Fréttablaðið - 31.08.2012, Qupperneq 58
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR34
BAKÞANKAR
Björns Þórs
Sigbjörns-
sonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Er þetta ekki
geggjað? Elsku
vinur...
Það er á svona
stundum sem
ég velti fyrir
mér ...
Er yfir höfuð
eitthvað í
gangi
hérna inni?
Hey!
Þetta er
mitt her-
bergi!
Kenndu
mér.
Kenndu mér
siði símans.
Það er ekki hægt að
„kenna“ það, mamma.
Þetta er tilvera.
Þetta er ástand.
Þú verður
að fara inn í
símann.
Tileinka
þér
símann.
Vera
síminn.
Haraldur
Nei, þetta
er Sara.
Þú ert
bara að
giska.
Fljótur, pabbi
þinn er að
koma.
Settu
hringinn aftur
í nefið.
Hjálp!
Hjálp!
Vill einhver
hjálpa mér?! Ég missti fjar-
stýringuna.
Geturðu rétt
mér hana?
...og svo vissi ég ekki fyrr en það var
búið að skrá mig á þrenns konar
íþróttaæfingar og sumarbúðir.
Fyrsta minning mín frá Akureyri er einhvern veginn svona: Ég var átta
ára og að leika mér á glænýja eldrauða
fjögurra gíra hrútastýris-Superia hjólinu
mínu fyrir utan heima. Ég var nýfluttur
í bæinn og þekkti fáa. Vatt sér þá að mér
hjólbeinóttur náungi sem var að bera út
Íslending og spurði hvort hann mætti
prófa. Svarið var einfalt: „Nei, ég má
ekki lána.“ Þetta hefur verið rifjað upp
reglulega í þau 32 ár sem liðin eru því
blaðberinn varð síðar besti vinur minn.
VIÐ krakkarnir á Akureyri áttum
bara tvennar buxur. Stuttbuxur fyrir
sumrin og snjóbuxur fyrir veturna. Á
Akureyri var veðrið nefnilega eins og
það á að vera; með skörpum skilum
milli árstíða. Það rigndi aldrei á
Akureyri og ekki minnist ég þess að
þar hafi vindur blásið að ráði. Bara
sól eða snjókoma.
ÉG MAN fyrsta kossinn. Bak við bank-
ann við Ráðhústorgið. Ég man þegar
ég stal frostpinna í fyrsta (og
segjum eina) skiptið. Í KEA við
Brekkugötu. Ég man fyrsta
sopann. Hann var vondur
en samt góður á sinn
hátt.
ÉG VAR í KA og hataði Þór. Auðvitað
hataði ég ekki Þór en þóttist gera það.
Rígurinn milli félaganna er nauðsyn-
legur. Baraflokkurinn var mín hljóm-
sveit og við hjólbeinótti gaurinn hlust-
uðum á Catcher comin‘ og skoðuðum
klámfengið plötuumslagið eins og enginn
væri morgun dagurinn.
AKUREYRI var stór fyrir litla stráka en
minnkaði auðvitað eftir því sem árin liðu
og við urðum stærri. KEA var með búð
á nánast hverju götuhorni og annar hver
bæjarbúi vann hjá Sambandinu. En svo
hættu Sambandið og KEA-búðirnar og þá
fór ég suður. Ég sem aldrei ætlaði suður.
Aldrei fór ég aldrei suður.
NÚ FER ég reglulega norður og stel
frostpinna og geri allt hitt sem ég gerði
áður. Ég er ferðamaður í gamla bænum
mínum sem allt í einu er orðinn 150 ára
en ber aldurinn einstaklega vel og lítur
líklega betur út en nokkurn tíma fyrr.
Allt þetta háskólafólk, þessar verslanir,
þessi menning. Akureyri er klárlega
besta Akureyri í heimi og ég er til í að
rífast við hvern þann mann sem vill mót-
mæla því.
TIL hamingju Íslendingar með Akureyri.
Besta Akureyri í heimiLÁRÉTT
2. teikniblek, 6. í röð, 8. að, 9. stefna,
11. bókstafur, 12. töng, 14. einkennis,
16. frú, 17. segi upp, 18. tíðum,
20. tveir eins, 21. fugl.
LÓÐRÉTT
1. fituskán, 3. stefna, 4. eyja í
Miðjarðarhafi, 5. slagbrandur,
7. stífkrampi, 10. saur, 13. spor,
15. þekking, 16. aur, 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. túss, 6. rs, 8. til, 9. átt,
11. ká, 12. kjafi, 14. aðals, 16. fr,
17. rek, 18. oft, 20. yy, 21. rita.
LÓÐRÉTT: 1. brák, 3. út, 4. sikiley,
5. slá, 7. stjarfi, 10. tað, 13. far,
15. skyn, 16. for, 19. tt.