Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 14
7. september 2012 FÖSTUDAGUR14 Föstudagsviðtaliðföstuda gur Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisfl okksins Það er ein- faldlega ekki í boði á Íslandi að horfa upp á kynslóðir atvinnu- lausra verða til. B jarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokks- ins, tilkynnti Ragn- heiði Elínu Árnadóttur í síðustu viku að hann myndi leggja til að Illugi Gunnars son tæki við af henni sem for- maður þingflokksins. Þetta kom henni á óvart, þar sem hún hafði gert ráð fyrir að gegna því embætti út kjör- tímabilið, en hún tók við þegar Illugi tók sér hlé frá þingstörfum á meðan rannsókn á Sjóði 9 fór fram. „Það var ekkert rætt um það þegar Illugi fór að þetta væri tímabund- ið, alls ekki. Ég var kjörin til þessa embættis af þingflokki Sjálfstæðis- flokksins.“ Ragnheiður segir að með breyting- unni hafi staða kvenna í flokknum síst batnað, en vill ekki horfa á málið út frá kynjasjónarmiðum. „Ég hef, í minni pólitík, ekki orðið vör við það að mér hafi verið hampað eða hafnað vegna þess að ég er kona. Ég er á móti kynjakvótum og slíkri aðferðafræði, en vil sjá fleiri konur í stjórnmálum. Þannig held ég að við getum lagað ástandið. Við erum að fara inn í kosninga- vetur og það eru spennandi tímar fram undan hjá öllum flokkum. Ég vonast svo sannarlega til þess að það verði prófkjör hjá okkur í öllum kjördæm- um og ég vil sérstaklega hvetja konur til að gefa kost á sér til þess að tryggja að við höfum val. Þannig getum við fjölgað konum.“ Stefnir á ráðherrastól Ragnheiður Elín segir að fátt sé svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Nú hafi hún tök á því að einbeita sér að starfinu í Suðurkjördæmi. „Gallinn við þingflokksformanns- starfið er að þú ert með utanumhaldið og ábyrgðina á öllu og öllum. Ég var þannig þingflokksformaður að ég kom fyrst og fór síðust. Nú er sú ábyrgð farin á annarra hendur og ég hef miklu meiri tíma til að sinna kjósendum mínum og kjördæminu.“ En lítur hún á sig sem ráðherraefni? „Auðvitað geri ég það. Ég ætla að tryggja það, fái ég til þess umboð, að ekki verði hægt að ganga fram hjá Suður kjördæmi eftir kosningar, þegar og ef við verðum í þeirri aðstöðu að skipa til verka.“ Ragnheiður er bjartsýn á árangur í kosningunum og telur að stjórnar- flokkarnir muni eiga erfitt uppdráttar í kjördæminu. „Ef við skoðum bara atvinnumálin – hverjir eru undirstöðuatvinnuveg- irnir í okkar kjördæmi og hver hefur stefna ríkisstjórnarinnar verið? Þar er í fyrsta lagi sjávarútvegurinn, sem sætt hefur stöðugum árásum frá því að þessi ríkisstjórn tók við, býr við óvissu og fær ekki vinnufrið. Orkunýting er gríðarlega mikilvægt hagsmunamál ekki bara fyrir Suður- kjördæmi heldur landsmenn alla. Stað- an er þannig að það þarf nánast bara að stinga í samband við Suðurland- ið til að hefja atvinnuuppbyggingu. Ekkert hefur bólað á því hjá stjórnar- flokkunum og innbyrðis ágreiningur, til dæmis varðandi virkjanir í neðri- hluta Þjórsár, hefur tafið uppbyggingu. Ég nefni landbúnaðinn sem eina undir stöðuna enn, og stefna stjórnar- flokkanna gagnvart honum endur- speglast í umsókninni að Evrópusam- bandinu. Og nú síðast er það ferðaþjónustan, sem er fjórða stoðin í atvinnuuppbygg- inu í okkar kjördæmi. Í stað þess að ríkisstjórnin styðji við bakið á ferða- þjónustunni, stingur hún hana hrein- lega beint í bakið með áformum sínum um hækkun skatta á greinina.“ Eitrað andrúmsloft á þingi Alþingi hefst á þriðjudag, en þingstörf hafa einkennst af miklum átökum á þessu kjörtímabili. Ragnheiður Elín segir að andrúmsloftið á Alþingi hafi gjörbreyst við síðustu kosningar. Hún vill ekki kenna ákveðnum einstakling- um þar um, en stemningin í samfé- laginu og á Alþingi hafi breyst gríðar- lega mikið. „Það er mun meiri heift og lengra á milli manna í skoðunum um ákveðin mál. Andrúmsloftið hefur verið mjög eitrað allt þetta kjörtímabil. Ríkistjórnin vill umbylta stjórnar- skránni, svo dæmi sé tekið, en við vilj- Auðvitað er ég ráðherraefni Ragnheiður Elín Árnadóttir hætti sem þingflokksformaður í vikunni en reiknaði með að gegna stöðunni út kjörtímabilið. Hún segir Kolbeini Óttarssyni Proppé að hún vilja leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Suðurkjördæmi. Hún brýnir konur til dáða. STEFNIR Á STÓRSIGUR Ragnheiður Elín Árnadóttir vill leiða Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í Suðurkjördæmi. Hún hvetur konur til þess að taka þátt í prófkjörum flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Stjórnmál snúast um hugmyndafræði, við höfum öll það markmið að bæta samfélagið, en höfum mismunandi skoðanir á hvaða leið er best að mark- miðinu. Við vorum orðin áhugalaus um hugmyndafræðina fyrir hrun, hlutirnir gengu vel og mönnum fannst engu skipta hverjir væru við völd. Þessi ríkisstjórn, fyrsta tæra vinstristjórnin, hefur dregið fram hugmyndafræðilega ágreininginn og ég fagna því. Ég er í grundvallaratriðum ósammála aðferða- fræði þessa fólks. Ég vil berjast fyrir frelsi einstaklingsins, gefa honum rými til þess taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig og bera ábyrgð á þeim ákvörðunum. Vinstrimenn eru hallari undir það að taka ákvarðanir fyrir fólk og hafa vit fyrir fjöldanum. Við höfum séð fjölmörg dæmi á síðustu árum þar sem þessi hug- myndafræðilegi munur hefur birst. Ég hlakka til að taka slaginn um hug- myndafræðina.“ Hlakka til átaka um hugmyndafræði um gera íhaldssamar breytingar í takt við þá venju sem verið hefur varðandi stjórnarskrárbreytingar. Það er ekki reynt að finna milliveginn, heldur ákveðið að keyra málið í gegn. Vandinn hefur einnig verið sá að stjórnarflokkarnir eru lengi að ná saman innbyrðis og þegar mál koma í þingið, seint og um síðir, er hvorki svig- rúm né tími til að vinna með málin.“ Vopn sem virkar Sérnefnd er að störfum um endurskoð- un á þingsköpum og Ragnheiður Elín segir alla sammála um að breyta þurfi ýmsu. Færa þurfi verklag og vinnu- brögð á þinginu til betri vegar. Sátt sé um að breytingarnar taki ekki gildi fyrr en eftir kosningar, þá sé óvíst hvaða flokkar verða í stjórn og hverjir í andstöðu. „Verkefnið sem við stöndum frammi fyrir er að tryggja stjórnarandstöðu á hverjum tíma vopn sem eru það beitt að þau komi í veg fyrir að ríkjandi meiri- hluti á hverjum tíma geti valtað yfir stjórnarandstöðuna, á sama tíma og lýðræðislega kjörinn meirihluti á að geta komið á sínum áherslumálum sem hann var kjörinn til að framkvæma.“ Hún segir að þegar litið sé til ann- arra þjóðþinga séu átökin til staðar, þó þau séu kannski ekki eins sýnileg í þingsalnum sjálfum. Þau eigi sér stað annars staðar, t.d. í nefndum þinganna. „Málið er að þetta virkar. Tökum t.d. Icesave sem dæmi. Þar sameinaðist stjórnarandstaðan og tókst að afstýra stórslysi. Þetta vopn virkar, en það hefur ekki sérlega skemmtilegt yfirbragð, ég skal vera fyrsta manneskjan til að viður- kenna það.“ Atvinnumálin ber hæst Fyrir síðustu kosningar birtu fram- bjóðendur og stuðningsmenn Sjálf- stæðisflokksins í Reykjanesbæ mynd af sér fyrir framan grindina að álveri í Helguvík til að leggja áherslu á mikil- vægi þess. Ragnheiður segir sorg- lega staðreynd að það sé næstum því hægt að endurbirta myndina nú fjór- um árum síðar. Þó gefa nýjar fréttir af viðræðum Norðuráls og HS Orku von- andi tilefni til bjartsýni. „Þetta verk- efni er gríðarlega mikilvægt, sem dæmi má nefna að skatttekjur ríkis- ins eru áætlaðar um milljarður á mán- uði, tólf milljarðar á ári, fyrir utan allt hitt.“ „Við viljum öll hafa atvinnu og geta séð fjölskyldu okkar farborða. Það er einfaldlega ekki í boði á Íslandi að horfa upp á kynslóðir atvinnu- lausra verða til. Við verðum að nýta þau tækifæri sem blasa við. Við erum með tóman, skuldugan ríkissjóð og þurfum að forgangsraða takmörkuðu skattfé í þau verkefni sem eru brýnust. Menntun, heilbrigðismál, löggæsla – förum í gegnum listann og forgangs- röðum. Ríkisstjórnin hefur forgangs- raðað í þágu einhvers gælumáladútls allt kjörtímabilið, eins og ESB-umsókn og stjórnlagaráðið. Það var og er nauð- synlegt að ganga beint í það sem þarf að gera og láta hitt bíða.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.