Fréttablaðið - 07.09.2012, Qupperneq 28
6 • LÍFIÐ 7. SEPTEMBER 2012
Leikkona, ungamamma, þjálf-
ari í Mjölni og svo margt fleira,
hvernig gengur lífið? Eins og í
sögu. Ég gæti ekki einu sinni haft
hugmyndaflug í að búa til svona
söguþráð, svo vel gengur lífið.
Þú leikur skemmtilega pers-
ónu í Ávaxtakörfunni sem var
frumsýnd á dögunum, Evu app-
elsínu. Hvernig var að leika í
myndinni? Það var mjög skemmti-
legt að leika í Ávaxtakörfunni, svo-
lítið skrítið að leika appelsínu, en
það vandist skringilega vel, maður
var líka svo upptekinn við að horfa
á hina leikarana í ávaxtabúningum,
ég held ég hafi líka svolítið gleymt
mér í mínum búningi sökum háu
hælanna sem ég var í. Datt bara
í Evu-appelsínu-gírinn. Okkur
fannst þetta öllum mjög fynd-
ið og skemmtilegt verkefni og við
skemmtum okkur konunglega.
Með soninn í fyrsta sinn í bíó
En hvernig er tilfinningin að sjá
sig á hvíta tjaldinu, venst hún
einhvern tímann? Já, hún gerir
það nefnilega, hún venst. Fyrst,
þegar ég lék í Mýrinni, engdist
ég alveg um í sætinu mér fannst
það svo pínlegt, en núna þegar
ég horfði á Ávaxtakörfuna var ég
vissulega með smá í maganum og
ég held að það fari kannski aldrei
alveg en ég var alveg róleg og góð
„á´ðí“ ef svo má segja.
Hvað fannst syni þínum um
myndina? Þetta var í fyrsta skiptið
sem hann fór í bíó, hann skemmti
sér mjög vel og dansaði með strax
frá byrjun, hann dansaði að vísu
mest við Einmana-lag Jarðarbers-
ins, en það var bara krúttlegt.
Tvær stórar myndir fram undan
Ertu að vinna í fleiri spennandi
verkefnum núna sem þú getur
sagt okkur frá? Ég er í leikhúsi,
ég er að sýna fjölskyldusýningu
sem heitir Ævintýri Múnkhásens.
Ég er þar með Gunnari Helgasyni
og fleiri góðum. Við byrjuðum að
sýna síðasta vetur og það gekk
svo hrikalega vel að við ákváðum
bara að halda því áfram. Svo er ég
í grunnvinnu fyrir nokkur verkefni
sem eru öll mjög spennandi og ég
hlakka til að takast á við. Á plan-
inu svo í vetur eru tvær myndir,
önnur þeirra er Grafarþögn, sem
er framhald af Mýrinni. Sú mynd
hefur verið á planinu frekar lengi
en sökum anna hjá sankti Baltasar
Kormáki hefur henni verið ýtt áfram
í tíma, en vonandi hefst það núna.
Hin er svo Borgríki 2, við erum að
gera allt sem við getum til að láta
það verða að veruleika.
Erfitt að útskýra töfrana
Áttu þér eitthvert draumahlut-
verk/verkefni? Nei, ekkert þann-
ig, en maður sækist eftir þessum
töfrum sem stundum gerast þegar
maður er í hlutverki eða í einhverju
stykki eða verki. Það er erfitt að
útskýra en það er bara þannig,
LÍFIÐ ER BARA
ALLS KONAR
Ágústu Evu Erlendsdóttur þarf vart að kynna en hún
kynnti sig hressilega fyrir þjóðinni í hlutverki sínu sem
Silvía Nótt fyrir nokkrum árum. Síðan hefur ferill þess-
arar einlægu leikkonu blómstrað, söngrödd hennar
hljómað víða og hún orðin móðir. Lífið hitti Ágústu Evu.
ÁGÚSTA EVA ERLENDSDÓTTIR
ALDUR? 30
STARF? Leikkona með meiru
HJÚSKAPARSTAÐA? Á kærasta sem heitir Jón Viðar
BÖRN? Á eins árs son sem heitir Þorleifur Óðinn Jónsson
ÚTVARPS-
STÖÐVAR
Í BEINNI5
FRÉTTIR VIÐSKIPTI SPORT UMRÆÐAN ÚTVARP LÍFIÐ SJÓNVARP
- oft á dag