Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 71

Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 71
30. júní 2012 LAUGARDAGUR28 1. Eyjasigling Hægt er að velja um nokkr- ar gerðir af siglingu um Vestmannaeyjar en það er nánast skylda að bregða sér í eyjasiglingu fyrir ferða- langa í Eyjum. Á sjónum er bæði hægt að njóta þess að skoða eyjarnar og náttúr- una frá öðru sjónarhorni, fylgjast með fuglum, hvöl- um og ekki síst er einstak- lega gaman að skoða hellana sem finnast allt um kring. 2. Sund og golf Fyrir nokkrum árum var útisvæði sundlaugarinnar í Vestmannaeyjum allt end- urnýjað og nú er þar afar glæsileg aðstaða, renni- brautir, klifurveggur og heitir pottar. Golfvöllurinn þykir svo með þeim betri á landinu en þess má geta að hann á sér afar langa sögu, var stofnaður árið 1938. 3. Hjólað um Heimaey Það er vissulega lítið mál að taka bílinn með út í Eyjar og förin með Herjólfi hefur styst svo um munar eftir að Landeyjahöfn var tekin í notkun. Hins vegar er gaman að njóta Heimaeyj- ar á hjóli. Reiðhjól er hægt að leigja á tveimur stöðum í bænum, við Eymundsson og hjá Ribsafari. 4. Skansinn Virki Vestmannaeyinga, Skansinn, gegnir sögulegu hlutverki í Eyjum. Það var endurbyggt eftir Tyrkja- ránið en á þessum slóðum voru mannvirki og verslun- arhús sem fóru undir hraun í gosinu 1973. Í dag er þar fallegt útivistarsvæði þar sem sjá má Landlyst, annað elsta hús Vestmannaeyinga sem nú hýsir safn lækninga- áhalda, norsku stafkirkjuna og gamla hafnargarðinn Hringkersgarð. 5. Herjólfsdalur Landsmenn þekkja Herj- ólfsdal flestir ef ekki allir út af Þjóðhátíð, hinni árlegu hátíð sem haldin er þar um verslunarmannahelgina. Þangað er hins vegar til- valið að fara allt sumarið, tjalda og njóta lífsins í dal sem reyndar er hvorki stór né djúpur en á sér mikla sögu sem útivistarsvæði Eyjamanna. 6. Gönguferðir Fjölmargar skemmtilegar gönguferðir er að finna í Vestmannaeyjum. Ómiss- andi er að fara upp á Heima- klett sem er ekki erfið leið en þó verður að fara með varúð upp á fjallið. Þægi- leg ganga er á Eldfell og þá er hægt að ganga Haugana sem eru sunnan við Eldfell- ið og gengið út á nýja hraun- ið eftir göngustíg og þaðan inn í Páskahelli. Hellirinn er nokkrir metrar á lengd og göngustígurinn gengur til norðurs úr hellinum þar sem hægt er að ganga með Eld- fellinu til norðurs og svo til vesturs, þar til hringurinn er kominn. Þá ber þess að geta að göngustígur er með öllum Hamrinum vestast á Heimaey, stígurinn liggur alveg suður í Klauf og þaðan áfram suður á Stórhöfða. Heillandi heim- ur úti í Eyjum Ferðalangar verða ekki sviknir af heimsókn út í Vestmannaeyjar, fögur náttúra og fjölbreytt afþreying bíður ferðalanga sem koma í eyjarnar. Fréttablaðið sækir Eyjar heim. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR B. FRIÐRIKSSON Matur Veitingahúsaflóran hefur blómstrað í Vestmannaeyjum undanfarin ár. Senn líður að því að Slippurinn verði opnaður en svo nefnist veitingastaður sem verður opnaður í næstu viku í gamla Magnahúsinu. Hægt er að fylgjast með framkvæmdum og fréttum á Facebook- síðu staðarins. Þar fyrir utan eru fjölmargir stærri og smærri veitingastaðir í Vestmannaeyjum, sjá http://www. vestmannaeyjar.is/is/ page/veitingastadir. Söfn Nokkur áhugaverð söfn eru í Eyjum. Fyrst skal nefna Nátt- úrugripasafnið þar sem sjá má lifandi fiska. Surtseyjarstofa er þar líka og þar má sjá hvernig eyjan varð til í gosinu sem varði frá 1963-1967. Byggðasafn er í Vestmannaeyjum og bókasafn, og í fram- tíðinni er áætlað að hafa Eldheima þar sem grafin verða upp hús og byggt yfir þau. Nú þegar er búið að moka frá nokkrum húsum og hægt að virða þau fyrir sér. Viðburðir Um næstu helgi verður Goslokahátíð haldin í Eyjum. Hátíðin hefst raunar fimmtudaginn 5. júlí. Mikið er um að vera alla hátíðardagana eins og sjá má á síðunni www.vest- mannaeyjar.is. Fyrir utan Goslokahátíð verður hin lands- þekkta Þjóðhátíð haldin um verslunar- mannahelgina og þá er bryggju- dagur ÍBV haldinn 21. júlí. Bylgjulestin Bylgjulestin verður á ferðinni í sumar eins og undanfarin sumur. Þann 7. júlí næst- komandi verður hún í Vestmannaeyjum. Hemmi Gunn er lestarstjóri Bylgju- lestarinnar og honum við hlið er hin fjöruga Svansí. Þau stýra þættinum Ævintýra- eyjunni á Bylgjunni á laugardögum milli 13 og 16. Í Bylgjulestinni er hljóðnemum beint að fólkinu sem býr í bæjunum, fólkinu sem er að ferðast um landið og kíkir í heimsókn, og reynt að koma stemning- unni áfram til allra hinna sem eiga ekki heimangengt. SÆLKERAR OG SÖGUFRÓÐIR 2 4 6 1 3 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.