Fréttablaðið - 07.09.2012, Qupperneq 14
7. september 2012 FÖSTUDAGUR14
Föstudagsviðtaliðföstuda
gur Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisfl okksins
Það er ein-
faldlega
ekki í boði
á Íslandi að
horfa upp
á kynslóðir
atvinnu-
lausra
verða til.
B
jarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks-
ins, tilkynnti Ragn-
heiði Elínu Árnadóttur
í síðustu viku að hann
myndi leggja til að Illugi
Gunnars son tæki við af henni sem for-
maður þingflokksins. Þetta kom henni
á óvart, þar sem hún hafði gert ráð
fyrir að gegna því embætti út kjör-
tímabilið, en hún tók við þegar Illugi
tók sér hlé frá þingstörfum á meðan
rannsókn á Sjóði 9 fór fram.
„Það var ekkert rætt um það þegar
Illugi fór að þetta væri tímabund-
ið, alls ekki. Ég var kjörin til þessa
embættis af þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins.“
Ragnheiður segir að með breyting-
unni hafi staða kvenna í flokknum síst
batnað, en vill ekki horfa á málið út frá
kynjasjónarmiðum.
„Ég hef, í minni pólitík, ekki orðið
vör við það að mér hafi verið hampað
eða hafnað vegna þess að ég er kona.
Ég er á móti kynjakvótum og slíkri
aðferðafræði, en vil sjá fleiri konur
í stjórnmálum. Þannig held ég að við
getum lagað ástandið.
Við erum að fara inn í kosninga-
vetur og það eru spennandi tímar fram
undan hjá öllum flokkum. Ég vonast
svo sannarlega til þess að það verði
prófkjör hjá okkur í öllum kjördæm-
um og ég vil sérstaklega hvetja konur
til að gefa kost á sér til þess að tryggja
að við höfum val. Þannig getum við
fjölgað konum.“
Stefnir á ráðherrastól
Ragnheiður Elín segir að fátt sé svo
með öllu illt að ekki boði nokkuð gott.
Nú hafi hún tök á því að einbeita sér að
starfinu í Suðurkjördæmi.
„Gallinn við þingflokksformanns-
starfið er að þú ert með utanumhaldið
og ábyrgðina á öllu og öllum. Ég var
þannig þingflokksformaður að ég kom
fyrst og fór síðust. Nú er sú ábyrgð
farin á annarra hendur og ég hef miklu
meiri tíma til að sinna kjósendum
mínum og kjördæminu.“
En lítur hún á sig sem ráðherraefni?
„Auðvitað geri ég það. Ég ætla að
tryggja það, fái ég til þess umboð, að
ekki verði hægt að ganga fram hjá
Suður kjördæmi eftir kosningar, þegar
og ef við verðum í þeirri aðstöðu að
skipa til verka.“
Ragnheiður er bjartsýn á árangur
í kosningunum og telur að stjórnar-
flokkarnir muni eiga erfitt uppdráttar
í kjördæminu.
„Ef við skoðum bara atvinnumálin
– hverjir eru undirstöðuatvinnuveg-
irnir í okkar kjördæmi og hver hefur
stefna ríkisstjórnarinnar verið? Þar
er í fyrsta lagi sjávarútvegurinn, sem
sætt hefur stöðugum árásum frá því að
þessi ríkisstjórn tók við, býr við óvissu
og fær ekki vinnufrið.
Orkunýting er gríðarlega mikilvægt
hagsmunamál ekki bara fyrir Suður-
kjördæmi heldur landsmenn alla. Stað-
an er þannig að það þarf nánast bara
að stinga í samband við Suðurland-
ið til að hefja atvinnuuppbyggingu.
Ekkert hefur bólað á því hjá stjórnar-
flokkunum og innbyrðis ágreiningur,
til dæmis varðandi virkjanir í neðri-
hluta Þjórsár, hefur tafið uppbyggingu.
Ég nefni landbúnaðinn sem eina
undir stöðuna enn, og stefna stjórnar-
flokkanna gagnvart honum endur-
speglast í umsókninni að Evrópusam-
bandinu.
Og nú síðast er það ferðaþjónustan,
sem er fjórða stoðin í atvinnuuppbygg-
inu í okkar kjördæmi. Í stað þess að
ríkisstjórnin styðji við bakið á ferða-
þjónustunni, stingur hún hana hrein-
lega beint í bakið með áformum sínum
um hækkun skatta á greinina.“
Eitrað andrúmsloft á þingi
Alþingi hefst á þriðjudag, en þingstörf
hafa einkennst af miklum átökum á
þessu kjörtímabili. Ragnheiður Elín
segir að andrúmsloftið á Alþingi hafi
gjörbreyst við síðustu kosningar. Hún
vill ekki kenna ákveðnum einstakling-
um þar um, en stemningin í samfé-
laginu og á Alþingi hafi breyst gríðar-
lega mikið.
„Það er mun meiri heift og lengra á
milli manna í skoðunum um ákveðin
mál. Andrúmsloftið hefur verið mjög
eitrað allt þetta kjörtímabil.
Ríkistjórnin vill umbylta stjórnar-
skránni, svo dæmi sé tekið, en við vilj-
Auðvitað er ég ráðherraefni
Ragnheiður Elín Árnadóttir hætti sem þingflokksformaður í vikunni en reiknaði með að gegna stöðunni út kjörtímabilið. Hún
segir Kolbeini Óttarssyni Proppé að hún vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Suðurkjördæmi. Hún brýnir konur til dáða.
STEFNIR Á STÓRSIGUR Ragnheiður Elín Árnadóttir vill leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Suðurkjördæmi. Hún hvetur
konur til þess að taka þátt í prófkjörum flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Stjórnmál snúast um hugmyndafræði,
við höfum öll það markmið að bæta
samfélagið, en höfum mismunandi
skoðanir á hvaða leið er best að mark-
miðinu. Við vorum orðin áhugalaus um
hugmyndafræðina fyrir hrun, hlutirnir
gengu vel og mönnum fannst engu
skipta hverjir væru við völd. Þessi
ríkisstjórn, fyrsta tæra vinstristjórnin,
hefur dregið fram hugmyndafræðilega
ágreininginn og ég fagna því. Ég er í
grundvallaratriðum ósammála aðferða-
fræði þessa fólks. Ég vil berjast fyrir
frelsi einstaklingsins, gefa honum rými
til þess taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig
og bera ábyrgð á þeim ákvörðunum.
Vinstrimenn eru hallari undir það að
taka ákvarðanir fyrir fólk og hafa vit
fyrir fjöldanum.
Við höfum séð fjölmörg dæmi á
síðustu árum þar sem þessi hug-
myndafræðilegi munur hefur birst. Ég
hlakka til að taka slaginn um hug-
myndafræðina.“
Hlakka til átaka um
hugmyndafræði
um gera íhaldssamar breytingar í takt
við þá venju sem verið hefur varðandi
stjórnarskrárbreytingar. Það er ekki
reynt að finna milliveginn, heldur
ákveðið að keyra málið í gegn.
Vandinn hefur einnig verið sá að
stjórnarflokkarnir eru lengi að ná
saman innbyrðis og þegar mál koma í
þingið, seint og um síðir, er hvorki svig-
rúm né tími til að vinna með málin.“
Vopn sem virkar
Sérnefnd er að störfum um endurskoð-
un á þingsköpum og Ragnheiður Elín
segir alla sammála um að breyta þurfi
ýmsu. Færa þurfi verklag og vinnu-
brögð á þinginu til betri vegar. Sátt sé
um að breytingarnar taki ekki gildi
fyrr en eftir kosningar, þá sé óvíst
hvaða flokkar verða í stjórn og hverjir
í andstöðu.
„Verkefnið sem við stöndum frammi
fyrir er að tryggja stjórnarandstöðu á
hverjum tíma vopn sem eru það beitt að
þau komi í veg fyrir að ríkjandi meiri-
hluti á hverjum tíma geti valtað yfir
stjórnarandstöðuna, á sama tíma og
lýðræðislega kjörinn meirihluti á að
geta komið á sínum áherslumálum sem
hann var kjörinn til að framkvæma.“
Hún segir að þegar litið sé til ann-
arra þjóðþinga séu átökin til staðar,
þó þau séu kannski ekki eins sýnileg í
þingsalnum sjálfum. Þau eigi sér stað
annars staðar, t.d. í nefndum þinganna.
„Málið er að þetta virkar. Tökum t.d.
Icesave sem dæmi. Þar sameinaðist
stjórnarandstaðan og tókst að afstýra
stórslysi.
Þetta vopn virkar, en það hefur ekki
sérlega skemmtilegt yfirbragð, ég skal
vera fyrsta manneskjan til að viður-
kenna það.“
Atvinnumálin ber hæst
Fyrir síðustu kosningar birtu fram-
bjóðendur og stuðningsmenn Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanesbæ mynd
af sér fyrir framan grindina að álveri í
Helguvík til að leggja áherslu á mikil-
vægi þess. Ragnheiður segir sorg-
lega staðreynd að það sé næstum því
hægt að endurbirta myndina nú fjór-
um árum síðar. Þó gefa nýjar fréttir af
viðræðum Norðuráls og HS Orku von-
andi tilefni til bjartsýni. „Þetta verk-
efni er gríðarlega mikilvægt, sem
dæmi má nefna að skatttekjur ríkis-
ins eru áætlaðar um milljarður á mán-
uði, tólf milljarðar á ári, fyrir utan allt
hitt.“
„Við viljum öll hafa atvinnu og geta
séð fjölskyldu okkar farborða. Það
er einfaldlega ekki í boði á Íslandi
að horfa upp á kynslóðir atvinnu-
lausra verða til. Við verðum að nýta
þau tækifæri sem blasa við. Við erum
með tóman, skuldugan ríkissjóð og
þurfum að forgangsraða takmörkuðu
skattfé í þau verkefni sem eru brýnust.
Menntun, heilbrigðismál, löggæsla –
förum í gegnum listann og forgangs-
röðum. Ríkisstjórnin hefur forgangs-
raðað í þágu einhvers gælumáladútls
allt kjörtímabilið, eins og ESB-umsókn
og stjórnlagaráðið. Það var og er nauð-
synlegt að ganga beint í það sem þarf
að gera og láta hitt bíða.“