Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 42
7. september 2012 FÖSTUDAGUR22
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. umstang, 6. slá, 8. eyrir, 9. slöngu,
11. gelt, 12. blundur, 14. einkennis,
16. tveir eins, 17. hrygning, 18. í
viðbót, 20. kvað, 21. fimur.
LÓÐRÉTT
1. gleðimerki, 3. skóli, 4. brá, 5. bar,
7. aðgætinn, 10. samhliða, 13. starfs-
grein, 15. högg, 16. kóf, 19. bókstafur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ómak, 6. rá, 8. aur, 9.
orm, 11. gá, 12. svefn, 14. aðals, 16.
kk, 17. got, 18. auk, 20. ku, 21. frár.
LÓÐRÉTT: 1. bros, 3. ma, 4. augnlok,
5. krá, 7. árvakur, 10. með, 13. fag,
15. stuð, 16. kaf, 19. ká.
Þetta stríð
er hlægilegt
Pondus!
Af hverju
geturðu ekki
látið þessa
gömlu vera?
Vegna
þess að
HÚN
byrjaði!
Þetta
kalda stríð
er rétt að
byrja.
Hahaha!
Skítugu
hundar!
Má ég
...?
Taktu þennan!
Hann er
með könglum
og smá-
steinum í!
Hún var á leiðinni inn
í strætó en ég hitti
hana beint í hnakk-
ann áður en dyrnar
lokuðust! I love
you!
Móðurhlut-
verkið er ekki
keppni - en af
hverju finnst
mér alltaf eins
og einhver sé
að telja stigin?
Þetta var
góður
morgunmatur,
hvað er í
hádegismat?
Hvar eru
kortin með
peningunum
inn í?
Gætirðu
rétt mér
kjötið, Jón?
Sjálfsagt,
herra
Bangsi.
Hvað
kallað-
irðu mig?
Herra Bangsi.
Það er
gælunafns
sem við gáfum
þér þegar þú
varst barn. Jamm.
Og ætlar þú að kalla mig
„herra Bangsa“ á meðan
ég kalla þig „Jón“?
Þú mátt
ekki sýna
á spilin
þín, herra
Bangsi.
Að þú
skulir
dirfast.
Nei sko! Hektor er að
dingla! Komdu inn, Hektor!
Kortabúð
Jennýar
Grunnt á súpukjötshagfræðinni
Hilmar Bragi Janusson ræðir um árin hjá Össuri og óþrjótandi
möguleika þekkingargeirans.
Í ilmandi spor Egypta
Jasmínblómið hefur leikið
lykilhlutverk í langri sögu
ilmvatnsgerðar.
Meðal annars efnis:
„Finnst skemmtilegast
að gera það sem ég er
skíthrædd við“
Sirkuslistamaðurinn Birta Benónýsdóttir segir frá
óvenjulegu lífi í Frakklandi.
Hvað getur maður keypt sér fyrir tæpar 2,3 milljónir á mánuði sem maður
gat ekki leyft sér með rúmar 1,8 milljónir
í mánaðarlaun? Dýrari bíl? Stærra hús?
Lengri utanlandsferð? Fleiri jakkaföt? Ég
veit það ekki, en Björn Zoëga, forstjóri
Landspítalans, veit það. Hann var í þeirri
stöðu, sem svo margir aðrir hafa verið í
undanfarin ár, að vera boðin betur borguð
vinna í öðru landi, Svíþjóð nánar til
tekið. Þar hefði hann kannski getað
hitt fyrir einhvern þeirra hjúkrunar-
fræðinga, sjúkraliða eða annarra
starfsmanna sem hafa flutt af landi
brott þar sem íslensk laun dugðu
ekki til framfærslu fjölskyldunnar.
TIL þess kom þó ekki. Velferðarráð-
herra steig fram á sjónarsviðið og
hækkaði laun forstjórans. Ekki mátti
minna duga en 450 þúsund króna hækk-
un til að forstjórinn yrði ánægður hér
í starfi.
MEÐALLAUN á Íslandi árið 2011
voru 365 þúsund krónur. Rúm-
lega 60 prósent launamanna
voru með laun undir 350 þús-
und krónum á mánuði. Vel-
ferðarráðherra hækkaði laun
forstjórans um vel rúmlega
mánaðarlaun þessa fólks. Það
er vel í lagt.
FORSTJÓRINN hefur verið nokkuð í fjöl-
miðlum undanfarið og yfirleitt vegna
þess hve mikið hefur þurft að spara í
rekstri Landspítalans. Þar hefur hann
talað fyrir aðhaldi; horfa hefur þurft
í hverja krónu, hvern eyri. Endurnýj-
un tækja verður að bíða og þau rimpuð
saman með límbandi, hagræðingarkröf-
unni verður að ná. Starfsfólk verður að
taka á sig aukið álag og launaskerðingu,
hagræðingarkröfunni verður að ná. En
ekki í launum forstjórans. Við þau má
bæta ríflega 1,2 meðallaunum. Og ekki
voru þau lág fyrir.
HVER er ábyrgð forstjórans eftir þessa
hækkun? Mun hann geta talað fyrir
frekari niðurskurði á spítalanum eftir
hana? Og varla var staða hans þannig að
1,8 milljónir króna dugðu ekki á mánuði
fyrir framfærslu hans? Því verður ekki
trúað upp á jafn grandvaran mann og for-
stjórinn er. Langaði hann bara í meiri
pening? Mig líka.
HVAÐ getur maður keypt sér fyrir tæpar
2,3 milljónir á mánuði sem maður gat
ekki leyft sér með rúmlega 1,8 milljón á
mánuði? Ég veit það ekki, en fyrir hækk-
unina, 450 þúsund krónur, getur forstjór-
inn keypt 2.700 límbandsrúllur á ári. Það
má líma mörg læknatæki saman með
þeim.
2700 límbandsrúllur