Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 6

Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 6
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR6 KJÖRKASSINN ÚTSALA STÓRLÆKKAÐ VERÐ Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is ÆGIR TJALDVA GN* + fortjald og yfir breiðsla Útsöluverð kr. 890 .000. *Leiguvagn árg. 2012 Kennsla hefst 13. september LÖGREGLUMÁL Steinar Aubertsson, einn fimm Íslendinga sem hand- teknir voru í Amsterdam fyrir tveimur vikum vegna ásakana um mansal, hefur kært konuna sem hafði ásakanirnar í frammi fyrir meiðyrði og rangar sakargiftir. Steinar situr enn í fangelsi í Amsterdam, einn fimmmenning- anna, og bíður þess að vera fram- seldur til Íslands vegna fíkniefna- máls sem hér er rekið. Hann sendi frá sér yfirlýsingu vegna ásakana konunnar í gær. Fyrst var greint frá málinu í DV í fyrradag. Þar var birt nafnlaust viðtal við konuna, sem fullyrti að hún hefði heyrt á tal mannanna þar sem fram hefði komið að þeir hygðust selja hana mansali til Brasilíu. Fólkinu var öllu sleppt, að Steinari undanskildum, þar sem engar sannanir þóttu vera fyrir hendi sem renndu stoðum undir ásakanir konunnar. „Mansal er grafalvarlegur glæpur. Það að vera ranglega ásakaður um slíkt er til þess fallið að hafa slæm áhrif á mannorð þess sem fyrir verður og þeirra sem eru honum nákomnir,“ segir í yfirlýsingu Steinars. „Íslenskir fjölmiðlar hafa, í stað þess að leitast við að leiða í ljós hið rétta í þessu máli, ákveðið að gera sér fréttamat úr dylgjum sem eru eins fjarri sann leikanum og nokkuð getur verið,“ segir Steinar einnig, og kveðst ætla að leita réttar síns gagnvart íslenskum fjölmiðlum sem hafa fjallað um málið. - sh Rúmlega þrítug íslensk kona kærð fyrir meiðyrði og rangar sakargiftir: Steinar segir mansalssögu tómt rugl Í FANGELSI Steinar Aubertsson situr í fangelsi í Hollandi og bíður þess að verða framseldur til Íslands. VEIÐI Veiðiréttarhafar í Hvítá og Ölfusá hafa stundað netaveiðar sínar síðan 2006 án þess að skila inn lögboðinni nýtingaráætlun um veiðifyrirkomulag. Það sama á við um netaveiði í Þjórsá, en nær allur netaveiddur lax kemur úr þessum tveimur vatnsföllum á hverju ári. Þetta staðfestir Árni Ísaksson, forstöðumaður lax- og silungs- veiðisviðs Fiskistofu. „Það var skilað nýtingaráætlun í fyrra en þar var ekki fjallað um neta- veiðina,“ segir Árni og vísar ti l nýtingaráætlunar Veiði- félags Árnesinga (VÁ), en undir merkjum VÁ starfa deildir ein- stakra veiðisvæða þar sem stang- veiði er stunduð. Þær hafa skilað inn tilskildum áætlunum síðan það ákvæði var fest í lög árið 2006. „Það er auðvitað vitað nokkurn veginn hvernig netabændur standa að veiðunum; veiðifélagið gerir um það samþykktir hvernig þeir vinna þetta. En það hefur ekki verið formlega skilað inn nýtingar- áætlun fyrir netaveiðina, það er rétt,” segir Árni. Spurður hvort netaveiðin sé ekki þar með ólögleg, segist Árni ekkert vilja segja til um, en viður- kennir að án undantekningar eigi allir að skila inn nýtingaráætlun. Spurður um viðurlög segir Árni að lítið fari fyrir þeim í lögunum en þau séu í endurskoðun. Lögin um lax- og silungsveiði virðast vera nokkuð skýr hvað varðar skilaskyldu á nýtingar- áætlunum, en í sex greinum laganna segir að sinni veiðifélög eða veiðiréttarhafar „ekki þessari skyldu sinni getur Landbúnaðar- stofnun [Fiskistofa], að eigin frum- kvæði, sett slíkar reglur“. Nýtingaráætlun skal skila til Fiskistofu sem staðfestir hana formlega að fenginni umsögn Veiðimálastofnunar (VMST). Sigurður Guðjónsson, forstjóri VMST, segir að stofnunin hafi hvatt VÁ til að seinka netaveiðinni til að hlífa stórlaxi. „Þeir hafa aðeins hreyft sig í þá átt en það má gera betur.“ Spurður hvort ekki væri eðli- legt að setja kvóta á neta veiðar, eða hvort slíkt sé gerlegt, segir Sigurður að grunnreglan í lögunum sé að veiðar úr náttúru- legum stofnum skuli vera sjálf- bærar. „Það eru til meðöl til að halda sókninni niðri, eins og það birtist í nýtingaráætlunum; að stórlaxi sé hlíft sem og svæðum vegna hrygningar, kvótasetning og að sleppa veiddum laxi.“ Ekki náðist í formann VÁ við vinnslu fréttarinnar. svavar@frettabladid.is Virða lög að vettugi við netaveiðar á laxi Veiðifélag Árnesinga hefur aldrei skilað inn lögbundinni nýtingaráætlun vegna netaveiða á laxi í Hvítá og Ölfusá. Fiskistofa hefur lagalegan rétt til að setja reglur um veiði sé áætlun ekki skilað. Um skýrt brot á lögum virðist að ræða. STÓRA-LAXÁ Í HREPPUM Árni Baldursson, framkvæmdastjóri Lax-ár, birti harðorða grein á vefsvæði félagsins í gær. Frá 1973 hafa 206.707 laxar verið veiddir í net en 71.373 á stöng. Netaveiðibændur eru tuttugu. Aðrir landeigendur eru 240 talsins. MYND/BJÖRGÓLFUR www.saft.is RÆDDU UM ÞÁ ÁHÆTTU SEM FYLGIR ÞVÍ AÐ HITTA NETVIN STJÓRNSÝSLA Bæði sjálfstæðis konur og jafnréttisnefnd Framsóknar- flokksins gagnrýna Ögmund Jónas son innanríkisráðherra harð- lega vegna niðurstöðu úrskurðar- nefndar jafnréttismála um að hann hafi gerst brotlegur við lög. Halla Bergþóra Björnsdóttir, settur sýslumaður á Akranesi, kærði ráðningu Svavars Páls sonar í embætti sýslumanns á Húsavík til nefndarinnar. Í úrskurðinum kemur fram að Halla hafi haft meiri menntun en Svavar. Hún hafi haft meiri reynslu af störfum á lögmanns- stofu, stjórn- sýslustörfum og auka störfum. Hins vegar hafi Svavar haft lengri reynslu af saksókn. Að öðru leyti hafi þau verið jafn- hæf. Innanríkis- ráðherra hafi ekki sýnt fram á aðrar ástæður fyrir ráðningunni en kynferði. Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, segir ríkisstjórn sem vilji láta kenna sig við jafn- rétti ekki hafa náð að fylgja eigin markmiðum og stefnu. Brot bæði Ögmundar og Jóhönnu Sigurðar- dóttur, sem var dæmd fyrir sams konar brot í fyrra, séu alvarleg og viðhorf þeirra gagnvart úr- skurðum nefndarinnar ekki síður. Jafnréttisnefnd Framsóknar- flokksins segir Ögmund eiga að skammast sín. Jafnréttislögin séu ein grundvallarstoð jafnréttis kynjanna og eftir þeim beri öllum að fara. - þeb Kærandinn hafði meiri menntun og reynslu af ýmsum störfum en hinn ráðni: Gagnrýna Ögmund harðlega ÖGMUNDUR JÓNASSON FÉLAGSMÁL Rekstrarfélag Kringl- unnar hefur hleypt af stokkunum söfnun fyrir Neistann, styrktar- félag hjartveikra barna. „Láttu hjartað ráða“ eru einkunnarorð söfnunarinnar en tilefnið er 25 ára afmæli verslunarmiðstöðv- arinnar. Útbúinn hefur verið hjartalaga baukur sem stendur miðsvæðis í Kringlunni. Það er von kaupmanna og starfsfólks að viðskiptavinir taki þátt í að lita „söfnunarhjartað“ rautt með því að láta af hendi 500 krónur. - shá Kringlan 25 ára: Söfnun fyrir hjartveik börn Finnst þér það skipta máli hver mun reka hótel við Hörpu? JÁ 43,5% NEI 56,5% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að endurskoða ráðningarmál hjá ráðuneytunum? Segðu þína skoðun á Vísir.is. það hefur ekki verið formlega skilað inn nýtingaráætlun fyrir neita- veiðina, það er rétt. ÁRNI ÍSAKSSON FORSTÖÐUMAÐUR HJÁ FISKISTOFU

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.