Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 50
FÓLK| HAMRABORG
Verður með ýmis konar handverk sjálfboðaliða
til sölu á Hamraborgar hátíðinni.
Allur ágóði rennur í verkefni innanlands.
Heitt á könnunni!
Rauði krossinn í Kópavogi
Hamraborg 11
Laugardaginn 1. september
bjóðum við upp á
30% afsláttur af myndarömmum
20% afsláttur af öllum kiljum
Hamraborg 5
Sími 554 0877
Opið 9-18 virka daga
10-16 laugardaga
20%
afsláttur
föstudaginn 31. ágúst
og laugardaginn
1. september
S
T
O
F
A
5
3
ALLAN LAUGARDAGINN 1. SEPTEMBER
Ungmenni frá Molanum, ung-mennahúsi Kópavogs, ætla að setja upp svið í Hamraborginni
í tilefni af Hamraborgarhátíðinni sem
fram fer 1. september. Sviðið verður
fyrir framan Hamraborg 3. „Á því verða
alls kyns hljóðfæri og græjur sem gestir
og gangandi geta rifið í og skemmt sér
og öðrum,“ útskýrir Andri Þór Lefever,
forstöðumaður Molans. „Nokkrar hljóm-
sveitir ætla að koma fram enda gott
tækifæri til að kynna sig fyrir íbúum
bæjarins,“ bætir hann við.
Molinn er tómstunda- og menningar-
hús í Kópavogi fyrir 16 ára og eldri.
„Þar geta ungmenni komið menningu
sinni og listum á framfæri, haldið tón-
leika og listsýningar, skipulagt viðburði
og fleira,“ segir Andri. „Boðið er upp
á fjölbreytt námskeið eða smiðjur þar
sem ungmenni geta kynnst mismunandi
listformum og aukið við þekkingu sína
og færni.“
Andri segir að ekki megi heldur
gleyma því að margir koma við í
Molanum til þess eins að sýna sig og
sjá aðra. „Sumir læra en aðrir hanga á
netinu eða horfa á sjónvarpið. Verk-
efni Molans eru að jafnaði vel sótt og
haustið er spennandi tími. Nú er nýr
árgangur búinn með grunnskólann og
því gjaldgengur í Molann.“ Hann hvetur
alla á þessum aldri til að koma og kynna
sér starfið.
„Molinn er mikilvægur vettvangur
fyrir ungmenni bæjarins og við getum
verið stolt af því sem þar er í boði. Það
er auðvitað ómetanlegt að geta boðið
ungmennum upp á aðstöðu fyrir allar
þær pælingar og hugmyndir sem hjá
þeim kvikna. Molinn er vímulaus staður
og forvarnargildið því mikið. Verk-
efnin eru mörg, hvort sem þau lúta að
atvinnumálum ungs fólks, sköpunarþörf
eða félagsfærni. Þess má líka geta að
Molinn er í góðu samstarfi við sambæri-
leg hús víðs vegar í Evrópu og árlega
gefst ungmennum Kópavogsbæjar
kostur á að víkka sjóndeildar hringinn
með þátttöku á námskeiðum með
erlendum jafnöldrum sínum, bæði hér
heima og úti í heimi.“
GOTT TÆKIFÆRI TIL AÐ
LÁTA LJÓS SITT SKÍNA
GOTT TÆKIFÆRI Molinn, ungmennahús Kópavogs, býður fólki að stíga á svið
í Hamraborginni til að skemmta sér og öðrum.
STUÐ
Það er alltaf mikið um
að vera hjá Molanum.
Kópavogur er allur að vakna,“ segir
Helga Ástvaldsdóttir, myndlistarmaður
og formaður hins nýstofnaða Myndlistar-
félags Kópavogs, þegar hún er spurð út í
menningarlífið í bænum. Hún segist finna
fyrir meiri vilja en oft áður, ekki síst hjá
stjórnendum bæjarins. „Það er greinilega
mikill vilji til að gera þetta að skemmti-
legum og blómlegum menningarbæ.“
Helga hefur eins og fjölmargir aðrir
listamenn aðstöðu í Auðbrekku en sú
gata liggur fyrir neðan Hamraborgina.
Í tilefni Hamraborgarhátíðarinnar ætla
þessir myndlistarmenn og aðrir félagar í
Myndlistarfélagi Kópavogs að vera með
listasýningu eða örsýningu, eins og hún
vill kalla hana, við Hamraborgina, meðal
annars í gamla Muffins Bakery-hús-
næðinu sem er við hliðina á blómabúð-
inni í Hamraborginni. Þar verða sýndar
myndir og aðrir munir og verk á borð við
keramik.
Myndlistarfélag Kópavogs var stofnað
29. maí síðastliðinn og eru stofnfélag-
arnir alls 55. Helga segir að sá fjöldi
segi sína sögu. Margir listamenn búi
með öðrum orðum í Kópavogi eða hafi
vinnuaðstöðu þar.
LISTALÍF
Helga Ástvaldsdóttir
myndlistarmaður nýtir
sér aðstöðuna í Auð-
brekku.
SKEMMTI-
LEGT STARF
Andri Þór er
forstöðumað-
ur Molans.
MENNINGIN BLÓMSTRAR
Mikil gróska er í listalífinu í Kópavogi. Nýlega var stofnað félag mynd listar-
manna og eru stofnfélagar komnir yfir fimmtíu.
■ VERSLUN OG VIÐSKIPTI
Kópavogur er næstfjölmennasta sveitarfélag á
Íslandi. Íbúar þar voru 31.198 í janúar á þessu ári.
Kópavogsfundurinn var haldinn 28. júlí árið 1662
og var tilgangur hans að fá Íslendinga til að sam-
þykkja erfðaeinveldið. Á fjórða tug síðustu aldar
var byrjað að úthluta lóðum í landi Kópavogs
og varð fólksfjölgun mikil og hröð. Bærinn fékk
kaupstaðaréttindi árið 1955. Í bænum er stærsta
verslunarmiðstöðin landsins, Smáralind, og
hæsta bygging á Smátorgi.
MEÐ HÆSTU BYGGINGU
LANDSINS