Fréttablaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 86
1. september 2012 LAUGARDAGUR58 58
menning@frettabladid.is
2007 2008
Kerfið býður upp á um
2 Mb/s hraða en hann
á eftir að aukast hratt.
3G langdrægt er bylting sem veitir skjótt
og öruggt samband á hafi úti. Sjómenn geta
nú átt dagleg myndsímtöl við ástvini.
Ofurhugar Símans berjast við
náttúruöflin á Vatnajökli og hringja
myndsímtal af toppi Hvannadalshnjúks.
3G netið nær yfir
höfuðborgarsvæðið
og Flugstöð Leifs Eiríkssonar
í Keflavík.
3G kerfið samanstendur
af 100 sendum.
3. september 2007:
Fyrsta myndsímtalið
á 3G netinu.
Loksins hægt að horfa
á sjónvarpið í símanum
og fylgjast með fréttum.
12Mb • 10
GB
Mb/s
2
„Ég var að vinna á upplýsingamið-
stöð hér á Höfn 2003 og varð vör við
að margir ferðamenn höfðu áhuga
á Svavari Guðnasyni listmálara,“
segir Hornfirðingurinn Hulda Rós
Sigurðardóttir sem í byrjun sumars
setti upp sögusýninguna „Svavar
/ náttúran – sagan“ í Listasafni
Hornafjarðar. Hana vann hún út
frá meistaraverkefni sínu í hag-
nýtri menningarstjórnun við HÍ. Nú
nýlega bætti hún um betur og gekk
frá upplýsingaspjöldum um Svavar
við einn af fjölförnustu göngu-
stígum bæjarins sem liggur með-
fram Sandbakkanum og segir þau
augljóslega vekja athygli. „Svavar
var náfrændi minn og þess vegna
er verkefnið að vissu leyti ákveðið
tilfinningamál, að halda heiðri
hans sem hornfirskum listamanni
á lofti,“ segir Hulda Rós.
Aðeins vika er þar til sögusýn-
ingunni lýkur að sinni en spjöldin
við Sandbakkann lifa áfram. Þar
standa meðal annars þessi orð:
Annars er Hornafjörður glæsi-
legasta sveit Íslands – bæði þorpið
og umhverfið er eins og boð skapur
til málarans! Það er ekki hægt að
komast hjá því að verða málari þar
ef gáfur, löngun og vilji er fyrir
hendi. -gun
Söguskilti um Svavar Guðnason
HULDA RÓS SIGURÐARDÓTTIR „Gerir sitt til að halda heiðri frænda síns Svavars
Guðnasonar sem listamanns á lofti.“ MYND/BRYNJÚLFUR BRYNJÓLFSSON
Starfsfólk Borgarleikhússins
lýkur upp dyrum leikhússins
klukkan 13 í dag og kynnir kom-
andi leikár. Gestir á öllum aldri
geta þá séð brot af þeim fjöl-
mörgu sýningum sem í gangi
verða, gægst baksviðs, farið í
skoðunarferðir og bragðað á
ljúffengum vöfflum sem leikhús-
stjórinn Magnús Geir mun reiða
fram ásamt öðru starfsfólki.
Leikarar, leikstjórar, hönn-
uðir og tæknifólk verða á öllum
sviðum hússins, ýmist við
æfingar eða sýningar, og svara
spurningum sem brenna á for-
vitnum leikhúsgestum.
Skoppa og Skrítla skemmta
í forsal, Gói og Þröstur sýna
valda kafla úr ævintýrum á
litla sviðinu og sjóræningjar úr
Gulleyjunni sýna atriði á Stóra
sviðinu. Svona mætti lengi telja
og ættu allir að finna eitthvað við
sitt hæfi.
- gun
Kynna töfra leikhússins
Málþing um íslenska samtímalistfræði verður í Listasafni Reykja víkur
Hafnarhúsi á morgun, sunnudag, milli klukkan 14 og 16. Þar verður
fjallað um rannsóknarverkefni sem unnið hefur verið að tvö sumur sem
felst í að safna, skrá og greina íslensk skrif um myndlist á síð-
ustu áratugum. Að því hafa staðið fræðimenn og nemendur
Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands, auk Listasafns
Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins og
Listfræðafélagið.
Þótt verkefnið sé enn skammt á veg
komið er þegar farið að greina ýmis-
legt markvert á grundvelli þeirra
tæplega 2.000 texta sem skráðir
hafa verið og skoðaðir. Í þeim
má sjá nokkuð skýrt hvernig
fræðileg orðræða hefur þró-
ast hér á landi og hvernig
hún helst í hendur við þróun
myndlistarsviðsins sjálfs.
Allir eru velkomnir og
ókeypis er fyrir handhafa
Menningarkortsins.
- gun
Málþing um íslensk
myndlistarskrif
KJÓLAR OG KORSELETT Síðasti sýningardagur á sýning-
unni Tízka – kjólar og korselett í Þjóðminjasafninu er á morgun. Af
því tilefni verður ókeypis leiðsögn um sýninguna klukkan tvö.
Kórinn Fílharmónía leitar að
söngvurum til að ganga til liðs við
sig og efnir af því tilefni til radd-
prufa í Melaskóla á morgun.
„Okkur vantar félaga í allar
raddir og hvetjum alla sem hafa
áhuga á því að syngja í kór til að
mæta,“ segir Lilja Árnadóttir, for-
maður kórsins. Kórinn saman-
stendur að jafnaði af um sjötíu
félögum og æfir í Melaskóla.
Vetrarstarf kórsins hefst senn og
segir Lilja fjölbreytilega dagskrá
fram undan.
„Við syngjum fjölbreytta og
skemmtilega tónleika í vetur, meðal
annars með Frostrósum í desember
í Eldborg og tökum þátt í tón leikum
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
febrúar.“
Raddprufurnar á morgun byrja
klukkan þrjú. Lilja hvetur áhuga-
sama til að senda sér eða kórstjóra
Fílharmóníu, Magnúsi Ragnars-
syni, línu. Netföng þeirra eru
magnus.ragnarsson@gmail.com og
lilja.arnadottir@mail.com.
Raddprufur hjá Fílharmóníu
FÍLHARMÓNÍA Syngur meðal annars með Frostrósum í desember og með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í febrúar.
NAMMI NAMM
Ilmandi vöfflur
verða bakaðar af
miklum móð.