Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 62

Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 62
1. september 2012 LAUGARDAGUR16 Yfirverkstjóri / Rekstrarstjóri Fjarðanet hf er eitt af stærstu veiðarfærafyrirtækjum landsins og rekur alhliða veiðarfæraþjónustu á fjórum stöðum í kringum landið; Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Fáskrúðsfirði. Í Neskaupstað og á Ísafirði rekur Fjarðanet einnig Gúmmíbátaþjónustu og Fjarðanet er eina sérhæfða fyrirtækið í þjónustu við fiskeldi á Íslandi með rekstri á þvottastöð fyrir fiskeldispoka á Reyðarfirði og framleiðslu á fiskeldispokum og tengdum búnaði. Fjarðanet er hluti af Hampiðjan Group. Fjarðanet óskar að ráða yfirverkstjóra/rekstrarstjóra yfir netaverkstæði sitt á Ísafirði. Á netaverkstæði Fjarðanets á Ísafirði fer fram framleiðsla og sala á fiskitrollum, rækjutrollum snurvoðum og tengdum búnaði, ásamt þjónustu við Fiskeldi. Starfið felur í sér almenna vinnu á netaverkstæði ásamt ábyrgð á rekstri verkstæðisins; skipulagning framleiðslu og þjónustu, gerð teikninga, tilboða, pantana og samskipti við viðskiptavini og birgja. Viðkomandi vinnur í nánu samstarfi við aðra verkstjóra fyrirtækisins og Hampiðjuna. Við leitum að lærðum netagerðarmanni eða manni með langa reynslu af veiðarfæragerð. Við leitum að, sjálfstæðum, jákvæðum, og þjónustuliprum einstaklingi sem á gott með mannleg samskipti. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða almenna tölvukunnáttu. Nánari upplýsingar gefur Jón Einar Marteinsson í síma 4 700 802 eða 856 0802. Umsóknir ásamt starfsferilskrá skulu sendar, fyrir 15. september til Fjarðanets hf, Strandgötu 1, 740 Neskaupstað eða í tölvupósti á joneinar@fjardanet.is Jöfnunarstyrkur til náms Umsóknarfrestur á haustönn 2012 er til 15. október Nemendur á framhaldsskólastigi sem ekki njóta lána hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á náms- kostnaði. Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða að stunda nám fjarri heimili sínu. • Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að dvelja fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni vegna náms). • Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja nám frá lögheimili og fjölskyldu fjarri skóla). Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir til að kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is). Umsóknarfrestur vegna haustannar 2012 er til 15. október næstkomandi! Lánasjóður íslenskra námsmanna Námsstyrkjanefnd Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um verkefni sem hvetja til virkni atvinnuleitenda sem fá fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Velferðarsviði. Verkefnin sem sótt er um styrk til þurfa að vera hvetjandi og þau þurfa að styrkja, virkja og efla hæfni þátttakenda til að takast á við breyttar aðstæður á vinnumarkaði. Umsóknarfrestur er til 30. september 2012. • Við úthlutun fjármagns er tekið mið af því að verkefnin nýtist sem flestum, að þau séu fjölbreytt og leiði til aukinnar velferðar. • Skilyrði fyrir styrkveitingu er að námskeiðin/ úrræðin sem samþykkt verða standi til boða þvert á þjónustumiðstöðvar. • Námskeiðin/úrræðin skulu haldin á dagvinnutíma Nánari upplýsingar eru á vef Reykjavíkurborgar: www.reykjavik.is/virkniverkefni Styrkir til verkefna sem hvetja til virkni atvinnuleitenda Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala auglýsir lausa til umsókna tvo þriggja ára styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands tengda Rannsóknarstofu Landspítala og Háskóla Íslands í Öldrunarfræðum (RHLÖ). Styrkirnir einskorðast við doktorsnema við Háskóla Íslands og úrvinnslu gagna Öldrunarrannsóknar Hjartaverndar (AGES-RS I og II) og gögn sem tengja mætti þeirri rannsókn. Doktorsneminn fær starfsaðstöðu við RHLÖ að Ægisgötu 26 og skal vinna rannsóknina þar. Auk styrksins sem tekur mið af taxta RANNÍS fyrir doktorsnema á hverjum tíma veitir rannsóknarstofan sérstakan stuðning við tölfræðilega úrvinnslu. AGES RS rannsókninni hefur verið lýst í greininni: Age, Gene/Environment Susceptibility-Reykjavik Study: multidisciplinary applied phenomics. Harris TB, Launer LJ, Eiriksdottir G, Kjartansson O, Jonsson PV, Sigurdsson G, Thorgeirsson G, Aspelund T, Garcia ME, Cotch MF, Hoffman HJ, Gudnason V. Am J Epidemiol 2007;165(9):1076-87. Doktorsneminn getur komið frá hvaða námsbraut sem er innan Háskóla Íslands. Doktorsneminn þarf að leggja fram áætlun um doktorsnám sem samþykkt hefur verið af rannsóknarnefnd öldrunarrannsóknar Hjartaverndar og viðkomandi Háskóladeild svo og upplýsingar um doktorsnefnd. Sjálfseignarstofnun St. Jósefsspítala hefur hug á að efla doktorsnám á sviði öldrunarfræða með ofangreindum hætti með árlegum styrkveitingum næstu 3 árin. Með því er vonast eftir því að lifandi samfélag myndist um öldrunarrannsóknir þar sem doktorsnemar geta haft stuðning hver af öðrum auk góðrar starfsaðstöðu. Umsóknir verða metnar af sjálfstæðri vísindanefnd á vegum Vísinda-, Mennta- og Nýsköpunarsviðs Landspítala á samkeppnisgrunni. Ef fullnægjandi umsóknir fást verða styrkir veittir á vísindafundi Landspítalans sem haldinn er í apríl 2013. Umsóknarfrestur er til 31. janúar 2013. Frekari upplýsingar veitir Pálmi V. Jónsson, prófessor, formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar St. Jósefsspítala, sími 5439410, netfang: palmivj@landspitali.is og skal rannsóknaráætlun send til hans. Styrkir til doktorsnema við Háskóla Íslands Færsla jarðstrengs vegna ofanflóðavarna Jarðvinna og lagning Ísafjarðarbær Landsnet óskar eftir tilboðum í jarðvinnu og lagningu 66 kV háspennustrengs og 11 kV háspennustrengja á Ísafirði í samræmi við útboðsgögn IF1-01. Verkið felur í sér lagningu 66 kV háspennustrengs frá Engi við Seljalandsveg, meðfram Skutulsfjarðarbraut að tengi- virkinu í Stórurð, alls um 2 km leið. Einnig lagningu 11 kV strengja hluta leiðarinnar. Helstu verkliðir eru: • Gröftur og fleygun lagnaskurðar, lagning háspennu- strengja og fjarskiptarörs, söndun, lagning aðvörunar borða, lagning gangstéttarhellna yfir 66 kV strengjum, fylling; 2 km. • Aðstöðusköpun í 2 tengiholum. • Frágngur yfirborðs til samræmis við umhverfið. Verkinu skal að fullu lokið 30. nóvember 2012. Útboðsgögn verða afhent í móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 4. september 2012. Tilboðum skal skila til móttöku Landsnets, Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 18. september 2012 þar sem þau verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Útboð IF1-01 Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Laugardalslaug, raflæsingar fyrir skápa í búningsklefa, útboð nr. 12912. Allar nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.