Fréttablaðið - 01.09.2012, Side 84
1. september 2012 LAUGARDAGUR56
BAKÞANKAR
Brynhildar
Björnsdóttur
Ég hefði auðvitað getað skrifað Að lesa bók er ævintýri, Lengi býr að fyrstu
bók, Lestur er bestur eða eitthvað miklu
sniðugra og meira grípandi með lestur eða
bók í titlinum. En ég hefði aldrei fengið
eins marga til að athuga um hvað þessi
pistill er ef ég hefði valið einhverja ofan-
greindra fyrirsagna. Með því að tengja
saman lestur og lostvaka náði ég senni-
lega til mun breiðari hóps en hefði annars
veitt nokkru sem skrifað er um lestur
athygli. Kynlíf og allt sem því tengist
selur því allir hafa áhuga á kynlífi, ekki
satt?
ÞETTA uppgötvuðu nokkrar lestrarhryss-
ur í bandarískum bæ sem tóku sig saman
fyrir nokkrum misserum og útbjuggu
dagatal til að að hvetja til aukins
lestrar undir yfirskriftinni Reading
Is Sexy, eða Lestur er kynþokka-
fullur. Ágóðinn af sölu dagatalsins
rann til styrktar Landssam tökum
lesblindra í Bandaríkjunum.
Skemmst er frá því að segja að
þessi tenging lestrar og kynþokka
hefur mælst vel fyrir. Samtökin
Traveling Stories láta nú gera
boli, barmmerki, könnur og tíma-
bundin húðflúr með áletruninni
og að sjálfsögðu dagatöl með
myndum af fáklæddu fólki í
eggjandi en þó sakleysislegum
stellingum með nefið niðri í bók. Samtökin
láta síðan ágóðann af sölu þessa varnings
renna til uppbyggingar bókasafna víðs
vegar um heiminn. Og varningurinn selst
eins og sexý lummur.
ÞAÐ er vissulega ánægjulegt að fleira sé
nú talið lostvekjandi en kynþokkafullt kjöt
( feitt kjöt hefur hins vegar átt undir högg
að sækja sem lostvaki, hverju sem það er
nú um að kenna). Og mjög ánægjulegt að
áhugi og ánægja bókaorma með það að
þeirra helsta áhugamál skuli nú loks vera
talið til kynþokkafulls athæfis leiði til
útbreiðslu lestrar og bóka um veröld víða,
allt frá El Salvador til Filippseyja með
viðkomu í Súdan. Með Reading Is Sexy-
bol slærðu tvær flugur með einu sexý,
sýnir heiminum að víst geti kynþokki
fylgt klárum kolli og styður jafnframt
útbreiðslu fagnaðarerindis bóka og læsis.
ÉG er nokkuð sannfærð um að fá slag-
orð kalla nýja lesendur að bókatrogunum
af viðlíka mætti og sá möguleiki að ein-
staklingur verði áhugaverðari til sam-
lífis vegna meintrar bókhneigðar. Mér
finnst samt umhugsunarefni að kynþokki
og kynlíf skuli vera svo happadrjúgt í
markaðs setningu og sölu sem raun ber
vitni. En hvað sem því líður geta ýmsir átt
von á að fá lestrarlostadrykkjarmál frá
mér í jólagjöf.
Lestur er sexý1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Þú ættir að skella þér á
þessa klassík frá Rektümt-
rück! Kolsvartur satanískur
djass frá Póllandi!
Einmitt
já..aaa
Hvað
er að
þér?
Veit það ekki! Er
búinn að vera
með skrýtna
magaverki í allan
dag!
Er það
eitthvað
sem þú
borðaðir?
Hhheld
ekki!
Er þetta
búið að vera
lengi? Síðan í
morgun!
Snýrðu
beltinu
rétt?
Er þetta
ekki betra
núna?
Júú! Takk! Maður
getur gert ýmsa
vitleysuna
svona snemma
á morgnana!
Segðu!
Ég vil ekki móðga
þig, mamma,
en þú ert líklega of
gömul til að tileinka
þér fyllilega taóisma
símanna.
Það krefst fínstillts
innsæis.
Nánast frum-
spekilegrar
einingar við
fjarskipta-
tæknina,
sem einungis
örfáir búa yfir.
Ég er viss um að þetta
er Freyr læknir! Ég hef
verið að hugsa um hann
í allan dag.
Meistari!
Sæll, þetta er
Freyr læknir.
Er pabbi þinn
heima?
Plís,
ekki!
Gamal-
dags
tannlækn-
ingar
Orðatil-
tækið þitt er
kannski ekki
svona, en
mitt orðatil-
tæki er svona.
Staðir fyrir
allt
út um
allt
LÁRÉTT
2. nautasteik, 6. persónufornafn,
8. sægur, 9. lítið býli, 11. slá,
12. slæm skrift, 14. klettur, 16. gyltu,
17. blekking, 18. árkvíslir, 20. ullar-
flóki, 21. hanga.
LÓÐRÉTT
1. eignaðist, 3. umhverfis, 4. fjarsýnn,
5. af, 7. sveppur, 10. samræða,
13. flíkur, 15. stærðfræðitákn,
16. andi, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. buff, 6. ég, 8. mor, 9. kot,
11. rá, 12. krafs, 14. klöpp, 16. sú,
17. tál, 18. ála, 20. rú, 21. lafa.
LÓÐRÉTT: 1. fékk, 3. um, 4. forspár,
5. frá, 7. gorkúla, 10. tal, 13. föt,
15. plús, 16. sál, 19. af.