Fréttablaðið - 31.08.2012, Síða 51
FÓLK|HAMRABORG
Íslandsmetið er tíu pylsur á
tíu mínútum og vonast Sverr-
ir Júlíusson, forsvarsmaður
keppninnar, að sjálfsögðu til
þess að það verði slegið nú á
laugar daginn. Þegar þetta er
skrifað hafa sex manns skráð
sig til keppni en enn er hægt að
bæta við fleiri keppendum og
lýkur skráningu kvöldið fyrir
keppni. Skráning fer fram á net-
fanginu pylsuvikingurinn@200.is.
Keppendum verður raðað upp
á svið og fá þeir tíu mínútur til
að troða ofan í sig eins mörgum
pylsum og þeir mögulega geta í
sig látið. „Eftir tíu mínútur hafa
þeir 20 sekúndur til að hreinsa
munninn og svo bíðum við í
þrjár mínútur til að sjá hvort ein-
hver þeirra ælir. Eftir það er sá
sem borðaði flestar pylsur á tíu
mínútum, án þess að æla, orðinn
sigurvegari,“ segir Sverrir. Hann
bætir því við að neyðarteymi
verði á staðnum, tilbúið til að
grípa inn í komi eitthvað upp
á. Reglurnar í keppninni séu í
samræmi við bandarísku heims-
meistarakeppnisreglurnar.
Þegar hann er spurður hvort
þetta sé nú ekki fremur ógeðsleg
keppni svarar hann því til að
sumum finnist eflaust ógeðfellt
að sjá fólk troða í sig eins og það
getur. „En þetta getur líka verið
skemmtilegt,“ segir hann að
síðustu.
ÍSLANDSMÓT Í PYLSUKAPPÁTI
Ég mæli hiklaust með því að fólk selji gamla muni beint úr skottinu á bílnum sínum. Það er bara skemmtilegt,“ segir
Elísa Friðjónsdóttir sem búið hefur í Kópavogi
í 26 ár. Hún tók þátt í flóamarkaðnum Beint úr
skottinu, eins og hann nefnist, á Hamraborgar-
hátíðinni í Kópavogi í fyrra og seldi ásamt vin-
konu sinni, bækur, föt og skrautmuni fyrir um
það bil fimmtíu þúsund krónur. Fjöldi bæjar-
búa mun taka þátt í skottsölunni í ár og eflaust
munu enn fleiri hugsa sér gott til glóðarinnar
og gera góð kaup.
Elísa segir að fólk eigi ekki endilega að hafa
það að markmiði að græða sem mest heldur
fyrst og fremst að reyna að hafa það gaman
og koma gömlum fötum og munum í not að
nýju. „Við vorum að selja þetta fyrir einhverja
hundrað kalla. Við vildum helst losna við
gamalt dót og þá helst þannig að fólk gæti nýtt
sér það. Það kom okkur á óvart hvað við seld-
um mikið.“ Hún segir að barnafötin hafi verið
hvað vinsælust. „Svo fór slatti af bókum líka.“
Hún segir að stemmingin á hátíðinni hafi
verið afar góð. „Karlmennirnir stóðu fyrir aftan
konurnar og fussuðu og sveiuðu en svo voru
það oft þeir sem tóku af skarið og ákváðu hvað
ætti að kaupa. Það var svolítið skondið að
fylgjast með því.“
Elísa telur að fólk sé tilbúnara til þess nú en
oft áður að kaupa gamla muni og föt. „Fólk er
ekki eins viðkvæmt fyrir því að þetta sé ekki
alveg nýtt út úr búð. Það metur hlutina öðru-
vísi í dag og er frekar til í að breyta og bæta.
Það er það góða við hrunið ef hægt er að segja
eitthvað gott um það.“
Elísa segir að lokum að hún mæli eindregið
með því að fólk mæti á Hamraborgarhátíðina.
„Mér finnst svona hátíð þjappa fólki meira
saman. Ég labbaði þarna um í fyrra og hitti
bæjarbúa og aðra og þetta var mjög gaman.“
SELJA BEINT
ÚR SKOTTINU
SELJA GRIMMT Fjöldi bæjarbúa mun taka þátt í
skottsölunni í ár og eflaust munu enn fleiri hugsa
sér gott til glóðarinnar og gera góð kaup.
GÓÐ KAUP Hægt er að
gera góð kaup á skott-
sölunni í Hamraborg.
LÍFLEGT Mikið líf og fjör
skapast í Hamraborginni
þennan hátíðardag.
Subway
Hamraborg 11.
Bátur mánaðarins aðeins 439 kr.
www.noatun.is