Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 87

Fréttablaðið - 30.06.2012, Síða 87
30. júní 2012 LAUGARDAGUR44 sport@frettabladid.is Kolbeinn Tumi Daðason íþróttafréttamaður JÓN MARGEIR SVERRISSON , sundkappi úr Fjölni, vann sín önnur gullverðlaun á Opna þýska meistaramótinu í sundi í gær. Jón Margeir kom fyrstur í mark í 800 metra skriðsundi í gær og 200 metra skriðsundi í fyrradag. Jón Margeir keppir í S14 flokki þroskahamlaðra en hann setti Íslandsmet í báðum greinum. Tími hans í 800 metra skriðsundinu er sá besti sem náðst hefur í heiminum. 1-0 Ian Jeffs (75.), 2-0 Tonny Mawejje (79.) Skot (á mark): 12(6) - 6(2) Varin skot: Abel 1 - Ásgeir Þór 4 ÍBV (4-3-3): Abel Dhaira 7 - George Baldcock 6, Brynjar Gauti Guðjónsson 8*, Rasmus Christian- sen 7, Matt Garner 6 - Víðir Þorvarðarson 7 (63. Ian Jeffs 7), Guðmundur Þórarinsson 7, Þórarnin Ingi Valdimarsson 7 - Tonny Mawejje 7, Tryggvi Guðmundsson 7, Christian Olsen 6 (86. Gunnar Már Guðmundsson -) VALUR (4-4-2): Ásgeir Þór Magnússon 6 - Brynjar Kristmundsson 5, Atli Sveinn Þórarinsson 6, Hall- dór Kristinn Halldórsson 6, Úlfar Hrafn Pálsson 6 - Matthías Guðmundsson 5 (86. Andri Fannar Stef- ánsson -), Ásgeir Þór Ingólfsson 5, Guðjón Pétur Lýðsson 6, Rúnar Már Sigurjónsson 6 - Kolbeinn Kárason 6, Hörður Sveinsson 5 (68. Kristinn Freyr Sigurðsson 5) * MAÐUR LEIKSINS Hásteinsvöllur, áhorf.: 603 Erlendur Eiríksson (7) 2-0 SKOTFIMI „Ég átti í rauninni ekki lengur von á þessu. Ég bjóst við svari í síðasta lagi fyrir einni til tveimur vikum. Ég vissi að það væri pínu möguleiki en ekki mikill. Ég var eiginlega búinn að afskrifa þetta,“ segir Ásgeir en gjaldkeri Skotíþróttasambandsins tilkynnti honum tíðindin í símtali á miðvikudag. „Ég fékk miklu meira sjokk en ég átti von á. Ég hélt ég yrði pollró- legur við þessar fréttir en þetta varð allt saman miklu stærra eftir að maður komst inn,“ segir Ásgeir sem ætlaði ásamt vini sínum í New York-reisu þar sem bróðir hans býr. „Það frestast um nokkrar vikur,“ segir Ásgeir. Enn þá í grunnskólanum Ásgeir hafði áður náð Ólympíulágmarki í loftskammbyssu sem tryggði honum þó ekki sæti á leikunum þar sem fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Eftir að honum var úthlutað sætinu í frjálsri skamm- byssu öðlast hann hins vegar einnig þátttöku- rétt í loftskamm- byssu. Ásgeir segist hafa haldið sér vel við undanfarnar vikur og hafa sem betur fer ekki verið búinn að taka sér æfingahlé. „Æfingarnar undanfar- ið hafa verið aðeins styttri til að nýta góða veðrið. Ég æfi kannski meira núna, verð harðari við mig,“ sagði Ásgeir sem segir Ólympíu- leikana verða frábær reynsla fyrir sig. „Ég hugsa þetta svo- lítið lengra fram í tím- ann en þessa Ólymp- íuleika. Ég á langt í land með að verða jafnreynslu- mikill og helstu kempurnar í dag,“ segir Ásgeir en flestir keppendur í skotfimi á leikunum eru atvinnu- menn að hans sögn. „Þetta er svo rosalega mikið reynslusport. Ég er að keppa við menn sem hafa verið að skjóta við bestu aðstæður í tugi ára,“ segir Ásgeir sem segist vera rétt að byrja. Hann vill þó ekki ganga svo langt að segja að hann sé á leik- skólaaldri í skotfiminni. „Ég er að minnsta kosti ennþá í grunnskólanum,“ segir Ásgeir hlæjandi. - ktd New York-ferðinni frestað Skotfimikappanum Ásgeiri Sigurgeirssyni úr Skotfélagi Reykjavíkur var í vik- unni úthlutað sæti í frjálsri skammbyssu á Ólympíuleikunum í London. Ásgeir verður fyrsti Íslendingurinn sem keppir í skammbyssugrein á leikunum. RÉTT AÐ BYRJA Ásgeir er spenntur fyrir Ólympíuleikunum en hugsar þó lengra fram í tímann. Hann er 27 ára sem hann segir ungan aldur í íþróttinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Að spila fyrir íslenska landsliðið í handknatt- leik er draumur. Að upplifa stoltið og pressuna sem fylgir bláa búningnum, og stundum þeim rauða, sem íslenska þjóðin sameinast svo gjarnan um. Þvílíkur heiður og ánægja sem því hlýtur að fylgja. Þegar vel gengur. Rúnar Kárason var farinn að venjast tilfinn- ingunni. Hægri skyttan stóð sig vel í stærstu verkefnum landsliðsins á árinu, Evrópumótinu í Serbíu og umspilsleikjunum um sæti á Ólympíuleikunum í London. Fram undan leikir gegn Hollandi um laust sæti á HM í janúar. „Ef ég fæ tækifærið á móti Hollandi þarf ég klárlega að nýta það enda fer hver að verða síðastur að tryggja sæti sitt í Ólympíuhópnum,“ sagði stórskyttan nokkrum dögum áður en hörmungarnar dundu yfir. Slæm lending, slitið krossband og fjarvera frá handboltavellinum í 6-8 mánuði. „Það væri algjör draumur að fá að spila á Ólympíuleikum með þessum snillingum hérna,“ hafði Rúnar sagt en ljóst er að sá draumur verður ekki að veruleika fyrr en að minnst rúmum fjórum árum liðnum. Eftir tvo sigra á Hollendingum hefja strákarn- ir okkar æfingar fyrir Ólympíuleikana á mánu- daginn. Æft verður tvisvar á dag og spilaðir æfingaleikir. Allt á að vera klárt þegar blásið verður til leiks í London. Þegar upp verður staðið hafa Ólympíufararnir varið átta vikum af sumarfríi sínu með landsliðinu. Fjárhagslegur ávinningur strákanna er enginn og áhættan sem tekin er, með stífum æfingum þegar líkaminn öskrar á hvíld að loknu löngu tímabili, er mikil. Líkaminn er atvinnutæki íþrótta- mannsins. Frammistaða Rúnars með Bergischer HC á afstaðinni leiktíð fór ekki fram hjá forráðamönnum Grosswallstadt sem nýverið gengu frá samningi við Rúnar. „Ég er í mínu besta formi,“ sagði Framarinn 24 ára rétt áður en krossbandið slitnaði. Sagan segir að Rúnar geti jafnað sig á sex til átta mán- uðum. Hvenær og hvort snerpan, finturnar og skotvissan koma aftur er ómögulegt að segja. Allt fyrir land og þjóð. Áhætta fyrir land og þjóð FÓTBOLTI Heims- og Evrópumeist- arar Spánverja geta náð sögu- legri þrennu þegar þeir mæta Ítölum í úrslitaleik EM á morgun en engri Evrópuþjóð hefur tekist að vinna þrjú stórmót í röð. Þjóð- verjar og Frakkar áttu möguleika á þessu á sínum tíma en tókst ekki að klára þrennuna. Þýska- land tapaði í vítakeppni fyrir Tékkóslóvakíu í úrslitaleiknum á EM 1976 eftir að hafa unnið EM 1972 og HM 1974 en Frakkar duttu út í riðlakeppni á HM 2002 eftir að hafa unnið HM 1998 og EM 2000. Spánn og Ítalía mættust í fyrsta leik sínum í Evrópumótinu en Cesc Fàbregas tryggði þá spænska liðinu 1-1 jafntefli eftir að Antonio Di Natale hafði komið Ítölum yfir. Ítalar stilltu þá upp í kerfinu 3-5-2 en hafa spilað 4-3- 1-2 kerfið í síðustu leikjum og því er von á ólíkum leik en fyrir þremur vikum. Spánverjar hafa unnið alla þrjá úrslitaleiki sína á stórmótum (EM 1964, EM 2008 og HM 2010) en það eru liðin 44 ár síðan að Ítalir unnu sinn fyrsta og eina Evrópu- titil 1968. Ítalir töpuðu síðan fyrir Frökkum í úrslitaleik EM 2000. Leikurinn fer fram á Ólympíu- leikvanginum í Kiev og hefst klukkan 18.45 á morgun. - óój Úrslitaleikur EM er á morgun: Endurskrifar Spánn söguna? MEISTRARAR 2008 Casillas getur lyft bikarnum aftur á morgun. NORDICPHOTOS/GETTY Borgunarbikar kvenna Höttur - Valur 0-7 Mörk Vals: Hildur Antonsdóttir 2, Dóra María Lárusdóttir, Elín Metta Jensen, Svava Rós Guð- mundsdóttir, Rakel Logad. og Dagný Brynjarsd. KR - HK/Víkingur 5-1 Mörk KR: Katelyn Ruhe 2, Agnes Þóra Árnadóttir, Liz Carroll, Lijla Dögg Valþórsdóttir Mark HK/Víkings: Árnína Björt Heimisdóttir Fylkir - Haukar 12-0 Mörk Fylkis: Anna Björg Björnsdóttir 2, Lovísa Sól- veig Erlingsdóttir 2, Margrét Björg Ástvaldsdóttir 2, Rúna Sif Stefánsdóttir 2, Rut Kristjánsdóttir, Eva Núra Abrahamsdóttir, Hrafnhildur Hekla Eiríks- dóttir, Hanna María Jóhannsdóttir. Selfoss - FH 1-6 Mark Selfoss: Katrín Ýr Friðgeirsdóttir Mörk FH: Bryndís Jóhannesdóttir 3, Sigrún Ella Einarsdóttir 2, Guðrún Bentína Frímannsdóttir. Leikir dagsins klukkan 14: Keflavík - Þór/KA Kl.14 Afturelding - ÍA Kl.14 Stjarnan - Fjölnir Kl.14 ÚRSLIT FÓTBOLTI ÍBV stimplaði sig inn í toppbaráttuna í Pepsi-deild karla í kvöld með 2-0 sigri gegn Val á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Þetta var fjórði sigurleikur ÍBV í röð og liðið var mjög sannfærandi gegn Valsmönnum. Varamaður- inn Ian Jeffs, sem hóf leik á vara- mannabekknum vegna veikinda, náði að brjóta varnarmúr Vals niður með marki á 75. mínútu og aðeins fjórum mínútum síðar tryggði Tonny Mawejje sigurinn með flottu langskoti. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru til alls lík- legir í fyrri hálfleik – og þá sér- staklega fyrstu tuttugu mínúturn- ar. Liðið lék að þessu sinni með tvo framherja og Kolbeinn Kára- son var alltaf líklegur til þess að skora. Hann átti frábært skot á 39. mínútu sem Abel Dharia, mark- vörður ÍBV, varði glæsilega. „Ég taldi að boltinn væri að fara efst í markhornið en Abel er með langar hendur og stekkur hátt, hann varði þetta vel,“ sagði Kol- beinn eftir leikinn. „Það er fín stemning í liðinu þrátt fyrir erfið úrslit að undan- förnu og við vitum að það er hægt að gera betur,“ bætti hann við. „Varnarleikur liðsins er alltaf að verða betri og betri. Ég man eftir tveimur færum sem Valsmenn fengu gegn okkur en annars var engin hætta. Við erum á góðu róli núna eftir skelfilega byrjun en það er nóg eftir af þessu móti. Það er ekki langt síðan við vorum næst neðstir með tvö stig og það getur margt gerst á næstu vikum,“ sagði Brynjar Gauti Guðjónsson, varn- armaður ÍBV, sem átti fínan leik í hjarta varnarinnar. Með sigrinum lyftu Eyjamenn sér upp í þriðja sæti Pepsi-deild- arinnar en hafa þó leikið einum leik meira en önnur lið. ÍBV hefur 14 stig, jafnmörg og Skagamenn en mun betra markahlutfall. - seth Tvö mörk á fjórum mínútum seint í síðari hálfleik tryggðu Eyjamönnum 2-0 sigur á Valsmönnum í Eyjum: Eyjamenn halda áfram að minna á sig INN Í LIÐIÐ Á SÍÐUSTU STUNDU Tonny Mawejje kom inn í byrjunarliðið á síðustu stundu vegna veikinda Ian Jeffs og skoraði sitt annað mark í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HANDBOLTI Handboltamaðurinn Ólafur Guðmundsson hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið IFK Kristianstad. Ólafur kemur frá danska stórliðinu AG Kaup- mannahöfn en hann var í láni hjá Nordsjælland á síðustu leiktíð. „Hann hefur með frammistöðu sinni með Nordsjælland sýnt að við höfðum rétt fyrir okkur um hæfileika hans. Samkeppnin hjá AGK er svo hörð að hann hefði ekki fengið nægan leiktíma til þess að blómstra,“ segir Sören Coldin íþróttastjóri AGK á heima- síðu félagsins. AGK hefur þó tryggt sér kaup- réttinn á Ólafi sem félagið hyggst notfæra sér haldi hann áfram að taka framförum. Ólafur gekkst undir aðgerð á öxl í apríl og hefur verið frá æfingum síðan. - ktd Vistaskipti Ólafs Guðmunds: Meiri spiltími hjá Kristianstad HAFNFIRÐINGUR Ólafur varð Íslands- meistari með FH 2001. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.