Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 36

Fréttablaðið - 31.08.2012, Page 36
2 • LÍFIÐ 31. ÁGÚST 2012 Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Kjartan Már Magnússon Útlitshönnun Arnór Bogason Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Lífið Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 www.visir.is/lifid UMSJÓN Ellý Ármanns elly@365.is Kolbrún Pálína Helgadóttir kolbrunp@365.is HVERJIR VORU HVAR? Ásdís Rán var mynduð ásamt fyrir sætu í Grikk- landi þar sem þau busluðu saman í sjónum. Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta fær ekki frið fyrir ljósmyndurum í Búlgaríu en hún býr þar. Eftirfarandi texti birtist í búl- görsku blaði sem fylgist með lífi fræga fólksins þar í landi ásamt myndunum af Ásdísi: Íslenska fegurðardísin Ásdís Rán (33) sýnir sig á ströndinni í Grikklandi með elskhuganum, Calvin Klein-fyrir sætunni og fótboltamanninum Angel Kalinov (26). Þetta ofurheita par hefur verið að hittast síðustu mánuði eins og flestir vita en myndir voru teknar af þeim í vor þar sem þau yfirgáfu Sheraton- hótelið í Sofíu aðeins einum mánuði eftir að Ásdís greindi frá skilnaði þeirra Garðars Gunnlaugssonar fótboltamanns. Vitni segja að það hafi farið vel á með þeim þar sem þau nutu lífsins á ströndinni í Kavala. Flestir bíða spenntir eftir að vita hver verður svo heppinn að hreppa ís- drottninguna og velta menn nú fyrir hvort hún sé gengin út sem yrðu sorgar- fréttir fyrir karlmennina í Búlgaríu. Ásdís sagði nýlega í viðtali að hún væri enn „single and happy“ og væri ekki að hugsa um að fara í alvarlegt samband á næstunni. Lífið hafði samband við Ásdísi og spurði hvort eitthvað væri að marka fréttina um samband hennar og Calvin Klein-fyrirsætunnar, Angels. Hún sagðist vissulega hafa notið frísins í Grikklandi en vildi ekki tjá sig að svo stöddu um samband sitt við manninn. ÁSDÍS RÁN FÆR EKKI FRIÐ Það vantaði ekki þekktu andlitin þegar litið var inn á Hótel Marina síð- astliðna helgi. Má þar fyrst nefna Hollywood- stjörnuna Ben Stiller sem var umvafinn ís- lenskum félögum. Bjarni Ben sem prýðir for- síðu Nýs lífs að þessu sinni lét einnig sjá sig ásamt sinni ekta- kvinnu, Þóru Margréti Baldvinsdóttur. Leikkon- an Ásdís Birta mætti ásamt sínum vin- konum, skart- gripahönnuður- inn Steinunn Vala Sigfúsdóttir, ljós- myndarinn Nína Björk Gunn- arsdóttir, ritstýran Elín Arnar, sjónvarpsmaður- inn Logi Bergmann og skókaupmaðurinn Pétur Halldórsson skemmtu sér einnig vel. Inga á Nasa eins og við þekkj- um hana er hvergi nær hætt í bransanum þrátt fyrir að hafa kvatt Nasa fyrir stuttu. „Mér hefur lengi þótt vænt um þennan stað – enda horft hérna beint yfir af Nasa í mörg ár. Svo kom ég alltaf hingað til að fá mér besta kjúklingasalatið í bænum, Ungfrú Reykjavík,“ segir Inga á Nasa, eins og hún er enn kölluð þrátt fyrir að Nasa hafi nú verið lokað sem aðaltón- leika- og ballstað Íslendinga, en hún hefur nú tekið við rekstri Íslenska barsins. Íslenski barinn er í Pósthússtrætinu, í hjarta borgarinnar, en Inga vinnur nú hörðum höndum að því að fínpússa staðinn, laga vinnuaðstöðuna og gera hlutina að sínum eins og henni einni er lagið. Hún stefnir að því að standa vaktirnar sjálf eins og hún var þekkt fyrir á Nasa. „Við ætlum að leggja upp úr því að fólki líði vel hérna og drífi sig ekki heim þó það sé búið að borða heldur færi sig yfir á barinn, kjafti við barþjón- inn og slaki á,“ segir Inga spennt fyrir verkefninu. Þess má geta að Íslenski barinn á marga góða fastakúnna. Þar má nefna Hug- leik Dagsson, Björn Jörund, Munda fatahönnuð og Helga Seljan. INGA KOMIN Á ÍSLENSKA BARINN Inga hefur nú tekið við rekstri Íslenska barsins.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.