Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 32
FÓLK|
■ VIRÐULEG
Kópavogskirkja stendur hátt á stað
sem nefnist Borgir eða Borgar-
holt. Frá kirkjunni er mikið útsýni.
Kirkjan var reist á árunum 1958-
1962 eftir teikningum frá embætti
Húsameistara ríkisins, sem Hörður
Bjarnason veitti forstöðu á þeim
tíma. Ragnar Emilsson arkitekt
vann að teikningunni ásamt Herði. Kirkjan var vígð 16. desember
1962 af herra Sigurbirni Einarssyni biskupi. Listakonan Gerður
Helgadóttir gerði steinda glugga kirkjunnar en altaristaflan er eftir
Steinunni Þórarinsdóttur.
KIRKJA SEM VEKUR ATHYGLI
■ OPIÐ Í MORGUN
Bókasafn Kópavogs er í Hamra-
borginni. Safnið verður opið
eins og venjulega á morgun og
geta gestir Hamraborgarhátíðar
kíkt þangað milli klukkan eitt og
fimm.
Bókamarkaður hefur verið í
gangi á safninu undanfarið og
þar má fá nýlegar og eldri bækur
á góðu verði.
Safnið býður upp á fjölbreytta þjónustu. Þar má finna skáldrit á
íslensku og erlendum tungumálum, ævisögur, landafræði, mann-
kyns- og Íslandssögu. Einnig eru myndbönd og mynddiskar. Hægt er
að kaupa aðgang að tölvum á vægu verði og ókeypis heitur reitur er
aðgengilegur fyrir þá sem koma með sínar eigin fartölvur. Barnadeild
er á safninu og Náttúrufræðistofa Kópavogs er í sama húsi.
BÓKAMARKAÐUR BÓKASAFNSINS
HAMRABORG
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Hamraborgarhátíðin verður haldin í þriðja sinn á morgun, laugardag-inn 1. september. Hamraborginni
verður breytt í göngugötu með tilheyr-
andi götustemmingu. Rannveig Ásgeirs-
dóttir, formaður bæjarráðs, er ein af
upphafsmönnum hátíðarinnar.
„Þetta er tilraun til að glæða gamla
miðbæinn lífi þar sem allir hafa tækifæri
til þess að taka þátt,“ segir Rannveig um
tilurð hátíðarinnar.
Hún segir að hátíðin hafi frá upphafi átt
að vera sjálfbær. Fólkið hafi með öðrum
orðum sjálft átt að búa til viðburði, til
dæmis flóamarkaði, tónlistaratriði eða
annað sem gæti lífgað upp á mannlífið og
stemminguna. Þá hafi félagasamtökum
og íþróttafélögum verið boðið að nýta
daginn til að kynna starfsemi sína.
Fyrirtæki í Hamraborginni hafa einnig
tekið þátt með því að hafa opið hjá sér.
Sum þeirra eru með ýmis tilboð og tón-
listaratriði. Þá ætla listamenn í Kópavogi
að setja upp örsýningu og svo mætti
lengi áfram telja.
Skottmarkaðurinn, Beint úr skottinu,
eins og hann hefur verið kallaður, hefur
notið sívaxandi vinsælda og segir Rann-
veig að þar selji fólk beint úr skottinu á
bílum sínum ýmsa dýrgripi og afurðir.
„Hefur þetta fyrirkomulag heppnast með
eindæmum vel og er gamla markaðs-
menningin hressileg viðbót við annars
blómlegt menningarlíf Kópavogsbæjar,“
segir hún.
Rannveig segir að þúsundir hafi
streymt á hátíðina síðustu ár og að það
sé samdóma álit „fólksins á göngugöt-
unni“ að þessi viðburður sé kominn til
að vera og marki skemmtilega upphaf
haustsins með litadýrð sinni. Hún hvetur
alla til að mæta aftur í ár en minnir fólk
á að klæða sig eftir veðri. „Við tökum
vel á móti gestum okkar sem gleðjast
með okkur á þessum degi. Gleðilegan
Kópavog!“
FLÓAMARKAÐUR OG
BLÓMLEGT MANNLÍF
HAMRABORGARHÁTÍÐIN í Kópavogi er nú haldin í þriðja sinn en hún hefur
jafnan vakið mikla athygli og er vel tekið á móti gestum.
ÁNÆGÐ MEÐ
HÁTÍÐINA
Rannveig Ásgeirsdóttir
er formaður bæjarráðs í
Kópavogi.
Hamraborgarhátíð í
Kópavogi hefur alltaf
verið vel heppnuð.
af völdum vörum
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS
20% afsláttur
OXXO boutique ehf • Hamraborg 5 • 200 Kópavogi • Sími: 561 2300
OXXO Iceland
20