Fréttablaðið - 07.09.2012, Page 48
7. september 2012 FÖSTUDAGUR28
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Ísland mætir í kvöld Nor-
egi í fyrstu umferð undankeppni
HM 2014. Þetta verður fyrsti móts-
leikur Íslands undir stjórn Lars
Lagerbäck og mun hann freista
þess að verða fyrsti þjálfari
íslenska landsliðsins í 22 ár sem
vinnur fyrsta heimaleik Íslands í
undankeppni stórmóts.
Ísland hefur tapað sex slíkum
leikjum í röð – eftir frægt 1-1 jafnt-
efli við nýkrýnda heimsmeistara
Frakklands fyrir fjórtán árum.
En nú eru nýir tímar. Nýr lands-
liðsþjálfari og nýr fyrirliði sem fer
fyrir ungum og efnilegum hópi leik-
manna sem eiga að færa íslenska
landsliðið á annan og betri stall en
það hefur verið á undanfarin ár.
Eiður Smári Guðjohnsen hefur
verið andlit íslenskrar knattspyrnu
gagnvart umheiminum í rúman
áratug en nú hafa leikmenn eins og
Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn
Sigþórsson tekið við keflinu. Kol-
beinn verður reyndar frá í kvöld
vegna axlarmeiðsla og missir vænt-
anlega einnig af leiknum gegn Kýp-
verjum ytra í næstu viku.
Slæmt að missa Kolbein
„Fjarvera Kolbeins mun ekki
breyta okkar leik í grunnatrið-
um. Við fáum nú annan leikmann
í liðið og þurfum að aðlaga okkar
leik samkvæmt því en það mun
ekki breyta öllu fyrir okkur,“ sagði
Lager bäck á blaðamannafundi í
gær en játaði því auðvitað að hann
saknaði manns sem hefði skorað
átta mörk í fyrstu ellefu landsleikj-
unum sínum.
„Hann hlýtur að teljast í heims-
klassa með slíkar tölur á bak við
sig,“ sagði hann. „Auðvitað myndi
ég vilja hafa hann í liðinu.“
Gylfi gerir aðra betri í kringum sig
Vegna fjarveru Kolbeins er ekki
útilokað að Gylfi muni spila sem
framherji í kvöld, eins og hann
gerði með góðum árangri í vináttu-
landsleiknum gegn Svartfjalla-
landi. Hann hefur einnig spilað á
kantinum sem og miðjunni undir
stjórn Lagerbäck.
„Venjulega færi ég ekki mína
leikmenn á milli staða eins og
hefur gerst í tilfelli Gylfa. En hann
er klár strákur og hann skilur mína
afstöðu. Auðvitað væri það samt
betra ef leikmenn fengju sínar
stöður og kynntust þeim sem best,“
sagði Lagerbäck.
Hann vill að Gylfi nýtist liðinu
sem best, sama í hvaða stöðu hann
er. „Gylfi er sérstakur leikmaður.
Hann er mikill liðsmaður og gerir
aðra betri í kringum sig. Miðað
við þá hæfileika sem hann býr
yfir ætti hann að gera meira upp
á eigin spýtur. Nú þegar Kolbeinn
er ekki með get ég notað Gylfa á
annan máta en ég hefði gert væri
Kolbeinn leikfær. Þess vegna hef
ég notað hann í nokkrum stöðum.
Hann hefur staðið sig mjög vel í
öllum þeim hlutverkum.
Ekki hægt að krefjast sigurs
Lagerbäck ætlar ekki að krefjast
sigurs í leiknum í kvöld. „Það er
ekki hægt að krefjast neins í knatt-
spyrnu. Það er hægt að leggja mikla
vinnu á sig og vona að leikmenn-
irnir standi sig vel. Við stefnum á
sigur og ég er viss um að leikmenn-
irnir séu sammála því.“
Hann segist skilja vel að fólk geri
kröfur til liðsins og vilji jákvæð
úrslit. „Þau skilaboð sem ég legg
til leikmanna er að með því að und-
irbúa sig eins vel og kostur er og
með því að leggja allt sitt á borðið
er hægt að vinna öll lið. Það hefur
margsýnt sig,“ segir hann og bætir
við: „Ef okkur tekst að gera það 7-8
sinnum í þessum riðli munum við
fara á HM. Það er vel mögulegt
að Ísland komist á stórmót eins og
hefur sýnt sig með árangri U-17 og
U-21 landsliðum Íslands, sem bæði
hafa komist í úrslitakeppni Evrópu-
móts.“
22 ára bið á enda í kvöld?
Síðasti sigur Íslands í fyrsta heima-
leik í undankeppni stórmóts var
gegn Albaníu þann 30. maí árið
1990. Leikurinn endaði 2-0 með
mörkum Arnórs Guðjohnsen og
Atla Eðvaldssonar. Þjálfari liðs-
ins var Svíinn Bo Johannsson, síð-
asti erlendi landsliðsþjálfari okkar
á undan Lagerbäck, sem er einn-
ig Svíi. Leikurinn í kvöld hefst kl.
18.45. eirikur@frettabladid.is
9116 DAGAR eru liðnir síðan íslenska karlalandsliðið vann sigur á Noregi eða síðan Atli Eðvaldsson skoraði eina markið í leik
liðanna í Ósló 23. september 1987. Pétur Ormslev hafði tryggt Íslandi 2-1 sigur á Norðmönnum á Laugardalsvellinum aðeins fjórtán
dögum áður. Tveir sigrar á hálfum mánuði en síðan hafa þjóðirnar mæst sjö sinnum á tæpum 25 árum, Norðmenn hafa unnið
þrisvar og fjórir leikir endað með jafntefli. Moa Abdellaoue hefur tryggt Norðmönnum sigur í síðustu tveimur leikjum.
Fjarvera Kolbeins
mun ekki breyta
okkar leik í grunnatriðum.
LARS LAGERBÄCK
LANDSLIÐSÞJÁLFARI ÍSLANDS
Gylfi er sérstakur leikmaður
Ísland mætir Noregi í undankeppni HM 2014 í kvöld. Kolbeinn Sigþórsson
verður ekki með vegna meiðsla en Lars Lagerbäck og lærsveinar hans ætla sér
sigur gegn Norðmönnum. Ný kynslóð landsliðsmanna hefur rutt sér til rúms.
LEGGUR LÍNURNAR Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari og Gylfi Þór Sigurðsson ræðast við. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Aron Einar Gunnarsson
neitar því ekki að það verði sérstök
stund fyrir sig að leiða íslenska
landsliðið út á Laugardalsvöll í
sínum fyrsta mótsleik sem fyrir-
liði.
„Það er smá stress sem fylgir
því en ég er stoltur af þessu. Þetta
verður gaman og vonandi náum
við þremur stigum sem skiptir
auðvitað mestu máli,“ sagði Aron
á blaðamannafundi í gær.
Margir ungir leikmenn hafa
komið inn í landsliðið á síðustu
árum og nú verður þessi nýja kyn-
slóð í aðalhlutverki í undankeppn-
inni sem er að hefjast.
„Við finnum ekki fyrir aukinni
pressu á okkur. Við finnum fyrst
og fremst fyrir auknum áhuga eins
og sýndi sig þegar rúmlega sjö
þúsund áhorfendur komu á leikinn
gegn Færeyjum. Það hefur verið
meiri jákvæðni í garð landsliðsins
og er það frábært,” sagði hann.
„Auðvitað finnum við fyrir því
að það eru gerðar kröfur til okkar
en það er bara hluti af þessu. Við
erum ákveðnir í að sýna okkar
rétta andlit og gera eitthvað gott
með íslenska landsliðinu. Það ríkir
mikil tilhlökkun í hópnum fyrir
þennan fyrsta leik,“ bætti fyrir-
liðinn við. - esá
Aron Einar Gunnarsson verður landsliðsfyrirliði í sínum fyrsta mótsleik í kvöld:
Finnum fyrir auknum áhuga
ARON EINAR Hlustar hér á fyrirmæli
Lagerbäck á æfingu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, þjálf-
ari íslenska landsliðsins, stýrði
sænska landsliðinu í níu ár, fyrst
með Tommy Söderberg frá 2000
til 2004 og svo einn frá 2004 til
2009. Svíar unnu 57 af 131 leik
undir hans stjórn en tókst þó
ekki að vinna Norðmenn
í þau fjögur skipti sem
þjóðirnar mættust á
þessum tíma.
Svíar og Norð-
menn gerðu tvisv-
ar jafntefli þegar
Lars Lagerbäck
o g To m my
Söderberg voru
saman með
liðið (1-1 árið
2000 og 0-0 árið
2002) og sænska
liðið tapaði síðan
báðum leikjum
sínum á móti Norðmönnum eftir að
Lars var tekinn einn við liðinu (0-3
árið 2004 og 2-3 árið 2005). Allir
þessir leikir voru vináttuleikir og
tveir þeirra voru spilaðir á
hlutlausum velli.
Lagerbäck mætti Norð-
mönnum síðast í vináttu-
landsleik í Solna 8. júní 2005
og unnu Norðmenn þá 3-2
sigur. Svíar komust í 1-0
á 16. mínútu en Norð-
menn lögðu gruninn
að sigrinum með því
að skora þrjú mörk á
aðeins fimm mínút-
um eftir um klukku-
tímaleik. John Arne
Riise, Thorstein
Helstad og Steffen
Iversen skoruðu
mörk Noregs í leikn-
um. - óój
Lagerbäck stýrði Svíum fjórum sinnum á móti Noregi:
Vann aldrei Noreg
LARS
LAGERBÄCK