Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 31. ágúst 2012 21
Þann 20. október næstkomandi göngum við Íslendingar til
atkvæðagreiðslu um okkar eigin
stjórnarskrá. Loksins. Við lýð-
veldistökuna árið 1944 var í nafni
samstöðu ákveðið að gera nánast
ekki aðrar breytingar en þær sem
beinlínis lutu að stofnun hins nýja
lýðveldis. Áfram var því byggt á
fullveldisstjórnarskránni frá 1920
sem að uppistöðu byggði á þeirri
dönsku sem Kristján IX Dana-
konungur rétti okkur árið 1874 og
lítið hafði breyst frá endalokum
einveldis í Danmörku árið 1849.
Jafnframt var ákveðið að Íslend-
ingar myndu í kjölfarið setja sér
sína eigin stjórnarskrá. Á því varð
hins vegar óhófleg töf. Þrátt fyrir
fjölda stjórnarskrárnefnda og
ýmsar smávægilegar breytingar
auk nýs mannréttindakafla árið
1995 reyndist Alþingi ófært um
slíka heildarendurskoðun.
Upp úr skotgröfunum
Það var ekki fyrr en sumarið 2010,
í kjölfar mikils óróa í samfélaginu,
að Alþingi fann leiðina upp úr skot-
gröfunum og ákvað að efna til
þjóðkjörs til stjórnlagaþings – sem
síðar breyttist í þingkjörið stjórn-
lagaráð eins og við þekkjum. Á
herðum þúsund manna þjóðfund-
ar og árslangri sérfræðivinnu sjö
manna stjórnlaganefndar fékk 25
manna þjóðkjörið og þingskipað
stjórnlagaráð fjóra mánuði til að
semja þau drög að nýrri stjórnar-
skrá sem kjósendur fá nú að segja
álit sitt á. Nálega sjötíu árum frá
lýðveldistökunni hefur íslensk
stjórnarskrá loksins litið dagsins
ljós.
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í
haust verður spurt hvort við vilj-
um áfram byggja á þeirri dönsku
eða þeirri nýju íslensku sem verið
hefur í undirbúningi í öll þessi ár.
Auk þess fá kjósendur tækifæri
til að segja álit sitt á fimm helstu
álitamálum frumvarpsdraganna,
svo sem um aukið beint lýðræði,
þjóðkirkjuna og kosningatilhögun.
Reynist meirihluti kjósenda ósam-
mála stjórnlagaráði í einhverj-
um tilvikum verður frumvarpinu
breytt til samræmis áður en það
kemur til atkvæða á Alþingi, sem
vitaskuld er stjórnarskrárgjafinn.
Áhugi erlendis
Við sem sátum í stjórnlagaráði
í umboði kjósenda og Alþingis
höfum orðið vör við gríðarlegan
áhuga erlendis á þeirri lýðræðis-
vakningu sem útlendingar upp-
lifa að hér hafi orðið með starfi
stjórnlagaráðs og aðkomu þjóðar-
innar að setningu eigin stjórnar-
skrár. Varla líður sá dagur án þess
að erlendir fjölmiðlar séu í sam-
bandi, fjöldi málstofa hefur verið
haldinn í erlendum háskólum og
fræðimenn víða um lönd keppast
nú við að greina það sem hér er á
ferðinni. Í því samhengi er merki-
legt hvað íslenskir fjölmiðlar hafa
reynst áhugalitlir og hryggilegt
að sjá suma þá sem hingað til hafa
verið taldir málsmetandi tala
málið niður án þess að færa fram
efnisleg rök. Á því verður vonandi
breyting í aðdraganda atkvæða-
greiðslunnar sem jafnvel má gera
ráð fyrir að álíka margir taki þátt
í og í kjörinu til stjórnlagaþings-
ins, þó svo að reynslan erlendis
frá sýni að þátttaka í einsmáls-
atkvæðagreiðslum eins og þess-
um sé yfirleitt langtum minni en í
almennum atkvæðagreiðslum, svo
sem í þingkjöri.
Tækifærið er núna
Til eru þeir sem telja að sökum
anna í þjóðfélaginu eftir hrun sé
betra að bíða með stjórnlagaum-
bætur þar til um hægist. Í mínum
huga er þó kýrskýrt að fari þetta
tækifæri forgörðum fáist ekki
annað á næstu áratugum. Erlend-
ar rannsóknir sýna að stjórnar-
skrár eru eiginlega aldrei samd-
ar og settar nema í kjölfar krísa
af einhverju tagi. Norski fræði-
maðurinn Jon Elster, sem stend-
ur fremst þeirra sem rannsaka
stjórnarskrárgerð, greinir sjö
lotur í setningu stjórnarskráa á
Vesturlöndum frá því að sú banda-
ríska var sett árið 1787, nánast
alltaf í kjölfar áfalls. Athyglisvert
er að þeir á stjórnlagaþinginu í
Fíladelfíu fengu jafn langan tíma
til að semja bandarísku stjórn-
arskrána og stjórnlagaráðið hér
fékk til þess að semja þá íslensku.
Óvanalegt mun hins vegar vera
að allir fulltrúarnir hafi komist
að samhljóða niðurstöðu um eina
stjórnarskrártillögu eins og hér
varð.
Stjórnarskrá allra Íslendinga
Yfirlýsing frá samtökum
tölvuleikjaframleiðenda
Ef byrjað hefði verið að fjölda-framleiða tölvuleiki nokkrum
áratugum fyrr og aðrar venj-
ur hefðu skapast um dreifingu
þeirra værum við kannski í dag
að lesa yfirlýsingar eins og þessa:
„Samtök tölvuleikjafram-
leiðenda og eigenda leikjarétt-
ar (STEL) eru stærstu og einu
heildarsamtök tölvuleikjagerð-
arfólks á Íslandi og sjá samtökin
einnig um hagsmunagæslu og
innheimtu gjalda fyrir erlend-
ar leikjasmiðjur í samstarfi við
sambærileg samtök erlendis.
Vinsældir tölvuleikja hafa
farið vaxandi að undanförnu og
er það fagnaðarefni. Hins vegar
er eins og sumir neytendur átti
sig ekki alveg á lagarammanum
og brjóti því oft íslensk lög með
kaup- og spilahegðun sinni.
Þannig hefur það færst í vöxt
að menn sæki sér tölvuleiki í
gegnum erlendar vefsíður og
tengist erlendum vefþjónum til
að spila þá.
Stundum halda menn jafn-
vel að þeir séu í fullum rétti
enda borgi þeir fyrir leikina og
kaupi þá jafnvel beint af fram-
leiðandanum. Það er misskiln-
ingur. Erlendir aðilar þurfa að
sækja um um svokallaða „móta-
heimild“ á Íslandi til að geta
boðið Íslendingum að spila leiki
í gegnum erlenda vefþjóna. Það
hafa fæstir þeirra gert. Ef menn
vilja síðan leyfa fólki að hlaða
niður leikjum af síðum sínum þá
þarf til þess að hafa leikjarétt
á Íslandi og gildir þá einu hvort
menn hafi skrifað leikina sjálfir
eða ekki.
STEL vill árétta að eina lög-
lega tölvuleikjasíðan á Íslandi
heitir Leikumokkurloglega.is.
Þar er að finna tugi tölvuleikja
fyrir alla aldurshópa. Vefsíðan
hefur til dæmis nýlega hafið
sölu á knattspyrnuleiknum FIFA
10, þar sem menn reyna m.a. að
stýra draumalandsliðinu sínu til
sigurs á Heimsmeistaramótinu
í Suður-Afríku. Leikurinn fékk
glimrandi dóma beggja vegna
Atlantshafsins þegar hann kom
út á sínum tíma.
Einhverjum gæti þótt sem oft
þurfi að bíða lengi, jafnvel að
eilífu, eftir nýjum tölvuleikjum.
Smæð íslensks markaðar og
skylda til að þýða alla tölvuleiki
yfir á íslensku ráða einhverju
þar um. Vinsæll íslenskur geim-
fjölspilunarleikur er til dæmis
ekki aðgengilegur frá Íslandi í
fullri útgáfu. Það ræðst af því
að reglur um áðurnefnda „móta-
heimild“ gera mönnum það erfitt
að reka leikjasíður í mörgum
löndum. Þessi mál geta stund-
um verið dálítið flókin. Hins
vegar er gaman að segja frá því
að útgefandi leiksins hefur nú
opnað sérstakan vefþjón fyrir
íslenska notendur. Alheimurinn
sem þar er hýstur hefur raunar
einungis að geyma fjögur sól-
kerfi, en í alvörunni, hver þarf
meira?
Þó svo að biðin eftir leik kunni
að vera löng (eða hann alls
kostar ófáanlegur) þá gefur það
engum rétt til að taka lögin í
sínar hendur.
Tölvuleikirnir eru hugverk,
eign þeirra sem þá skrifa, og
þótt svo að einhver vilji ekki
selja okkur bílinn sinn þá gefur
það okkur ekki leyfi til að stela
honum. En það er því miður
alltaf eitthvað um að menn reyni
að kaupa leiki á erlendum síðum,
þótt það sé kolólöglegt.
Árlega verða íslenskar leikja-
búðir og leikjasíður af tugum
milljarða vegna þessa. Til stend-
ur að fara í sérstaka auglýsinga-
herferð til að vekja almenning
til umhugsunar um þessi mál
auk þess sem STEL bindur vonir
við gott samstarf við kredit-
kortafyrirtækin um það að loka
á erlendar leikjasíður.
Fram undan er síðan endur-
skoðun tölvuleikjalaganna, sem
mun fara fram í góðu samstarfi
STELs og löggjafans (les: STEL
mun í raun skrifa lögin sjálft).
Til að mæta tapi af ólöglegu nið-
urhali leikja verða tekjustofnar
svokallaðra STEL-gjalda breikk-
aðir. Nú þegar eru STEL-gjöld-
in innheimt af öllum seldum
tölvum í landinu en vonir standa
til að þau verði einnig innheimt
af öllum rýmum þar sem tölvu-
leikir kunna að vera spilaðir. Það
ætti að vera mikil réttarbót.“
Niðurlag
Yfirlýsingin hér að ofan er upp-
spuni en geymir þó ákveðinn
sannleik.
Lagaumhverfi sölu afþrey-
ingar er í rugli. Flestar stórar
veftónlistarbúðir eru lokaðar
Íslendingum. Sama gildir um
kvikmyndir og smáforrit. Og nú
þegar rafbókasalan er að kom-
ast á fullt skrið er veruleg hætta
á því að að reynt verði að hafa
það eins.
Því miður vantar aldrei fólk
sem vill hólfa netið niður. Það er
íslenskum neytendum til lítils.
Íslenska hólfið getur aldrei orðið
sérlega stórt.
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Því miður vantar aldrei fólk sem vill
hólfa netið niður. Það er íslenskum neyt-
endum til lítils. Íslenska hólfið getur
aldrei orðið sérlega stórt.
Ný stjórnarskrá
Eiríkur
Bergmann
stjórnmálafræðingur,
sat í Stjórnlagaráði
Óvanalegt mun
hins vegar vera
að allir fulltrúarnir hafi
komist að samhljóða
niðurstöðu um eina
stjórnarskrártillögu eins
og hér varð.
SKAUTAFÉLAGIÐ BJÖRNINN LISTHLAUPADEILD
er með 14 vikna listskautanámskeið
1. september – 8. desember 2012
Skemmtilegar listskautaæfingar fyrir hressar stelpur og káta stráka.
Sér hópur er fyrir unglinga. Frábær æfingaaðstaða í EGILSHÖLL.
Æfingar 2 í viku, á miðvikudögum og laugardögum.
Skráning á www.bjorninn.com – Listskautar
eða í Egilshöll á morgun 1. september frá kl. 10-14.
FRÍR PRUFUTÍMI
Vilt þú læra á listskauta?
Hreysti – Gleði – Vellíðan – Hreyfing – Styrkur – Samhæfing