Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 2
7. september 2012 FÖSTUDAGUR2 SPURNING DAGSINS Eiður, er líf þitt í molum? „Nei, líf mitt er heildstætt, svo maður noti stofnanamál, en molakaffi með góðum vinum kórónaði daginn.“ Eiður Svanberg Guðnason, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, málfarsrýnir og molaskrifari, birti í gær þúsundasta molann um málfar og miðla á vef sínum. ms.is Smurostar við öll tækifæri ...gera lífið léttara DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykjavík- ur dæmdi í gær tvo menn, Daniel Arciszewski og Snorra Sturluson, í þriggja og tveggja ára fangelsi fyrir margvísleg afbrot. Þeirra alvarlegast var hrottafengið rán á heimili í Breiðholti fyrir tveimur mánuðum. Mennirnir voru fundnir sekir um að hafa ruðst inn til rúmlega sextugs manns um miðja nótt og haldið honum þar nauðugum til klukkan ellefu um morgun. Mennirnir beittu húsráðandann ofbeldi, ýttu honum niður í stól, bundu hann fastan með límbandi og höfðu í hótunum við hann. Þá létu þeir hann skrifa undir skjal þess efnis að hann skuldaði tví- menningunum peninga. Þeir skipuðu honum að millifæra á sig fé í gegnum heimabanka en þegar honum tókst ekki að tengj- ast netinu þá ýttu þeir honum ofan í baðkar, bundu hann þar á höndum og fótum með rafmagnssnúru sem þeir festu við blöndunartæki, tróðu upp í hann tusku og límdu fyrir. Nokkru síðar neyddu þeir mann- inn til að gefa sér upp leyninúmer á debetkorti hans og tóku tuttugu þúsund krónur út af reikningi hans í hraðbanka. Þá neyddu þeir hann til að millifæra 453 þúsund krónur inn á reikning Daniels og rændu af honum tölvuskjá, kassettutæki, ullarteppi og seðlaveski. Húsráðandinn hlaut líkamlega áverka og varð fyrir miklu and- legu áfalli, að því er segir í dómn- um. Hann gerði kröfu um 3,2 millj- ónir í bætur frá mönnunum en honum voru hins vegar dæmdar 1.265 þúsund krónur. Daniel er dæmdur fyrir töluvert fleiri brot, einkum umferðarlaga- brot, fíkniefnabrot og þjófnaði. Mennirnir gengust að langmestu leyti við brotum sínum og taldi dómarinn þá ekki eiga sér neitt annað til málsbóta. Báðir eiga mennirnir sér brota- sögu. Daniel hefur fimm sinnum sætt viðurlögum fyrir umferðar- laga- og fíkniefnabrot. Í janúar var hann sviptur ökurétti í fimm ár en núna er hann sviptur ævilangt. Snorri hefur hlotið tólf refsi- dóma frá árinu 1988 og ber saka- vottorð hans vímuefnafíkn vitni, eins og segir í dómnum. Tvímenningarnir hafa sætt gæsluvarðhaldi síðan málið kom upp og hafa verið virkir í meðferð- arstarfi á þar til gerðum gangi á Litla-Hrauni. stigur@frettabladid.is Ofbeldismennirnir duglegir í meðferð Tveir menn dæmdir í þriggja og tveggja ára fangelsi fyrir hrottalega innrás og rán á heimili manns í Breiðholti. Bundu hann og kefluðu ofan í baðkari. Játuðu sök að mestu og eru í meðferð í fangelsi. Þolandinn varð fyrir miklu áfalli. SEKIR Daniel Arciszewski og Snorri Sturluson ræða hér við verjendur sína, þá Jón Egilsson og Guðmund St. Ragnarsson. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÚTÍN OG TRÖNURNAR Einungis fáar trönur fengust til að elta foringjann. NORDICPHOTOS/AFP RÚSSLAND, AP Vladimír Pútín Rúss- landsforseti settist í gær upp í vél- knúna svifflugu klæddur hvítum búningi og gerði nokkrar tilraunir til að fá hvítar trönur til að elta sig. Tilgangurinn er sá að fylgja trönunum, sem hafa ekki alist upp við frelsi, til suðrænni slóða í Mið- Asíu þar sem aðrar trönur eru vanar að dveljast yfir veturinn. Árangurinn var takmarkað- ur og loks þurfti Pútín að sinna öðrum erindum. Einhverjir Rúss- ar gerðu grín að þessu og spurðu hvort Pútín væri þá væntanlegur aftur í vor með farfuglunum. - gb Nýjasta uppátæki forseta: Pútín hjálpar fuglum að rata FÓLK Liechtensteinska ævintýra- manninum Matthiasi Vogt mis- tókst að selja þyrluna sem hann hefur auglýst til sölu hér á landi á ferðalagi um Ísland síðustu vikur. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að Vogt hygðist selja þyrluna hér á landi en hann kom til Íslands í lok júlí. Hefur hann ferðast um landið síðan ásamt félaga sínum og vakti meðal ann- ars athygli í Hveragerði þar sem hann tók eldsneyti á þyrluna á bensínstöð Atlantsolíu í bænum. Uppsett verð þyrlunnar er rúmar tuttugu milljónir króna en hún verður nú flutt með Norrænu aftur til Evrópu. - mþl Þyrlan til Evrópu með Norrænu: Mistókst að selja þyrluna DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að verjendur sakborninga í líkams- árásarmáli Annþórs Karlssonar og Barkar Birgissonar eigi ekki rétt á að fá afhenta geisladiska með skýrslutökum af sakborn- ingum og vitnum í málinu. Verj- anda Barkar voru afhentir disk- arnir fyrir misgáning og fóru þá verjendur annarra sakborninga fram á afrit af þeim líka. Því hafnaði héraðsdómur með þeim rökum að slíkar upptökur væru ekki málsskjöl og Hæstiréttur er sammála. Jón Steinar Gunnlaugsson skilar sératkvæði og telur að afhenda beri öll gögn, þar á meðal diskana. - sh Jón Steinar skilar sératkvæði: Upptökurnar ekki afhentar AÐALMENNIRNIR Annþór og Börkur eru ákærðir í málinu ásamt hópi annarra. FÓLK Jón Gnarr borgarstjóri skál- aði í bjór við Guðmund Hallvarðs- son, stjórnarformann Hrafnistu, þegar nýr veitingasalur dvalar- heimilisins var vígður í gær. Sal- urinn hlaut nafnið Skálafell. Styr stóð um það í sumar hvort eðlilegt væri að salurinn fengi vín- veitingaleyfi. Þó varð úr að lokum að leyfið fékkst og borgarstjórinn baðst afsökunar á seinaganginum við vígsluna í gær. Fjölmenni var viðstatt athöfnina og þótt boðið hefði verið upp á bjór þá héldu flestir sig við kaffið. - hh, sh Nýr veitingasalur á Hrafnistu vígður við hátíðlega athöfn og hlaut nafnið Skálafell: Borgarstjórinn skálaði í bjór SKÁL! Jón Gnarr og Guðmundur Hallvarðsson fengu sér bjór á Hrafnistu. MYND/HUGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR REYKJAVÍK Sérstakt öldungaráð, sem fjalla á um málefni eldri borgara í Reykjavík, verður stofnað á næstunni. Borgar- stjórn Reykjavíkur samþykkti þetta á fundi sínum á þriðjudag. Ráðið á að funda reglulega og vera borgarstjórn til ráðgjafar um málefni eldri borgara. Það verður skipað eldri borgurum og hefur víðtækt samráð við félög og samtök eldri borgara í Reykjavík og aðra þá, sem láta málefni þeirra til sín taka. - sv Borgarstjórn fundaði á ný: Vilja setja á fót öldungaráð FASTEIGNAMARKAÐUR Alls var 21 kaupsamningi þinglýst í Reykja- nesbæ í ágústmánuði að því er fram kemur í tölum Þjóðskrár. Heildarvelta var 289 milljónir. Þetta er talsverð aukning frá ágúst í fyrra þegar þrettán kaup- samningum var þinglýst og veltan var 198 milljónir, nær helmingi minni en í ár. Markaðurinn þar í bæ hefur verið að taka við sér að undan- förnu, en fyrstu átta mánuði ársins hefur 165 kaupsamningum verið þinglýst fyrir 3.400 milljónir. - þj Fasteignir í Reykjanesbæ: Tvöfalt meiri sala í ágúst PAKISTAN Öllu erlendu starfsfólki hjálparsamtak- anna Save the Children hefur verið gert að yfir- gefa Pakistan innan tveggja vikna. Engin skýr- ing var gefin á fyrirskipuninni, en fréttaritarar á staðnum telja fullvíst að ástæðuna megi rekja til aðgerðarinnar sem leiddi til dauða Osama bin Laden. Pakistanskur læknir var hand- tekinn í kjölfar aðgerðarinnar og sakaður um landráð af þar- lendum yfirvöldum. Bandarísk yfirvöld staðfestu í kjölfarið að læknirinn hefði veitt mikilvægar upplýsingar sem leiddu til þess að Osama bin Laden fannst og kröfðust þess að honum yrði sleppt úr haldi. Nú hefur komið í ljós að læknirinn átti í sam- skiptum við hjálparsamtökin, og það er talið meginástæða þess að þeim hefur nú verið gert að pakka saman og fara. Talsmaður Save the Children fullyrðir að lækn- irinn hafi aldrei þegið laun fyrir störf á vegum samtakanna þótt hann hafi sótt ráðstefnu þeirra skömmu fyrir handtökuna. Fulltrúi Save the Children í London segir að óskað hafi verið eftir formlegum skýringum á brottrekstrinum. Enn væri ekki ljóst hvort þeim yrði leyft að senda annað starfsfólk til Pakistan í stað þess sem þyrfti að fara. - sh Yfirvöld gruna Save the Children um aðild að leitinni að Osama bin Laden: Hjálparsamtök rekin frá Pakistan GERT AÐ FARA Höfuðstöðvar Save the Children í Pakistan kunna að verða mannlausar á næstunni. NORDICPHOTOS/AFP OSAMA BIN LADEN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.