Fréttablaðið - 01.09.2012, Qupperneq 102
1. september 2012 LAUGARDAGUR74
sport@frettabladid.is
FRJÁLSAR ÍR-ingar bundu enda á
tuttugu ára bikarlausa tíð árið
2009 þegar liðið sigraði í heildar-
stigakeppninni. Þá sigraði kvenna-
lið félagsins einnig en báðir bikar-
arnir hafa síðan verið í varðveislu
ÍR-inga. Á Akureyri um síðustu
helgi urðu karlarnir einnig hlut-
skarpastir og því fullt hús hjá
Breiðhyltingum í fyrsta sinn í 27
ár.
„Við höfum staðið okkur lang-
best í unglingastarfinu á undan-
förnum tíu árum. Þess vegna
höfum við síðustu ár verið að sigla
fram úr öðrum félögum í meist-
araflokknum. Við höfum unnið
unglingameistaramót 15-22 ára
með yfirburðum undanfarin níu
ár, bæði innanhúss og utan,“ segir
Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari
frjálsíþróttadeildar ÍR, en ekki er
langt síðan útlitið var vægast sagt
svart hjá ÍR-ingum.
„Við lentum í fjárhagsvand-
ræðum árið 1999 og vorum orðin
stórskuldug. Við misstum besta
fólkið okkar í burtu og byrjuðum
upp á nýtt,“ segir Þráinn en deildin
hefur verið rekin með hagnaði
frá árinu 2000 og er skuldlaus.
Lögð var áhersla á að hlúa vel að
yngri iðkendum enda hafði deildin
ekki tök á að halda úti sterkum
meistara flokki. Iðkendum hefur
síðan fjölgað úr sjötíu í 600 en
Þráinn segir afar góða fjölskyldu-
stemmingu ríkja í félaginu.
Allir æfa á eigin forsendum
„Við sinnum ekki aðeins þeim sem
okkur sýnist geta orðið afreks-
menn. Við leggjum mikla rækt
við alla sem vilja æfa hjá okkur.
Þannig sköpum við miklu fleiri
einstaklingum tækifæri til að æfa
sína íþrótt á eigin forsendum,“
segir Þráinn og nefnir einnig
stóran hóp fólks sem aðstoðar
félagið á ýmsan hátt í sjálfboða-
liðastarfi.
„Það eru yfir 300 manns sem
koma að verkefnum hjá okkur yfir
árið. Ég er ekki að skjóta út í loftið
því þetta er allt skráð hjá okkur.
Við getum leitað til þeirra þegar
við höldum fjölmenn innanhúss-
mót með 800-900 keppendum. Þá
köllum við til foreldra krakkanna
sem keppa. Þeir koma og mæla,
raka í sandgryfjunni og starfa
á annan hátt við mótið,“ segir
Þráinn en í stað þess að keppendur
úr ÍR greiði þátttökugjald skaffa
þeir starfsmann við mótið.
Á meðan allt virðist í blóma hjá
ÍR-ingum tekur Þráinn undir að
frjálsar íþróttir eigi undir högg
að sækja hér á landi sem víðar.
Aðeins fimm lið tóku þátt í bikar-
mótinu um liðna helgi en sú var
tíðin að keppt var í þremur sex-liða
deildum. Þráinn segir það reynast
mörgum liðum erfitt að manna
allar 37 greinarnar sem keppt er
í á mótinu en nefnir einnig til sög-
unnar fækkun iðkenda í sveitum
landsins.
„Þar hefur frjálsíþróttafólk allt-
af haft trygga stöðu. Með fækkun
fólks í sveitunum minnkar mögu-
leiki á að halda úti liðum á lands-
byggðinni,“ segir Þráinn en vanda-
málið er þó ekki einskorðað við
sveitina. Ármann og Fjölnir, hin
Reykjavíkurfélögin, sem ásamt
ÍR hafa aðstöðu í frjálsíþróttahöll-
inni í Laugardal, sendu ekki lið til
keppni í ár en félögin hafa oftar en
ekki sameinað krafta sína á stærri
mótum. Vandamálið sé stærra en
hægt sé að finna lausn á í snar-
heitum.
Þrautreynd sveit þjálfara
Þráinn leggur áherslu á hve miklu
máli skipti að hafa reynslumikla,
áhugasama, og vel menntaða þjálf-
ara. Þjálfararnir eru alls þrjátíu
en tíu þjálfarar koma að þjálfun
meistaraflokksins.
„Við höfum smátt og smátt fjölg-
að iðkendum og búið til æfinga-
hópa á hverju sviði sem getur
verið hjá sérhæfðum þjálfara. Það
þarf að vera grundvöllur fyrir
ráðningu þjálfara, nógu margir
iðkendur sem greiða æfingagjöld
svo hægt sé að borga þjálfurunum
einhverja þóknun,“ segir Þráinn og
bætir við að þótt launin séu ekki
há séu þau eitthvað.
Þjálfarasveit ÍR-inga telur ekki
ómerkari menn en Ólympíufara
og Íslandsmeistarahafa á borð við
Einar Vilhjálmsson, Pétur Guð-
mundsson, Þóreyju Eddu Elís-
dóttur auk Þráins og konu hans
Þórdísar Gísladóttur. Þórdís hélt
á síðasta ári kynningu á starfi
deildarinnar á ráðstefnu á vegum
Frjálsíþróttasambands Evrópu.
Fimm félög sem vakið höfðu
athygli innan geirans voru beðin
um að kynna starf sitt.
„Fólki þótti með ólíkindum að
við værum með 600 iðkendur og
þrjátíu þjálfara á launum. Það
þótti gríðarlega stórt hjá 300 þús-
und manna þjóð,“ segir Þráinn og
nefnir til samanburðar að fjöl-
mennasta félag Noregs telji 250
iðkendur og það stærsta í Kanada
sé áþekkt frjálsíþróttadeild ÍR að
stærð.
Bikararnir þrír marka tímamót
hjá ÍR. Fjögur ár eru í Ólympíu-
leikana í Ríó og segir Þráinn
nauðsynlegt að setja ný fjögurra
ára markmið hvort sem litið sé til
barna- og unglingastarfs, meist-
araflokks, afreksstarfs, almenn-
ingsíþrótta, sjálfboðaliðastarfs
eða mótahalds. kolbeinntumi@365.is
ÍSLAND fær sitt besta tækifæri til að vinna heimaleik í undankeppni EM í körfubolta á morgun þegar Slóvakar
koma í heimsókn í Laugardalshöllina. Slóvakar hafa tapað öllum sex leikjum sínum í keppninni og íslensku strákarnir
unnu sex stiga sigur í fyrri leik þjóðanna í Slóvakíu (81-75). Leikurinn í Laugardalshöllinni hefst klukkan 15.45 í dag.
Fjöldi
iðkenda og
sjálfboðaliða
hjá ÍR nálgast eitt þúsund
manns. ÞRÁINN HAFSTEINSSON
900
Frá gjaldþroti til gullverðlauna
ÍR-ingar urðu um síðustu helgi þrefaldir bikarmeistarar í frjálsíþróttum í fyrsta skipti síðan 1985. Margt
hefur breyst hjá frjálsíþróttadeildinni sem varð gjaldþrota árið 2000 en er nú langfjölmennust á landinu.
SIGURHRINGUR ÍR-ingar hafa fagnað sigri á bikarmóti FRÍ síðustu þrjú ár. MYND/BJÖRN GUÐMUNDSSON
DVD
VERÐ AÐEINS
KR
Kræsingar & kostakjör
GOLF Lokastigamótið á Eimskipsmótaröðinni í golfi,
Síma-mótið, hófst í morgun á Grafarholtsvelli í
Reykjavík. Leiknar verða 54 holur í mótinu, þar af
36 holur í dag, laugardag. Góð þátttaka er í mótinu
og ellefu af alls tuttugu efstu á stigalistanum í karla-
flokki eru á meðal keppenda. Hámarksfjöldi kepp-
enda er 84 kylfingar í karlaflokki og komust ekki allir
að sem vildu.
Hörð barátta er um stigameistaratitilinn hjá bæði
körlum og konum. Haraldur Franklín Magnús úr GR,
tvöfaldur Íslandsmeistari á þessu tímabili, er í efsta
sæti á stigalista karla með 5266,43 stig. Haraldur
verður hins vegar ekki með í mótinu um helgina en
hann hélt nýverið til náms í Bandaríkjunum.
Hlynur Geir Hjartarson, úr GOS, er með pálmann
í höndunum í karlaflokki með 5157,50 stig. Andri Þór
Björnsson úr GR er þriðji en hann verður ekki með
um helgina. Þórður Rafn Gissurarson úr GR kemur
í 4. sæti og hann og Rúnar Arnórsson úr GK eru þeir
einu sem geta náð Hlyni að stigum.
Í kvennaflokki verður baráttan um stigameistara-
titilinn á milli Signýjar Arnórsdóttur og Guðrúnar
Brár Björgvinsdóttur – báðar úr Keili. Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir úr GR er í efsta sæti með 6002,50 stig
en hún verður ekki með í lokamótinu þar sem hún
hefur haldið til Bandaríkjanna í nám. Signý er önnur
með 5892,50 stig en Guðrún Brá í þriðja sæti með
5241,25 stig. Fari Signý með sigur af hólmi í Grafar-
holti verður hún einnig stigameistari.
Keppni hófst kl. 7.30 í morgun eins og áður segir
og eru keppendur ræstir út af 1. og 10. teigi. Síðari
umferð dagsins hefst kl. 12.30 og er einnig ræst út af
1. og 10. teigi. - seth
Eimskipsmótaröðinni í golfi lýkur í dag á Grafarholtsvelli:
Barist um stigameistaratitilinn
1. deild karla
KA - Þróttur 1-0
1-0 Brian Gilmour (66.)
ÍR - Haukar 0-2
0-1 Brynjar Benediktsson (14.), 0-2 Aron Jóhanns-
son (86.).
STAÐA EFSTU LIÐA
Þór 18 12 2 4 34-19 38
Víkingur 18 10 2 6 26-17 32
Haukar 19 8 6 5 21-20 30
Fjölnir 18 7 8 3 37-19 29
KA 19 8 5 6 32-26 29
Þróttur 19 7 6 6 25-24 27
NÆSTU LEIKIR
Víkingur R. - Þór í dag kl. 14.00
Fjölnir - Höttur í dag kl. 14.00
BÍ/Bolungarvík - Víkingur Ó. í dag kl. 14.00
Tindastóll - Leiknir í dag kl. 14.00
Ofurbikar UEFA
Chelsea - Atletico Madrid 1-4
0-1 Radamel Falcao (7.), 0-2 Radamel Falcao (19.),
0-3 Radamel Falcao (45.), 0-4 Joao Miranda (60.),
1-4 Gary Cahill (74.)
Sænska B-deildin
Halmstad - Brage 4-0
Kristinn Steindórsson skoraði eitt mark fyrir
Halmstad og Guðjón Baldvinsson lagði upp
annað. Báðir léku allan leikinn.
ÚRSLIT
SPENNA Signý Arnórsdóttir verður í baráttu um stigameistara-
titilinn í kvennaflokki í dag. MYND/GSÍ
ÓL 2012 Allir fjórir íslensku kepp-
endurnir voru í eldlínunni á
Ólympíumóti fatlaðra í gær.
Matthildur Ylfa Þorsteinsdóttir
náði besta árangri þeirra þegar
hún komst í úrslit í langstökki
og hafnaði þar í áttunda sæti.
Lengst stökk hún 4,08 m sem er
nálægt hennar besta árangri.
Jón Margeir Sverrisson náði
sínum besta árangri í 100 m bak-
sundi en kom síðastur í mark í
undanrásum í gær. Kolbrún Alda
Stefánsdóttir keppti í sömu grein
og varð í fjórtánda sæti. Hún var
skammt frá sínu besta.
Helgi Sveinsson keppti svo í
langstökki en var langt frá besta
árangri sínum. Hann stökk 4,25
m og hafnaði í tíunda sæti. - esá
Ólympíumót fatlaðra:
Matthildur
komst í úrslit
MATTHILDUR Náði góðum árangri í
langstökki í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI