Fréttablaðið - 30.06.2012, Page 66
KYNNING − AUGLÝSING Ferðir30. JÚNÍ 2012 LAUGARDAGUR 135
FLESTIR FERÐAMENN
Samkvæmt Alþjóðaferðamálaráðinu
(UNWTO) ferðuðust flestir ferðalangar
til Frakklands árið 2011 eða tæplega 80
milljónir manna. Tölurnar taka einungis
tillit til þeirra sem áttu leið til og frá land-
inu, óháð því hversu lengi þeir stoppuðu
þar. Næsti viðkomustaður á listanum var
Bandaríkin með 62 milljónir ferðamanna.
Kína er númer þrjú og Spánn rétt þar á
eftir með um 57 milljónir ferðamanna.
Af efstu tíu löndunum á listanum verður
mesta fjölgun milli áranna 2010 og 2011
hjá Tyrklandi og Spáni. Engin fækkun
er milli ára hjá efstu löndum á listanum
en Malasía og Mexíkó hækka mjög lítið
milli ára. Af tíu efstu þjóðum eru sex
Evrópulönd.
Þegar skoðað er hvaða þjóðir eyða
mestu á ferðalögum erlendis eru Þjóð-
verjar efstir á listanum, Bandaríkjamenn
í öðru sæti og Kínverjar í því þriðja. Efstu
þrjú löndin á listanum skera sig nokkuð
úr hvaða varðar eyðslu en íbúar næstu
landa á listanum eyða mun minna.
Númer fjögur á listanum eru Bretar og
þar á eftir Frakkar.
Sólarströndin Ríminí á Ítalíu virðist aftur orðinn vinsæll sumarleyfis-
staður hjá Svíum eftir nokkurra ára hlé. Frá Ríminí er stutt í hið fallega
Toskana-hérað, Flórens og fleiri vin-
sæla staði. Sömuleiðis er stutt að fara
til Feneyja.
Ríminí-ströndin er tveggja mílna
löng og býður upp á 200 mismunandi
strandstaði sem eru einkareknir og
bjóða upp á ýmsa afþreyingu fyrir
ferðamenn. Ströndin hefur verið vin-
sæl hjá fjölskyldufólki allt frá árinu
1960. Að auki er næturlífið fjölskrúð-
ugt og margir góðir veitingastaðir eru við ströndina.
Íslendingar fóru mikið til Ríminí á árum áður og ströndin er enn
í miklu uppáhaldi hjá Ítalíuvinum. Ferðaskrifstofur bjóða ekki ferð-
ir þangað í sumar en auðvelt er að fara á eigin vegum. Mörg góð hótel
eru á Ríminí.
Ríminí sækir í sig veðrið
Stutt er til Feneyja frá Ríminí
Kórstjóri Kvennakórs Reykja-víkur, Ágota Joó, er frá Ung-verjalandi. Hún og maður
hennar, Vilberg Viggósson, reka
Tónskólann DoReMí og fóru fyrir
tveimur árum með nemend-
ur skólans í ferð til
Ungverjalands. Ferð-
in var svo vel heppn-
uð að ákveðið var að
endurtaka leik inn
með kórnum. „Það
var ákveðið strax fyrir
tveimur árum að við
myndum fara í þessa
ferð. Aðalástæðan
fyrir ferðinni var sú
að Ágotu langaði til að
sýna okkur í kórnum
landið sitt,“ segir Kol-
brún Halldórsdóttir,
meðlimur í kórnum.
Kvennakórinn hélt
t venna tónleika í
ferðinni, eina í borginni Szeged
og aðra í Vác. „Við erum í kór af
ástæðu, við viljum alltaf vera að
syngja og við sungum mikið og
hátt í þessari ferð. Tónleikarnir
í Szeged voru hápunktur ferðar-
innar. Þeir voru haldnir úti í ráð-
húsgarði og ungverskur kvenna-
kór söng með okkur tvö lög,
annað á ungversku. Við fengum
frábærar viðtökur og góða dóma.
Allir voru svo glaðir og töluðu
vel um okkur. Kór-
inn bauð okkur svo
í kvöldmat eftir tón-
leikana. Ferðin var
ótrúlega vel skipu-
lögð og gert var vel
við okkur í mat og
drykk. Einn daginn
bauð mamma Ágotu
okkur í mat í hádeg-
inu og svo Ágota sjálf
og fjölskylda hennar
um kvöldið. Þau eiga
hús í Szeged og þar
var skellt upp garð-
veislu sem var mjög
skemmtileg,“ segir
Kolbrún.
Síðasta daginn í Szeged, þann
16. maí, tók hópurinn þátt í
Kvennahlaupinu. „Það var búið
að tala við ÍSÍ og búið að skrá
hópinn þannig að við fengum
boli sem við hlupum í. Kvenna-
kór verður að taka þátt í Kvenna-
hlaupi þó hann sé í Ungverja-
landi,“ segir hún.
Eftir að hafa verið í Szeged í
nokkra daga hélt hópurinn til
Búdapest þar sem meðal ann-
ars var farið í siglingu á Dóná.
Seinni tónleikarnir voru haldnir
á sjálfan þjóðhátíðardaginn, 17.
júní, í Vác, borg sem er fjörutíu
kílómetra fyrir utan Búdapest, og
gengu þeir mjög vel.
Ferðin endaði svo á spa-hót-
eli við Balaton-vatn. „Þar vorum
við í nuddi, dekri og sólbaði í
tvo heila daga. Við fengum gott
veður allan tímann sem við
vorum í landinu og um leið og
við lentum heima var strax farið
að spá í hvenær við gætum farið
aftur í svona ferð.“
Kvennakór í Kvennahlaupi
í Szeged í Ungverjalandi
Kvennakór Reykjavíkur fór á dögunum í tíu daga tónleikaferð til Ungverjalands. Tilgangurinn var að skemmta sér og skoða landið.
Kolbrún Halldórsdóttir
Kvennakór Reykjavíkur
Kvennakór Reykjavíkur hélt útitónleika í bakgarði ráðhússins í Szeged. Tónleikarnir voru mjög vel heppnaðir og skemmtilegir.
Á FERÐINNI
UM LANDIÐ
BYLGJULESTIN Í SUMAR
ÆVINTÝRAEYJAN MEÐ
HEMMA GUNN OG SVANSÍ
Á laugardaginn verður Ævintýraeyjan með
Hemma Gunn og Svansí á Bylgjunni. Boðið
verður upp á frábær tónlistaratriði og
uppákomur fyrir alla fjölskylduna.
Vertu með Bylgjunni og Olís um helgina.
MUGISON
MAGNÚS OG ELÍSA
BET
YLFA MIST
VIÐ VERÐUM
Í BOLUNGARVÍK
UM HELGINA
Bylgjan á
Bolungarvík
9. JÚNÍ Kótelettan á Selfossi
16. JÚNÍ Sólstöðuhátíð Víkinga á
Fjörukránni í Hafnarfirði
23. JÚNÍ Hveragerði - Blóm í bæ
30. JÚNÍ Bylgjan í Bolungarvík
7. JÚLÍ Goslokahátíð í
Vestmannaeyjum
14. JÚLÍ Bylgjuhátíð á Flúðum
21. JÚLÍ Húnavaka á Blönduósi
28. JÚLÍ Síldardagar á Siglufirði og
Franskir dagar á Fáskrúðsfirði
11. ÁGÚST Fiskidagurinn mikli á Dalvík
18. ÁGÚST Menningarnótt í Reykjavík
BYLGJULESTIN ÞAKKAR Hvergerðingum frábærar viðtökur um síðustu helgi. Nú um
helgina verður Bylgjulestin í Bolungarvík.