftir það varð ekki aftur snúið. Við tók farsælt tímabil með hljómsveitinni Stjórninni, sem var ein vinsælasta hljómsveit landsins um árabil, þátttaka í Eurovision-keppninni auk fjölda annarra verkefna. Fjöldi góðra gesta syngur með Siggu á tónleikunum. Þar má meðal annars nefna Björgvin Halldórsson, Grétar Örvars son, Friðrik Ómar, Regínu Ósk og Pál Óskar Hjálmtýsson. En hvað skyldi standa upp úr á þrjá- tíu ára ferli Siggu? Hún segir Eurovision- keppnirnar skipa stóran sess enda tók hún fjórum sinnum þátt; þrisvar sem sólósöngkona og einu sinni sem bakraddasöngkona. „Síðan er auðvitað Stjórnin stór og eftirminnilegur þáttur í ferlinum. Við vorum ein vinsælasta hljómsveit landsins um árabil og þetta var virkilega skemmtilegur tími. Það sem gerði það tímabil svo skemmtilegt var að þá ferðuðumst við í rútu um landið og spiluðum á sveitaböllum. Sveitaböllin eins og þau voru í gamla daga eru ekki til lengur og það var gaman að ná því tímabili.“ Það er meira á döfinni hjá Siggu en stórtónleikarnir. Í haust opnar hún eigið söngstúdíó þar sem hún mun kenna söng. „Ég hef rekið eigin söngskóla í Noregi frá árinu 2003 en hef lengi gælt við að kenna aftur söng hér á Íslandi. Nú læt ég loks þann draum verða að veruleika.“ Sumarið hefur að mestu farið í undir- búning afmælistónleikanna og stofnun söngskólans. Það verður því lítið um sumarfrí næstu vikurnar hjá Siggu og fjölskyldu. „Við tókum þó smá forskot á sæluna og eyddum tveimur vikum á Spáni í upphafi sumars. Þessa dagana fer hins vegar mesta orkan í tónleikana. Við ætlum líka að gera þetta svolítið skemmtilegt. Það verða sýnndar myndir og myndbrot á tónleikunum og í and- dyri Háskólabíós verða til sýnis ýmsir munir sem tengjast ferlinum, til dæmis búningar, ljósmyndir og blaðagreinar.“ ■ starri@365.is EITT LAG ENN STÓRAFMÆLI Stórtónleikar verða haldnir í Háskólabíói í júlí í tilefni 50 ára afmælis Siggu Beinteins. Fjöldi góðra gesta syngur með afmælisbarninu. AFMÆLISBARN Sigríður Beinteinsdóttir á þrjátíu ára starfsferil að baki og fagnar fimm- tíu ára afmæli í júlí. MYND/ERNIR FJÖR Í EYJUM Um eitt þúsund fótboltastrákar eru nú mættir til Eyja til að taka þátt í Shell-mótinu. Mótið var sett í gær. Gert er ráð fyrir að um þrjú þúsund manns verði í Eyjum um helgina til að fylgjast með strákunum. ER HAFIN ShopChina ehf | Sími: 7720409 | info@shopchina.is Verð: 330.000kr Hreinsun – slökun – vellíðan Stærð: 150 x 150 x 210 cm
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.