Fréttablaðið - 31.08.2012, Síða 66
31. ágúst 2012 FÖSTUDAGUR42
bio@frettabladid.is
42
Gamanmyndin Hit and Run
er frumsýnd í kvikmynda-
húsum í kvöld.
Gamanmyndin Hit and Run segir
frá Charlie og Annie sem ákveða
að leggja af stað akandi til Los
Angeles. Einn hængur er þó á, því
Charlie er í vitnavernd og á ekki
að yfirgefa heimili sitt. Parið er elt
uppi af glæpamönnum í hefndar-
hug, fyrrum kærasta Annie og lög-
reglumanni sem er ætlað að gæta
öryggis Charlies.
Handritið er skrifað af Dax
Shepard sem fer einnig með aðal-
hlutverkið og leikstýrir myndinni
ásamt David Palmer. Kristen Bell
fer með hlutverk Annie og Bradley
Cooper fer með hlutverk glæpa-
mannsins og fyrrum félaga Char-
lies, Alex Dimitri. Með önnur hlut-
verk fara Tom Arnold og Kristin
Chenoweth.
Shepard steig sín fyrstu skref
í leiklistinni sem leikari í sjón-
varpsþáttunum Punk‘d með Ashton
Kutcher. Hann lék einnig á móti
Dane Cook og söngkonunni Jessicu
Simpson í gamanmyndinni Emplo-
yee of the Month árið 2006 sem
og í myndinni Idiocracy. Shepard
er trúlofaður leikkonunni Kristen
Bell og ættu þau því ekki að hafa
átt í neinum vandræðum með að
leika ástfangið par í kvikmyndinni.
Gagnrýnendur gefa myndinni 45
prósent ferskleikastig á vefsíðunni
Rottentomatoes.com. Sumir segja
myndina vera sem ferskan blæ inn
í kvikmyndaflóruna en aðrir segja
fátt annað spennandi við myndina
en bílarnir. „Myndin er hvorki
fyndin né spennandi, en í henni
eru margir fallegir bílar,“ skrifar
gagnrýnandi Chicago Reader.
Áhorfendur er eilítið jákvæðari
í garð myndarinnar og gefa henni
58 prósent ferskleikastig. Gagn-
rýnendur á vefsíðunni Metacritic.
com eru sama sinnis og segja kvik-
myndina sæmilega afþreyingu en
langt því frá að vera stórvirki.
Á flótta með kærustunni
Á FLÓTTA Parið Charlie og Annie leggja upp í ferðalag og er fylgt eftir af ýmsum aðilum. Kvikmyndin Hit and Run er frumsýnd í
kvöld.
■ Flestir bílarnir sem sjást í
myndinni eru í eigu Dax Sheperd,
þar á meðal Lincoln Continental-
bíllinn. Lítið fjármagn var til í
framleiðslu hennar og því sá
Shepard einnig um allan akstur í
myndinni.
■ Framleiðendur myndarinnar
höfðu úr tveimur milljónum
dollara að moða við gerð hennar.
Helmingur þeirrar upphæðar fór í
að greiða stefgjöld.
■ Kristen Bell er afskaplega hrifin
af letidýrum. Shepard ákvað eitt
sinn að koma unnustu sinni á
óvart á afmælisdegi hennar og
kom því í kring að hún fengi að
umgangast eitt slíkt. Bell varð svo
ánægð með þetta að hún brast
í grát.
HELMINGURINN Í STEFGJÖLD
Íslenska barnaleikritið um
ávextina í Ávaxtakörfunni
hefur nú verið flutt af sviði yfir
á hvíta tjaldið í fyrsta skipti og
verður bíómyndin frumsýnd á
morgun.
Það er margt stórra nafna
sem fer með hlutverk ávaxtanna
hressu sem hafa alltaf góðan
boðskap fram að færa. Ólöf
Jara Skagfjörð fer með hlutverk
jarðar bersins sem lagt er í ein-
elti af hinum ávöxtunum, Matti
Matt leikur hinn stjórnsama
og sjálfumglaða Imma ananas,
Helga Braga er ofurskipu-
lagða rauða eplið og Ágústa
Eva Erlendsdóttir kemur fram
í gervi Evu appelsínu sem sér
fátt annað en sjálfa sig. Birgitta
Haukdal kemur svo inn í hópinn
sem Gedda gulrót, grænmetið
sem þykir ekki eiga heima innan
um alla ávextina. Þetta eru
bara nokkrir þeirra færu lista-
manna sem leggja sitt á plóginn
í myndinni sem er full af tónlist
eftir Þorvald Bjarna.
Ýmsar nýjungar verða kynntar
til leiks í myndinni sem ekki
þekkjast úr leikritinu, þar á
meðal eru nokkur ný lög og
Mygluholan ógurlega. Mynd-
arinnar hefur verið beðið með
mikilli eftirvæntingu af yngstu
kynslóðinni og óhætt er að ætla
að bíóhúsin muni fyllast af litlum
og spenntum aðdáendum um
helgina, í fylgd foreldra sinna. - trs
Ávaxtafjör fyrir blessuð börnin
Í FYRSTA SINN Í BÍÓ Ólöf Jara og Matti Matt eru meðal þeirra sem fara með hlutverk í bíómyndinni um Ávaxtakörfuna sem
verður frumsýnd í bíóhúsunum á morgun.
Bíó ★★★ ★★
Elles
Leikstjórn: Malgorzata Szumowsa
Leikarar: Juliette Binoche, Joanna Kulig, Anaïs Demoustier
Vaggandi og groddaleg
Juliette Binoche leikur blaðakonu í París sem kemst í kynni við tvær ungar
vændiskonur í tengslum við grein sem hún vinnur að fyrir tímaritið Elle. Kon-
urnar segja sögu sína og við fáum að sjá svipmyndir úr lífi þeirra, og þá helst
úr vændinu. Á sama tíma er blaðakonan undir miklu álagi. Eiginmaðurinn
er tilætlunarsamur og tillitslaus, elsti sonurinn fiktar með fíkniefni og sjálf er
konan farin að leita
huggunar í flöskunni.
Ákveðin hætta er á
að mynd af þessu tagi
festist í hjólförum for-
dæminga og predikana,
en Elles lætur allt slíkt
eiga sig. Þeir sem eru
mótfallnir vændi sjá
ömurleikann í kynlífs-
senunum á meðan
aðrir sjá eitthvað allt
annað. Annað slagið
gerist myndin meira að
segja svo djörf að sýna
gjaldskylda bólfimina í jákvæðu ljósi. Kannski eru skoðanir mínar eilítið litaðar
af andstyggð minni á „greininni“, en þessi atriði eru ekki síður óþægileg en
þau subbulegustu.
Og fyrst við erum í kynlífssenunum er rétt að taka það fram að Elles er
á köflum óþarflega groddaleg. Það þjónar engum tilgangi að sýna konu í
kvikmynd fá hlandbunu upp í munninn á sér. Þá er vaggandi myndatakan
þreytandi til lengdar og tökumaðurinn skemmti sér eflaust betur yfir bjöguðu
linsunni sinni en áhorfendur munu gera. Í miðjunni eru allir óeðlilega mjóir en
breikka svo til hliðanna.
Það er gríðarsterkur leikhópurinn sem heldur myndinni uppi. Binoche hefur
fyrir löngu sannað sig sem ein allra besta leikkona heims, og hinar aðalleik-
konurnar tvær eru einnig alveg frábærar. Einnig lumar myndin á einstöku
atriði sem mun lifa lengur í minningu minni en myndin sjálf. Það á sér stað
við borðstofuborð fjölskyldunnar og er þrælmagnað. Haukur Viðar Alfreðsson
Niðurstaða: Tætingsleg mynd á köflum, en frábærir leikarar sigla þessu í
höfn.
TALSINS eru þær myndir þar sem leikstjórinn Tim Burton hefur stýrt eiginkonu sinni, Helenu Bonham Carter, nokkuð
sem hann segir vera auðvelt verk. Sú nýjasta er væntanleg í lok árs en það er stórvirkið Vesalingarnir, eða Les Misérables. 8
BOLTAVAKTIN
Staða og úrslit
leikja í beinni
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag
Óskarsverðlaunaleikarinn
Michael Douglas er í samninga-
viðræðum um að leika Ronald
Reagan, fyrrum Bandaríkja-
forseta, í væntanlegri mynd um
leiðtogafundinn í Höfða. Þessar
viðræður hafa komið sumum
á óvart því sjálfur er Douglas
harður stuðningsmaður Demó-
krataflokksins í Bandaríkjunum
en Reagan var repúblikani.
Myndin kallast Reykjavík og
gerist árið 1986. Bretinn Mike
Newell mun hugsanlega leik-
stýra myndinni og fram leiðendur
verða Ridley Scott, leikstjóri Pro-
metheus, og David W. Zucker.
Hollywood Reporter greinir frá
því að ekki hefur verið ákveðið
hver fer með hlutverk Mikhails
Gorbatsjov, fyrrverandi forseta
Sovétríkjanna.
Leikur repúblikana
Í HLUTVERKI REAGANS Michael Dou-
glas er í samningaviðræðum um að
leika Ronald Reagan. NORDICPHOTOS/GETTY