Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 47

Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 47
30. júní 2012 LAUGARDAGUR10 Tokyo sushi vantar öflugan vaktstjóra sem á sér stærri draum en vaktstjórastarf Þekkir þú einhverja kraftmikla og duglega einstak- linga með ríka þjónustulund, sem hafa gaman af fólki og elska sushi? Vaktstjórarnir okkar frábæru á Tokyo sushi eru á leið í háskóla í haust og okkur vantar nýja í þeirra stað. Tokyo vill vaktstjóra sem eru ákveðnir og sterkir einstak- lingar. Slíkt fólk verður ekki vaktstjórar á sushi-stað til frambúðar - það vitum við. Þess vegna viljum við ekki vaktstjóra til framtíðar - heldur ungt og öflugt fólk í 12-18 mánaða vinnu - sem fær frábæra reynslu af rekstri og stjórnun sem reynist þeim vel í háskólanáminu. Ef lýsingin á við um þig, vin þinn, fjölskyldumeðlim eða bara klára starfsmanninn sem þú rakst á um daginn, láttu endilega vita að Tokyo sushi er að leita að viðkomandi. Sendu póst í gegnum Facebook síðuna facebook.com/ tokyosushi eða í tölvupósti á tokyo@tokyo.is Sveitarfélagið Garður - Laus störf Eftirfarandi stöður eru lausar til umsóknar í Gerðaskóla í Sveitar félaginu Garði skólaárið 2012-2013. • Staða sérkennara er laus til umsóknar, um er að ræða fullt starf. Óskað er eftir kennara með sérmenntun í sérkennslu fræðum og/eða reynslu í sérkennslu í grunnskóla. • Stöður deildarstjóra. Um er að ræða tvær 50% stöður með umsjón á yngra og miðstigi. • Hlutastörf í textílmennt og heimilisfræði eru laus til umsóknar. Frekari upplýsingar veitir Skarphéðinn Jónsson skólastjóri í símum 422-7020, 456-3170 og 777-9464. Umsóknum skal skila rafrænt í netfangið: skarphedinn@gerdaskoli.is í síðasta lagi 15. júlí nk. Með umsókn skulu fylgja starfsferilskrá, upplýsingar um menntun og nöfn umsagnaraðila. Í Sveitarfélaginu Garði búa um 1500 manns. Gerðaskóli er heildstæður grunnskóli með um 210 nemendur alls í 10 bekkja- deildum. Öll aðstaða til skólahalds í Garði er til fyrirmyndar. Húsnæði skólans er glæsilegt og er Gerðaskóli vel búinn. Starf forstöðumanns Byggðasafnsins á Garðskaga er laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf frá 1. ágúst n.k. Í starfinu felst: • Ábyrgð á daglegum rekstri Byggðasafnsins • Ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar fyrir safnið • Fagleg umsjón með safninu, varðveislu og uppsetningu muna og sýningahaldi • Að stuðla að rannsóknum á munum og menningarsögu • Umsjón með húsakynnum safnsins Hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfinu – háskólamenntun æskileg • Tungumálakunnátta • Hæfni í mannlegum samskiptum • Samviskusemi og sjálfstæði í vinnubrögðum • Áhugi á sögu byggðarinnar og safnamálum Frekari upplýsingar um starf forstöðumanns Byggðasafnsins á Garðskaga er hægt að fá á bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Garðs. Umsóknarfrestur er til 20. júlí n.k. og sendist umsóknir til skrifstofustjóra, Bæjarskrifstofu Sveitarfélagsins Garðs, Sunnu- braut 4, 250 Garði. Umsóknum má skila rafrænt á netfangið: halla@svgardur.is Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.