Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 6

Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 6
1. september 2012 LAUGARDAGUR6 blús djass sönglögpopp Tvö erfiðleikastig. Styrkur og jafnvægi fyrir unga sem aldna Rétt öndun – Góð slökun Kennt í Sjúkraþjálfaranum Hafnarfirði. Byrjar 11. september sími 691 0381 Kristin Björg Komdu í yoga SKÓLAMÁL Foreldrar nýnema við Menntaskólann í Reykjavík (MR) verða að samþykkja bréflega að barn þeirra sé tollerað í busaviku skólans. Löng hefð er fyrir tolleringunum í MR en þá bjóða eldri nemendur nýnema við skólann velkomna með því að kasta þeim upp í loftið og grípa. „Þetta er hluti af samstarfi við foreldra og við erum líka að beina því til foreldra hver staða skólans er,“ útskýrir Linda Rós Michaelsdóttir, rektor skólans. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem starfs- fólk skólans var dæmt fyrir víta- vert gáleysi þegar alvarlegt slys varð í hefðbundnum gangaslag, sem síðan hefur verið aflagður. „Maður veltir fyrir sér í hvernig stöðu skólinn er,“ segir Linda Rós. „Við verðum að reyna að koma í veg fyrir að svona slys komi fyrir aftur og að það sé ekki eingöngu hægt að herma svona upp á starfs- menn skólans sem voru þó að sinna skyldu sinni.“ Linda Rós segist hafa sett skýrar reglur um hvernig eldri nemar skuli koma fram við nýnem- ana. „Ég held að krakkarnir séu með vitaðir um að þetta sé meira umgjörðin en innihaldið og ég geri mér vonir um að þetta verði skemmtun fyrir alla.“ Misjafnt er milli framhalds- skóla hvernig tekið er á móti nýnemum. „Það er ekkert busað í Versló,“ segir Ingi Ólafsson, skólastjóri í Verslunarskólanum. Þar fara elstu nemendurnir með nýnema í ferð þar sem farið er í hópleiki og haldin kvöldvaka. Í Verkmenntaskóla Austurlands (VA) er sprautað vatni yfir nýnema, þeir látnir baða sig í slori og ís og sumir hverjir látnir velta sér í drullunni á bryggjunni í Neskaup- stað. Allir fá þó að velja hvort þeir séu með. Þórður Júlíusson, skóla meistari VA, var spurður hvort hann gæti tekið undir það sjónarmið að í bus- uninni felist niðurlæging fyrir nemendurna, óháð því hvað þeim finnst eðlilegt, og svaraði: „Eigum við ekki að segja að þetta sé hefð og hefðir miða ekk- ert alltaf að því hvað er uppbyggi- legt. Hefðir skólanna geta haft rétt á sér þó það sé ekki uppbygging og menntun sem í þeim felst.“ Þórður tekur einnig fram að athöfnin sé alfarið undir stjórn kennara skólans og skólameistara. „Nýnemarnir hafa látið skoðun sína í ljós. Þeim þykir þetta pass- legt og alls ekki harkalegt,“ segir Þórður. Hann segir engan hafa kvartað undan meðferðinni. birgirh@frettabladid.is Foreldrar fá að ráða hvort barnið sé busað Menntaskólinn í Reykjavík vill að foreldrar nýnema við skólann gefi skriflegt leyfi fyrir því að nemarnir séu tolleraðir. „Hluti af samstarfi við foreldra,“ segir rektor skólans. Framhaldsskólar taka misjafna afstöðu til nýnemavígslna. NÝIR KVENSKÆLINGAR Nemendur á fjórða ári í Kvennaskólanum vígðu nýnema við skólann á miðvikudag. Þeim var aðeins leyft að sulla vatni yfir „busana“. Nokkrir nýnemar treystu sér ekki í busunina og fylgdust með álengdar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Umboðsmaður barna hefur ekki fengið neinar ábendingar um að ofbeldi hafi verið beitt við busavígslur í ár eða í fyrra. Árin 2009 til 2011 sendi emb- ættið út bréf til skólastjóra allra framhaldsskóla og nemendafélaga þeirra þar sem brýnt var fyrir þátttakendum að umgangast nýnema sem börn. „Nemar eru börn þar til þeir ná átján ára aldri og eiga því rétt á þeirri vernd sem velferð þeirra krefst. Margir eru óöruggir við upphaf skólagöngu í nýjum skóla og því er tilvalið að nota busadaginn til þess að bjóða nýja nemendur velkomna á jákvæðan og uppbyggilegan hátt,“ segir í bréfinu síðan í fyrra og er þetta opinber afstaða umboðsmanns barna. Nemar eru börn til átján ára aldurs FRAMKVÆMDIR Enn standa yfir framkvæmdir á lóð Hörpu, tónlistarhússins við höfnina í Reykjavík. Áður en framkvæmdir hófust var gerð bráðabirgðauppfyll- ing norðan hafnargarðsins við Hörpuna. Bráðabirgða fyllingin var notuð sem vinnusvæði á meðan tónlistarhúsið var í bygg- ingu. „Þetta er vinnusvæðið sem sett var upp í upphafi,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Fyllingin er á vegum Íslenskra aðalverktaka og Portusar og mun hún hverfa í fyllingu tímans. - bþh Svæðið umhverfis tónleikahúsið Hörpu að taka á sig varanlega mynd: Fyllingin norðan Hörpu fjarlægð FYLLINGIN RIFIN Ásýnd Hörpu batnar að öllum líkindum þegar landfyllingin er farin, að minnsta kosti munu þeir sem sjá hana af sjó njóta góðs af. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Eigum við ekki að segja að þetta sé hefð og hefðir miða ekkert alltaf að því hvað er upp- byggilegt. ÞÓRÐUR JÚLÍUSSON SKÓLAMEISTARI VA HEILBRIGÐISMÁL Árið 2011 voru framkvæmdar 969 fóstureyð- ingar á Íslandi, sem er svipaður fjöldi og undangengin ár. Séu sömu tölur skoðaðar miðað við hverja 1.000 lifandi fædda má hins vegar merkja nokkra aukn- ingu. Að jafnaði eru gerðar flest- ar fóstureyðingar hjá 20–24 ára konum. Árið 2011 varð engin breyting á því, en tæplega 30% allra fóstureyðinga það ár voru hjá konum í þeim aldurshópi. - shá Fjöldi fóstureyðinga sá sami: 969 fóstureyð- ingar í fyrra EVRÓPA Atvinnuleysi eykst lítillega í ríkjum Evrópusambandsins, sam- kvæmt nýjum tölum frá hagstofu Evrópusambandsins. Rúmlega 25 milljónir manna voru án atvinnu í júlí. Alls voru 10,4 prósent íbúa í ríkjum Evrópusambandsins atvinnulaus í júlí, sem er sama pró- sentutala og í júní. Atvinnulausum fjölgaði um 43 þúsund milli mánað- anna. Innan evrusvæðisins mælist atvinnuleysið nú 11,3 prósent, líkt og í júní, en atvinnulausum fjölgaði um 88 þúsund í evruríkjunum sautján milli mánaða. Atvinnulausum innan Evrópu- sambandsins hefur fjölgað um rúmar tvær milljónir manna milli ára. Atvinnuleysið er mest á Spáni þar sem það er rúmlega 25 pró- sent, og í Grikklandi þar sem það er rúm 23 prósent. Fæstir eru atvinnu lausir í Austurríki, Hol- landi, Þýskalandi og Lúxemborg. Miðað við stöðuna fyrir ári hefur atvinnuleysi aukist í 16 ríkjum, minnkað í 10 og haldist stöðugt í Slóveníu. Atvinnuleysi minnkaði mest í Eistlandi, Lettlandi og Lit- háen en jókst mest í Grikklandi, á Spáni og á Kýpur. - þeb Atvinnulausum innan ESB-ríkjanna fjölgar um tvær milljónir milli ára: 25 milljónir manna án atvinnu LEITAÐ AÐ VINNU Atvinnuleysi er sem fyrr mest á Spáni. Þar er fjórðungur án vinnu. NORDICPHOTOS/AFP Á að endurskoða ráðningarmál hjá ráðuneytunum? JÁ 89,6% NEI 10,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Hefur þú orðið var við fleiri hunda á höfuðborgarsvæðinu? Segðu þína skoðun á Vísir.is KJÖRKASSINN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.