Fréttablaðið - 02.08.2012, Side 66
2. ágúst 2012 FIMMTUDAGUR58
golfogveidi@frettabladid.is
hagfræði eða tölvunarfræði,“
segir Haraldur Franklín. Hann
er þó ekki eini Íslendingurinn
sem mun spila golf fyrir há-
skólann í Mississippi því Axel
Bóasson, sem sigraði á Íslands-
mótinu í höggleik í fyrra, er
einnig nemandi þar.
Haraldur Franklín hefur síðan
hug á því að reyna fyrir sér sem
atvinnukylfingur að námi loknu.
„Það fer samt allt eftir því
hvernig mér gengur. Eins og
staðan er núna stefni ég á
atvinnumennsku eftir þrjú til
fjögur ár en það er mikil sam-
keppni og ekki allir sem komast
að. Ef ég kemst ekki að geri ég
bara eitthvað annað.“
kristjan@frettabladid.is
Það er óhætt að segja að
Haraldur Franklín Magnús
sé besti kylfingur landsins
um þessar mundir. Hann
tryggði sér Íslandsmeist-
aratitilinn í höggleik um
síðustu helgi, er Íslands-
meistari í holukeppni og
ríkjandi klúbbmeistari í
Golfklúbbi Reykjavíkur.
„Það kom mér mjög á óvart að
ég skyldi vinna alla þessa titla
á þessu ári. Ég stefndi samt á að
vinna höggleikinn enda hefur það
verið draumur minn í fjögur ár,“
segir Haraldur Franklín Magnús,
nýkrýndur Íslandsmeistari í
höggleik.
„Ég byrjaði að fikta við golfið
þegar ég var tólf ára en eftir að
ég hætti í fótboltanum, fimm-
tán ára, fór ég hundrað prósent í
golfið,“ segir Haraldur Franklín
sem nú er 21 árs. Kylfingurinn
knái segist hafa verið sæmilega
liðtækur í boltanum en hann
hafi eytt svo miklum tíma á golf-
vellinum í Grafarholti að það hafi
farið að bitna á honum. „Ég bý í
Vesturbænum en var alltaf uppi
á golfvelli. Þegar ég datt svo út
úr liðinu ákvað ég að fara beint
í golfið.“
Haraldur Franklín er sá eini
úr fjölskyldunni sinni sem
leggur stund á golfíþróttina.
Hann komst fyrst í kynni við
íþróttina þegar hann fór í golf-
kennslu hjá Magnúsi Birgissyni
þegar hann var í sumarbústað hjá
afa sínum á Snæfellsnesi. „Það
hjálpaði mikið til. Svo var skóla-
félagi minn, Ólafur Axel, líka að
fikta við það svo það hjálpaði til,“
segir Haraldur Franklín. Fjöl-
skylda hans hefur þó stutt vel við
bakið á honum og oftar en ekki er
karl faðir hans, Kristján Frank-
lín Magnús leikari, kylfusveinn
fyrir hann.
Haraldur náði ekki eingöngu
að landa sigri á Íslandsmótinu
í höggleik heldur sigraði hann
líka í holukeppninni og er klúbb-
meistari hjá Golfklúbbi Reykja-
víkur. Hann er sem stendur í
efsta sæti Eimskipa-mótaraðar-
innar, hefur þúsund stiga forystu,
en missir því miður af tveimur
næstu mótum þar sem hann
verður farinn til náms í Miss-
issippi í Bandaríkjunum. Hann
gæti því misst af þeim titli.
„Ég kláraði MR og er búinn
með eina önn í verkfræði í
Háskólanum í Reykjavík en ætla
í eitthvað allt annað nám í Banda-
ríkjunum. Núna er ég að pæla í
Eins og staðan er
núna stefni ég á
atvinnumennsku eftir þrjú
til fjögur ár en það er mikil
samkeppni.
HARALDUR FRANKLÍN MAGNÚS
ÍSLANDSMEISTARI Í HÖGGLEIK
„Haraldur Franklín er drifinn áfram af sigurvilja – hann
er sigurvegari út í gegn,“ segir Brynjar Eldon
Geirsson, íþróttastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur
og aðalþjálfari hins nýkrýnda Íslandsmeistara í
höggleik. „Hann er virkilega klókur leikmaður,
góður tæknilega og er virkilega gáfaður golfari
– ef maður má orða það svo. Hann er alltaf
bestur þegar mikið liggur við.“
Brynjar segir að árangur Haralds Franklíns í
sumar hafi ekki komið sér á óvart. „Ég átti alveg
eins von á þessu. Við erum með nokkra leik-
menn í Golfklúbbi Reykjavíkur, sem eru
á þessu kaliberi, sem ég er búinn að
vera bíða eftir að myndu blómstra.
Þetta hefur verið frábært ár hjá
Haraldi og hann getur fullkomnað
það með því að vinna sveita-
keppnina með sinni sveit eftir
tvær vikur. Íslenskur kylfingur
getur varla gert betur. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir gerði
þetta á síðasta ári og nú getur hann jafnað hana.“
Brynjar Eldon telur að Haraldur Franklín eigi góða
möguleika á að fara út í atvinnumennskuna. „Það
er samt svo margt sem spilar inn í. Hann þarf að
vera rétt tengdur, með rétta fólkið í kringum sig
og þess háttar. En hann hefur klárlega getuna og
hausinn í atvinnumennskuna – alveg klárlega,“
segir Brynjar. „En hann er ekki bara skynsamur í
golfinu því hann vill klára skólann og síðan taka
skrefið. En hann sér það fljótt í háskólagolfinu
hvort hann eigi erindi í atvinnugolfið því ef
hann vinnur ekki mót úti eða verður ekki
meðal þeirra efstu á hann ekkert erindi
þangað. Haraldur er þó jarðbundinn
og ætlar sér að taka þessi fjögur ár í
háskólanum og sjá svo til.“
Fjögurra ára draumur rættist
HARALDUR FRANKLÍN MAGNÚS Íslandsmeistarinn í höggleik er á leið til Bandaríkjanna þar sem hann ætlar í háskólanám í
Mississippi og spila í háskólagolfinu. MYND/STEFÁN GARÐARSSON
Tiger Woods getur komist í
efsta sæti heimslistans í golfi
með sigri á Bridgestone Invita-
tional mótinu,
sem er hluti af
heimsmótaröð-
inni, sem hefst
á Firestone-
vellinum í Ohio
í dag.
Bestu kylf-
ingar heims,
75 talsins, eru
skráðir til leiks
en völlurinn
þykir afar erfiður. Verðlauna-
féð er heldur ekkert slor, rúmur
milljarður íslenskra króna.
Tiger hefur ekki verið í topp-
sæti heimslistans í ein tvö
ár. Hann þykir þó líklegur til
afreka á mótinu um helgina en
hann hefur unnið sjö sinnum
af þeim tólf skiptum sem hann
hefur tekið þátt.
Heimsmótaröðin í golfi:
Tiger getur náð
toppsætinu
KORPAN Korpúlfsstaðavöllur verður 27
holur á næsta ári og er stefnt að því
að leika Íslandsmótið í höggleik á nýja
vellinum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Íslandsmótið í höggleik fer fram
á Korpúlfsstaðavelli á næsta
ári en Golfklúbbur Reykja-
víkur mun hafa veg og vanda af
mótinu.
Síðustu þrjú ár hefur Íslands-
mótið verið haldið utan höfuð-
borgarsvæðisins.
Korpúlfsstaðavöllur mun opna
27 holu golfvöll á næsta ári og
er stefnt að því að leika á nýja
vellinum á Íslandsmótinu.
Mótið átti upphaflega að fara
fram á Jaðarsvelli á Akureyri
en vegna breytinga á vellinum
þurftu þeir að draga sig í hlé.
Íslandsmótið í höggleik fór síð-
ast fram á höfuðborgar svæðinu
í Grafarholtinu. Golfklúbbur
Kópavogs- og Garðabæjar held-
ur mótið árið 2014 í Leirdalnum.
GR með Íslandsmótið 2013:
Höggleikurinn
næst í Korpunni
Haraldur er sigurvegari út í gegn
97 KEPPENDUR voru í gær skráðir til leiks á Íslandsmót eldri kylfinga sem fram fer á Hólmsvelli í Keflavík. Mótið hefst í dag og stendur til 4. ágúst.
TIGER WOODS