Fréttablaðið - 31.08.2012, Blaðsíða 62
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR38 38
menning@frettabladid.is
Myndlist ★★★★ ★
Veggir
Ingvar Högni Ragnarsson
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Myndasería af vegg sem umlykur
byggingarsvæði í miðbæ Reykja-
víkur. Þetta hljómar satt að segja
ekki neitt brjálæðislega spenn-
andi, en þetta er samt myndefnið
sem ljósmyndarinn Ingvar Högni
Ragnarsson valdi sér fyrir einka-
sýninguna Veggir sem nú stendur
yfir í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur.
Á sýningunni eru sjö myndir
sem teknar eru á eins árs tíma-
bili. Myndirnar virðast allar hafa
verið teknar snemma að vori eða
seint um haust, miðað við snjó-
magnið á götunni fyrir framan
vegginn og birtuna á myndunum.
Þetta eru ekki stórar myndir en
passlegar fyrir sýningarrýmið,
sem ber heitið Skotið og ber það
nafn með rentu.
Í sýningarskrá segir að á bygg-
ingarsvæðinu sem veggurinn
umlykur, hafi staðið til að byggja
ódýrar íbúðir fyrir ungt fólk í
Reykjavík, en það hefur staðið
tómt og óraskað frá efnahags-
hruninu. Jafnframt segir að verk-
efnið hafi verið hugsað sem „til-
raun til að skrásetja félagslegar
aðstæður og fylgjast með þeim
pólitísku, félagslegu og hagfræði-
legu breytingum sem áttu sér
stað hér á landi eftir búsáhalda-
byltinguna.“
Einmitt, gæti einhver sagt. Eru
væntingarnar lista mannsins til
verkefnisins ekki aðeins of há-
leitar. Býst hann við því virkilega
að serían birti okkur þá niður-
stöðu sem hann sækist eftir …
Kannski er þetta raunverulega
einlæg viðleitni listamannsins,
eða einfaldlega lúmskur húmor,
enda er harla lítið að gerast á
myndunum. Þetta er nánast sama
myndin aftur og aftur. Af sama
veggnum. Þetta er eins og að
horfa á málningu þorna. En viti
menn, þegar maður gengur frá
einni mynd til annarrar og skoðar
betur þá sér maður eitthvað krot
vera að birtast á veggnum, ein-
hverjar skammstafanir. Svo
æsast leikar, með gulu spreyti
stendur skrifað: „Ekki vera“. Já,
spurning hvort þetta sé ádeila á
hrunið. Svo kemur sprengjan:
Pínulítil mynd af hnefa sem
heldur merki Sjálfstæðis-
flokksins, bláa fálkanum, í
krumlu sinni.
Þegar maður les lengra í sýn-
ingarskrá sér maður að lista-
maðurinn gerir sér grein fyrir
að tilraunin hefur mis heppnast:
„Almenningsrými hafa misst
mikilvægi sitt í pólitískri umræðu
og sýndarveruleikinn og félags-
miðlar eru hinir nýju veggir fyrir
byltingarkenndar hugmyndir og
félagsleg samskipti.“
Niðurstaðan er því sú að
Facebook veggir-hafi í dag meiri
slagkraft en veggir af „holdi og
blóði“, og óþarfi að splæsa í sprey-
dós, þegar hægt er að spreyja raf-
rænt á netinu.
Veðraður og upplitaður kross-
viðsveggurinn er aðalstjarna sýn-
ingarinnar. Fallegur, malerískur
og heillandi í litbrigðum. Hann
nýtur sín best þegar sem fæst
húsþök eða Hallgrímskirkju-
turnar gægjast yfir hann, en er
samt alltaf flottur. Myndin innst
í skotinu, þar sem myndavélin
súmmar mest inn á vegginn, er
þannig fallegust.
Birtan er íslensk, súld og leys-
ingar, sólin björt bak við ský, og
snjórinn að hopa, hiti um frost-
mark. Ekta íslenskt.
Þóroddur Bjarnason
Niðurstaða: Góð og næm sýning
með lúmskum húmor og skilaboðum
sem hitta í mark.
MISHEPPNUÐ TILRAUN
VEGGIR Niðurstaða listamannsins er að mati gagnrýnanda að það sé óþarfi að
splæsa í spreydós þegar hægt er að spreyja rafrænt á netinu.
Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari og
Richard Simm píanóleikari halda
tónleika í Hlöðunni að Kvoslæk í
Fljótshlíð sunnudaginn 2. septem-
ber klukkan 15. Á efnisskránni
eru verk eftir Johannes Brahms,
Eugene Ysaÿe og Olivier Messiaen.
Boðið er upp á kaffi í hléinu.
Miðasala er við innganginn og frítt
er fyrir börn í fylgd fullorðinna.
Að loknum tónleikum munu Rut
og Richard taka verkin upp og þar
með ljúka upptökum fyrir þrjá
geisladiska sem þau hafa unnið
að undanfarin tvö ár. Sá fyrsti
kom út á síðasta ári með verkum
eftir Mozart og César Franck.
Hinir tveir, annar með öllum són-
ötum Brahms fyrir fiðlu og píanó
og hinn með stuttum hugljúfum
verkum eftir íslensk og erlend tón-
skáld, koma út á næstu árum.
Tónleikar og kaffi
GÓÐ STEMNING Hægt er að sitja bæði uppi og niðri í Hlöðunni á Kvoslæk.
Bækur ★★★★ ★
Flöskuskeyti frá P
Jussi Adler Olsen
Forlagið
Mögnuð sending frá Danaveldi
Jussi Adler Olsen kann að skrifa spennusögur, um það er engum blöðum að
fletta. Flöskuskeyti frá P er þriðja sagan hans sem þýdd er á íslensku og lesendur
fá að fylgjast áfram með hinu sérkennilega lögregluteymi í deild Q; Carl Mörk,
Assad og Rósu. Þau fást við mál sem aðrir hafa gefist upp á og til þeirra berst
gamalt flöskuskeyti sem, sé það raunverulegt, er sönnun um skelfilegan glæp.
Olsen lætur einkar vel að búa til óhugnað á hversdagslegan hátt. Lýsingar
hans á illvirkjanum eru magnaðar og í raun er það kannski frekar það sem hann
segir ekki sem vekur óhug en það sem sagt er. Honum hefur tekist að lýsa
illskunni, ekki með því að upphefja hana heldur með því að færa hana niður á
hversdagslegt plan.
Persónusköpun er með ágætum og sérkennilegar heimilisaðstæður, sem
allflestar sögupersónurnar búa við, eru nógu skrítnar og skemmtilegar til að
vekja áhuga lesandans. Undirmenn sem engu hlýða vekja þó á stundum upp
spurningar um hvernig lögreglustarfið eigi að ganga fyrir sig, en karakterarnir eru
það áhugaverðir að slíkar hugsanir eru látnar lönd og leið.
Það er hins vegar fyrst og fremst spennan sem drífur söguna áfram. Óhugnað-
urinn liggur í loftinu á sinn hversdagslega hátt og Olsen veitir lesendum innsýn
í líf aðal- og aukapersóna sinna þannig að maður vill vita meira, fylgja þeim
áfram í næstu sögu. Og án efa mun það bjóðast, því spurningum um einkalíf
persónanna er velt upp sem augljóslega á að svara í næstu bókum. Og þá er
bara að bíða eftir næstu sendingu frá Adler Olsen. Kolbeinn Óttarsson Proppé
Niðurstaða: Flöskuskeyti frá P er frábær saga, vel skrifuð og spennandi.
Save the Children á Íslandi
„Viðtökur Fantasía hafa
komið okkur ánægju-
lega á óvart en ég held
að íslenskar konur hafi
langað í bók af þessu
tagi lengi,“ segir Egill
Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Forlagsins,
en fyrsta upplag, 2.500
eintök, er uppselt hjá
útgefanda og annað jafn
stórt upplag er í prentun.
„Til að mæta þessari eft-
irspurn erum við að hraða
útgáfu rafbókarinnar sem
kemur út í dag [í gær]. Við höfum
aldrei fylgt prentaðri bók jafn hratt
eftir með rafbók þannig að þetta
eru tímamót hjá okkur.“
Í Fantasíum eru birtar kynlífs-
fantasíur sem ritstjóri bókarinnar,
Hildur Sverrisdóttir, valdi úr
fjölda aðsendra sagna. Egill segir
velgengni bókarinnar
einkum byggja á því
hversu góðar sögurnar
eru og hversu vel
bókinni er ritstýrt.
„Íslenskar konur sendu
frábært efni sem
Hildur vann svo úr.
Auðvitað vekur efni
af þessu tagi umræðu
og áhugi en for sendan
fyrir sölunni er að
bókin sé góð.“
Egill telur ekki
beint samband á milli
bókarinnar og umræðu sem met-
sölubókin Fifty Shades of Grey
hefur vakið en hún kemur raunar
út í íslenskri þýðingu hjá For laginu
eftir helgi. „Þær eru vissulega
skyldar þannig að þær eru erótískt
efni og erótískt efni er það sem allt
snýst um í bókabransanum í dag.“
Fantasíur rjúka út
FRUMSÝNING 20. OKTÓBER KL. 20
2. sýn: Föstudaginn 26. október
3. sýn: Laugardaginn 27. október
4. sýn: Sunnudaginn 4. nóvember
5. sýn: Laugardaginn 10. nóvember
6. sýn: Laugardaginn 17. nóvember
Miðasala í Hörpu og á www.harpa.is - sími 528 5050 - midasala@harpa.is
WWW.OPERA.IS
ÞRJÁR SÝNINGAR Þrjár einkasýningar verða opnaðar í Gerðarsafni laugardaginn 1.
september klukkan 15. Helgi Gíslason myndhöggvari sýnir þrívíð verk og teikningar, Sigrún Ó.
Einarsdóttir og Søren S. Larsen glerlistaverk og Torfi Jónsson leturskrift og vatnslitamyndir.