Fréttablaðið - 31.08.2012, Side 56
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR32
timamot@frettabladid.is
Ingibjörg Stefánsdóttir jógakennari er
fertug í dag. Þegar Fréttablaðið sló á
þráðinn til Ingibjargar var hún nýbú-
in að taka ákvörðun um að halda upp
á daginn. „Það er dæmigert fyrir mig
að gera allt á síðustu stundu. Ég var
búin að vera að pæla í því að halda upp
á afmælið en svo ákvað ég bara í dag
í sturtunni að gera eitthvað og bjóða
heim til mín.“ Spurð hvort hún haldi
yfirleitt upp á afmælið sitt segir Ingi-
björg að það sé upp og ofan. „Ég geri
það ekki alltaf en mér þykir samt mjög
vænt um afmælisdaginn minn. Ég
er svo þakklátt fyrir að eiga afmæli,
þakklát fyrir að lifa. Mamma mín lést
þegar hún var ekki nema 33 ára gömul
þannig að ég get ekki annað en verið
glöð með afmælisdaginn minn.“
Aldurskomplexar eru því skiljan-
lega víðs fjarri Ingibjörgu. „Ég er ekki
á neinum einasta bömmer – enda er
aldur svo afstæður í dag. Aldur er held-
ur ekki bara tala, heldur bæði andlegur
og líkamlegur aldur.“
Ingibjörg er eigandi jógastöðvar-
innar Yoga Shala og segir hún vera í
nógu að snúast á þessum árstíma þegar
haustið er að bresta á. „Mesta sprengj-
an hjá okkur er alltaf á haustin þó að
það sé orðið mikið að gera allan ársins
hring. Jóga hefur unnið sér varanleg-
an sess hjá Íslendingum, það mætir alls
konar fólk í tíma og kennararnir okkar
eru líka litríkur hópur.“
Ingibjörg hefur kennt jóga frá því
að hún flutti heim frá Bandaríkjunum
árið 1999 og segir hún alltaf hafa jafn
gaman af því. „Ég elska að kenna jóga
og svo fæst ég líka við næringarráðgjöf
sem er mjög skemmtilegt.“
Auk anna í vinnunni stendur Ingi-
björg líka í flutningum þannig að það
er í nógu að snúast hjá henni. „Ég er að
flytja í aðra íbúð í húsinu sem ég bý í.
Ég á heima í húsinu sem ég ólst upp í
og amma mín líka. Við erum að skipta
um íbúð,“ segir Ingibjörg sem segir það
hafa marga kosti að búa í sama húsi
og amman. „Þetta er svona indversk
stemming hjá okkur: allir saman. Og
eldri dóttir mín þriggja og hálfs árs
nýtur góðs af, hún fer alltaf upp til
ömmu sinnar á morgnana og kúrir hjá
henni í morgunsárið.“
Ingibjörg segist afar sátt við þann
stað sem hún er á í lífinu. „Ég er bara
alltaf að reyna að njóta lífsins út í ystu
æsar. Mér finnst Íslendingar vinna allt-
of mikið, við eigum að vera meira með
fjölskyldu og vinum. Það er of mikið
stress í gangi,“ segir Ingibjörg sem
hvetur fólk til að huga að lífsstíl sínum.
„Það er alveg hægt að breyta um lífs-
stíl, við sjáum ótal dæmi um það hér í
jógastöðinni.“ sigridur@frettabladid.is
INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR: FAGNAR FERTUGSAFMÆLI Í DAG
ÞAKKLÁT FYRIR AÐ LIFA
INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR Nýtur lífsins og hvetur fólk til að draga úr stressi í sínu lífi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
RICHARD GERE leikari á afmæli í dag.
„Lykillinn á bak við velgengni mína
er hárspreyið mitt.“
63
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
PÁLS HALLDÓRS JÓHANNESSONAR
frá Bæjum, Snæfjallaströnd,
Hlíf II, Ísafirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
öldrunardeildar Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði.
Anna Jóna Magnúsdóttir
Kristinn Arnar Pálsson Hrönn Þórarinsdóttir
Rebekka Jóhanna Pálsdóttir Pétur Ingi Ásvaldsson
Magnús Ási Pálsson
Haraldur Bjarmi Pálsson Hrönn Eiríksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GÍSLI J. ÁSTÞÓRSSON
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
mánudaginn 3. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Sunnuhlíðarsamtökin.
Guðný Sigurgísladóttir
Ástþór Gíslason Erla Gunnarsdóttir
Hrafnkell S. Gíslason Ragnheiður D. Gísladóttir
Hólmfríður Gísladóttir Kristín Erla Boland
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
JÓN GUNNARSSON
Álfaskeið 64, Hafnarfirði,
lést á Sólvangi 27. ágúst. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju fimmtudaginn
6. september kl. 15.00.
Sigurrós Kristjánsdóttir
Þóroddur Friðrik Gísli Jónsson
Kristrún Hanna Ingibjartsdóttir
og afabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR BJÖRNSSON
rafvirkjameistari, Gullsmára 9, Kópavogi,
lést þriðjudaginn 28. ágúst. Útför hans fer
fram frá Digraneskirkju föstudaginn
7. september kl. 11.00.
Sigurrós Gísladóttir
Lilja Guðmundsdóttir Stefán Þór Sigurðsson
Halldóra Guðmundsdóttir Friðgeir Snæbjörnsson
Björn Guðmundsson Natalía Jakobsdóttir
Sóley Guðmundsdóttir Einar Unnsteinsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
VALGERÐAR ODDNÝJAR
ÁGÚSTSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild
2B Hrafnistu Hafnarfirði.
Inga Indíana Svala Vilhjálmsdóttir Páll Trausti Jörundsson
Kára Hrönn Vilhjálmsdóttir Sigmundur Smári
Stefánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ARNÞÓR BJÖRNSSON
Holtateigi 28, Akureyri,
lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldu sinnar
þriðjudaginn 28. ágúst. Útför hans fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn
7. september kl. 10.30. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri. Alúðarþakkir til
hjúkrunarfræðinga Heimahlynningar fyrir ómetanlega hjálp og
hlýju á erfiðum stundum.
Þú lifir í hjörtum okkar,
Anna Sigríður Arnþórsdóttir Tryggvi Jónsson
Birna Margrét Arnþórsdóttir Steinar Magnússon
Drífa Þuríður Arnþórsdóttir Mark Siddall
afa- og langafabörn.
Vegna stærðar blaðsins á morgun, laugardag,
verður Fréttablaðið prentað í tvennu lagi.
Frestur til að skila inn dánarauglýsingum í
laugardagsblað færist því fram til kl. 13.30.
Sýning með minjum búdd-
ískra meistara verður
opnuð í jógasal Ljósheima í
Borgartúni 3, í dag klukkan
17. Hún verður einnig opin
um helgina frá 10-19 og
aðgangur er ókeypis. Minj-
arnar eru í formi perlulaga
kristalla. Fólki gefst kost-
ur á að skoða þær og mót-
taka blessun þeirra og orku.
Nánar á ljosheimar.is.
Minjar meistara
Fjóla Jóns sýnir portrett sem hún
hefur unnið að frá síðustu áramótum
á Ljósanótt nú um helgina. Sýning-
in, sem haldin er á Icelandair Hótel í
Keflavík, er tileinkuð vini Fjólu, Her-
manni Fannari Valgarðssyni, sem
féll frá á síðasta ári, langt fyrir aldur
fram. Mun afrakstur sýningarinnar
renna í minningarsjóð sem helgaður
er Hemma.
Verkin eru unnin með akríl, kolum,
pastelkrít, mulningi, vatnslitum,
blýöntum og lökkum á ýmsar papp-
írstegundir. Sýningin sem var opnuð
í gær verður opin fram á sunnudag.
Þess má geta að sýningin er tíunda
einkasýning Fjólu.
Ljósanótt, menningar- og fjöl-
skylduhátíð Reykjanesbæjar, er nú
haldin í þrettánda sinn, hún var hald-
in í fyrsta sinn árið 2000.
Sýnir á Ljósanótt Merkisatburðir1919 Listsýning opnuð almenningi í
barnaskólanum í Reykjavík. Var þetta
fyrsta slík sýning á Íslandi. 90 verk eftir
15 listamenn voru sýnd.
1919 Leikrita- og ljóðskáldið Jóhann Sig-
urjónsson deyr í Danmörku, þar sem
hann bjó, 39 ára að aldri.
1980 Á Fljótsdalshéraði finnst silfursjóð-
ur mikill, talinn frá landnámsöld. Löngu
síðar spunnust miklar deilur um aldur
sjóðsins.
1994 Lengsta skák í skáksögu Íslands til
lykta leidd með jafntefli eftir 183 leiki.
Jóhann Hjartarson og Jón Garðar Við-
arsson tefldu á Skákþingi Íslands í Vest-
mannaeyjum.
1997 Díana prinsessa af Wales og Dodi
Al-Fayed láta lífið í bílslysi í París.
HERMANN FANNAR VALGARÐSSON