Fréttablaðið - 07.09.2012, Síða 18
7. september 2012 FÖSTUDAGUR18
„Það er auðvitað töluvert öðruvísi að
vera kominn í atvinnuleikhús. Sýning-
arnar í Verzló voru uppfullar af hæfi-
leikaríku fólki sem var að gera frábæra
hluti, en þarna eru bara fagmenn að
störfum og allt er leyst fljótt og örugg-
lega,“ segir Sigurður Þór Óskarsson
leikari. „Svo er líka frábært að þurfa
ekki að vera í skólanum til sex og fara
svo á æfingar á kvöldin,“ bætir hann við
og hlær.
Sigurður Þór fer með hlutverk Jims
Hawkins í uppfærslu Borgarleik hússins
á leikritinu Gulleyjunni sem verður
frumsýnt þann 14. september næst-
komandi. Þetta er fyrsta hlutverk hans
eftir útskrift úr Leiklistarskóla Íslands
í vor en hann fékk strax fastráðningu
hjá leikhúsinu. Þrátt fyrir ungan aldur
er Sigurður þó síður en svo óvanur
sviðinu. Síðasta vetur stökk hann tíma-
bundið inn í hlutverk fugla hræðunnar
í Galdrakarlinum í Oz, auk þess sem
hann fór með hlutverk í Grease í Loft-
kastalanum árið 2009 og tók þátt í
þremur uppfærslum Verzlunarskóla
Íslands þegar hann sat þar á skólabekk.
Hann tók einnig þátt í Söngvakeppni
framhaldsskólanna fyrir hönd skólans
árið 2008 og fór þar með sigur af hólmi.
Hlutverk Jims Hawkins er eitt aðal-
hlutverkanna og segja má að hann leiði
áhorfendur í gegnum söguna. Sigurður
Þór lifir því og hrærist í sjóræningja-
heimi þessa dagana. Aðspurður segist
hann þó aldrei hafa dreymt um að vera
sjóræningi á sínum yngri árum. „Ég
hef alltaf verið voða saklaus drengur.
Ég eyddi samt bróðurparti dagsins í
dag í að skylmast og það var rosalega
gaman,“ segir hann.
Fuglinn Joshua leikur stórt hlutverk
í sýningunni og segir Sigurður sam-
starfið þeirra á milli ganga mjög vel.
„Hann er þvílíkur fagmaður og gaman
að vinna með honum,“ segir hann og
telur engar líkur á öðru en að fuglinn
standi sig á sviðinu. „Ég hef meiri
áhyggjur af því að hann eigi eftir að
stela allri athyglinni,“ segir hann og
hlær. „Svo tók hann þátt í uppfærslunni
norður á Akureyri líka svo hann hefur
gert þetta miklu oftar en ég og kann
þetta miklu betur,“ bætir hann við.
Sumarið tók Sigurður í róleg heitum
til að búa sig undir komandi vetur sem
hann býst við að verði anna samur. „Það
er smekkfullur vetur í uppsiglingu
í Borgarleikhúsinu og frábært leik-
ár fram undan,“ segir Sigurður Þór.
Næst á dagskrá hjá honum er leik ritið
Bastarðar með Vesturporti og tekur
hann svo þátt í leikritinu Mýs og menn
og Mary Poppins á sviði Borgarleik-
hússins á þessari önn. „Svo tek ég þátt
í að minnsta kosti þremur verkum eftir
áramót sem eru hvert öðru betra,“ segir
Sigurður spenntur. tinnaros@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
Okkar ástkæri sonur, bróðir,
mágur og barnabarn,
BIRGIR PÁLL GYLFASON
Jónsgeisla 45,
sem lést 25. ágúst verður jarðsunginn
frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn
13. september kl. 13.00. Blóm og kransar
eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Unicef á Íslandi.
Gylfi Jónsson Hildur Hanna Ásmundsdóttir
Jóhannes Már Gylfason Lára Hrund Bjargardóttir
Jón H. Guðmundsson Hrafnhildur Matthíasdóttir
Elskulegur eiginmaður, faðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN JAKOBSSON
Móabarði 30,
lést á Landspítalanum sunnudaginn
2. september. Útförin fer fram fimmtudaginn
13. september frá Hafnarfjarðarkirkju
kl. 13.00.
Nanna Jakobsdóttir
Hildur Sveinbjörnsdóttir
Sindri Sveinbjörnsson
Hjörleifur Sveinbjörnsson
og fjölskyldur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN BERNHARD THOMPSON
Næfurási 10, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 31. ágúst á deild 11 E
á Landspítalanum við Hringbraut, verður
jarðsunginn frá Árbæjarkirkju mánudaginn
10. september kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hans er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna.
Valdís Helgadóttir
Helena Vigdís Kristjánsdóttir Óskar Jónsson
Hrönn Jónsdóttir Stefán Ingi Óskarsson
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HEIÐAR ÞÓRÐARSON
Gullengi 9,
áður Lækjarhvammi 4,
lést 4. september sl. Útför hans verður gerð
frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 12.
september kl.13.00.
Bára Aðalsteinsdóttir
Þórður Heiðarsson Fjóla Borg Svavarsdóttir
Sigurbjörg Heiðarsdóttir Borgar Axelsson
Heiðbjört Bára, Axel Þór, Þór Ísak, Bára Freydís.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
JÓHANNA ÞÓRÓLFSDÓTTIR
frá Reyðarfirði
er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð.
Kjartan Welding Ágústsson Þyri Dóra Sveinsdóttir
Sigurður Ágústsson Hrafnhildur Kristinsdóttir
Þórólfur Ágústsson Sigurlína Ósk Óskarsdóttir
Þórunn María Welding
Linda Ágústsdóttir Mark Khun
Þorvaldur Skúlason
barnabörn, barnabarnabörn og langalangömmubörn.
Móðir okkar,
ÓLÖF SIGURÐARDÓTTIR
íþróttakennari
frá Hamraendum í Borgarfirði,
áður til heimilis að Hátúni 10,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund 3. september. Útförin fer fram frá
Fossvogskapellu mánudaginn 10. sept ember kl. 11.00. Blóm eru
vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hinnar látnu er
bent á Landssamtökin Geðhjálp.
F.h. aðstandenda,
Jón Jóel Einarsson
Sigurbjörn Einarsson
SIGURÐUR ÞÓR ÓSKARSSON: FYRSTA HLUTVERKIÐ EFTIR ÚTSKRIFT
VONAR AÐ FUGLINN
STELI EKKI ATHYGLINNI
FASTRÁÐINN Sigurður Þór fékk fastráðningu hjá Borgarleikhúsinu strax eftir útskrift frá LÍ og sér
fram á annasaman vetur, smekkfullan af frábærum leikritum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í tilefni af frumsýningu Gulleyjunnar
stefnir Borgarleikhúsið á að breyta
Reykjavík í sjóræningjaborg í sept-
ember. Allir ungir sjóræningjar geta
komið við í miðasölu leikhússins og
fengið þar gefins stóran og glæsilegan
sjóræningjafána, en leikhúsið mun
gefa eitt þúsund fána. Þegar fánanum
hefur verið flaggað er svo hægt að taka
af honum mynd og taka þátt í leik á
Facebook þar sem meðal annars er
hægt að vinna miða á leiksýninguna.
Björn Jörundur fer með hlutverk Langa-
Jóns Silfur í leikritinu sem er leikstýrt
af Sigga Sigurjóns og Þorvaldur Bjarni
semur tónlistina.
SJÓRÆNINGJABORGIN REYKJAVÍK
Merkisatburðir
1533 Elísabet 1. Englandsdrottning
fæðist.
1812 Frakkar ráðast inn í Rússland og
upp hefst baráttan um Borodino. Sú
barátta reyndist sú blóðugasta á ferli
Napóleons hershöfðingja. Frakkar sigr-
uðu þó að lokum.
1822 Brasilía lýsir yfir sjálfstæði frá
Portúgölum.
1895 Fyrsti rugby-leikurinn er spilaður
í Englandi.
1921 Fyrsta keppnin um Ungfrú Amer-
íku er haldin í Atlanta.
1927 Fyrsta sjónvarpið sem er algjör-
lega rafrænt kemur á markað.
1936 Bandaríski söngvarinn Buddy
Holly fæðist.
1986 Desmond Tutu verður fyrsti svarti
maðurinn sem leiðir evangelíska kirkju
í Suður-Afríku.
1987 Leikkonan Evan Rachel Wood
fæðist.
Rapparinn og leikarinn Tupac Amaru Shakur var
skotinn fjórum sinnum þennan dag og lést af sárum
sínum sex dögum síðar, eða 13. september. Skot árásin
átti sér stað eftir að Tupac hafði fylgst með box-
bardaga Mikes Tyson og Bruce Seldon í Las Vegas. Á
bar daganum hafði Tupac og fylgdarlið hans hitt fyrir
meðlim úr óvinagengi sínu og barið hann til óbóta.
Rannsókn leiddi í ljós að skotárásin var hefnd fyrir þá
árás, en hún átti sér stað rúmum fjórum tímum eftir
bardagann.
Tupac ólst upp í mikilli baráttufjölskyldu og voru
foreldrar hans öflugir í flokki þeldökkra, byltingar-
kenndra sósíalista sem kölluðu sig Black Panther. Hann
veigraði sér ekki við að taka félagsleg vandamál fyrir í
textum sínum sem einkenndust þó af miklu ofbeldi og
reiði. Hann náði gríðarlegum vinsældum sem tónlistar-
maður og hefur selt yfir 75 milljónir platna á heims-
vísu, sem gerir hann að einum mest selda tónlistar-
manni heims. Hann situr í 86. sæti á lista Rolling Stone
tímaritsins yfir bestu listamenn allra tíma.
ÞETTA GERÐIST: 7.SEPTEMBER 1996
Tupac Shakur skotinn
ELMA LÍSA GUNNARSDÓTTIR leikkona á afmæli í dag
„Ég held ég að ljóskur eigi athyglina alla jafnan og kannski þær hafi meira
gaman. En ég held að þar ráði ljósa hárið ekki mestu, heldur útgeislunin.“
39