Fréttablaðið - 01.09.2012, Page 94
1. september 2012 LAUGARDAGUR66 66
popp@frettabladid.is
„Þetta er svalasta, skemmtileg-
asta og stærsta hátíð fyrir stúd-
enta á hverju ári, enda undan-
tekningarlaust að það selst upp á
hana,“ segir Davíð Ingi Magnús-
son, tengiliður við Októberfest hjá
Stúdentaráði HÍ.
Hátíðin fagnar tíu ára afmæli í
ár en þýskunemar Í HÍ hófu hana
árið 2002 til að halda upp á Okto-
berfest í München. „Þetta byrjaði
bara með um 50 nemum úr þýsku
sem tjölduðu á háskólalóðinni,
drukku bjór og spiluðu tónlist.
Þegar þau svo útskrifuðust árið
2005 afhentu þau stúdentaráði
hátíðina og hún hefur farið tölu-
vert stækkandi síðan,“ segir Davíð
Ingi en 1.900 armbönd eru í boði á
hátíðina í ár og óhætt að fullyrða
að færri komast að en vilja. Í til-
efni af stórafmælinu verður hún
enn veglegri en áður og verður
meðal annars tekið í notkun svo-
kallað afþreyingartjald við hlið
stóra tjaldsins sem verður fullt
af alls kyns leikjum. „Til dæmis
verður leikurinn Nál í heystakki.
Þar leitar fólk að litlum hlutum í
500 kílóa heyrúllu og getur unnið
sér inn bjór. Svo verður köttur-
inn sleginn úr tunnunni og fleira
skemmtilegt,“ segir Davíð Ingi,
en þar að auki verða hinar árlegu
keppnir, búningakeppnin og mottu-
keppnin, á sínum stað.
Hátíðin fer fram dagana 13.
til 15. september á lóð Háskóla
Íslands og kostar armband á hana
3.700 krónur fyrir félaga í SHÍ
og 4.900 fyrir aðra. Rjóminn af
yngri kynslóð listamanna stígur á
svið í stóra tjaldinu en á efnisskrá
eru meðal annars Ásgeir Trausti,
Moses Hightower, Retro Stefson,
Sykur, Tilbury, Valdimar og bræð-
urnir Friðrik Dór og Jón Jónsson.
Davíð segir að stefnt verði á að
slá Íslandsmetið í bjórdrykkju sem
var sett á hátíðinni árið 2010 þegar
drukknir voru 24.000 bjórar. „Við
pöntum bjór fyrir hvert kvöld svo
það þarf enginn að hafa áhyggjur
af því að hann klárist,“ segir hann
sannfærandi röddu.
tinnaros@frettabladid.is
Drekka í sig stemninguna
GLÆSILEGIR Davíð Ingi er hér ásamt félögum sínum uppstrílaður í hinn þýska þjóðklæðnað, lederhosen. Frá vinstri eru þetta þeir
Sigurður Haukur Traustason, Snorri Már Skúlason og Davíð Ingi. Fremstur er svo Andri Geirsson en hann er einn af skipuleggj-
endum hátíðarinnar og hefur verið síðustu fimm ár. MYND/ÞORGERÐUR JÓHANNA
■ Októberfest í München hefur verið haldin frá
árinu 1810 og er stærsta almenningshátíð í
heiminum í dag.
■ Um sex milljónir manna sækja hátíðina á
hverju ári.
■ Hátíðin hefst alltaf fyrsta laugardag
eftir 15. september og lýkur
fyrsta sunnudaginn í október.
■ Met var slegið í bjórdrykkju í
fyrra þegar 7,5 milljónir
lítra af bjór voru drukknir
á 16 dögum.
■ Bjór þarf að standast
vissar kröfur til að flokk-
ast sem Oktoberfest-bjór.
Þar á meðal er að hann
verður að vera bruggaður
í Bæjarlandi og verður
að vera að minnsta kosti
6% að styrkleika.
OKTOBERFEST Í MÜNCHEN
Félagsfundur Sjálfsbjargar félags fatlaðra
á höfuðborgarsvæðinu verður haldinn
miðvikudaginn 5.september kl: 19:30 í
félagsheimili Sjálfsbjargar, Hátúni 12.
Fundarefni:
• Kjaramál
• Hilmar Guðmundsson fulltrúi í kjarahóp Ö.B.Í flytur erindi
• Umræður
• Önnur mál
Kaffiveitingar
Áríðandi að sem flestir mæti
Selkórinn leitar að sópran- og karlaröddum.
Verkefnin eru fj ölbreytt og félagsskapurinn frábær.
Kórinn æfi r í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi.
Stjórnandi er Oliver Kentish.
Finnst þér gaman að syngja?
Nánari upplýsingar:
Guðrún E., sími 821 8433
gunnabeta@gmail.com
www.selkorinn.is
Hlökkum til að heyra í þér.
Kór, kór kvennakór
Kvennakórinn Kyrjurnar er að hefja sitt 16. starfsár og getur bætt
við sig reyndum söngröddum/ kórfélögum.
Við byrjum miðvikudaginn 5. september kl.19:30 í
Friðrikskapellu við Vodafonehöllina.
Kyrjurnar leggja metnað sinn í fjölbreytt og skemmtilegt lagaval
auk þess sem hér er um frábæran félagsskap að ræða.
Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
söngkona og söngkennari og hún sér einnig um raddþjálfun.
Ef þú hefur áhuga hafðu samband við Sigurbjörgu
í síma 865 5503 eða Auði í sima 864 6032.
Það verður tekið vel á móti þér.
MILLJÓNUM ÍSLENSKRA KRÓNA eyðir raunveru-
leikastjarnan Kim Kardashian að meðaltali í útlit sitt á ári.
Kardashian hefur opnað fatabúð á Ebay, Kim ś Closet
Clothing Store, þar sem hún selur úr fataskápnum sínum.
JAZZHÁTÍÐ
REYKJAVÍKUR
Z
20
12J
A Z
REYKJAV ÍK 1. SEPTEMBER
www.reykjavikjazz.is
13