Fréttablaðið - 07.09.2012, Síða 10
7. september 2012 FÖSTUDAGUR10
Óttast mengun á
framkvæmdatíma
Borgarfulltrúi segir ekkert hugað að þeim miklu jarðvegsflutningum sem
framkvæmdir við nýjan Landspítala útheimta. Deilir áhyggju íbúa af varan-
legri umferðaraukningu. Skipulagstillaga gangi gegn forsögn skipulagsráðs.
SKIPULAGSMÁL Gísli Marteinn
Baldursson, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, segir áhyggjur
íbúa vegna aukinnar umferðar
við nýjan Landspítala réttmætar.
Furðulítil grein hafi verið gerð
fyrir umferðaraukningunni og ráð-
stafanir til að reyna að takmarka
þær séu ekki nógu sannfærandi.
„Þetta rosalega byggingarmagn
dregur náttúrulega til sín mun
meiri umferð en ef við myndum
byggja hóflega við spítalann eins
og ég hef lagt til.“ Gísli bendir á að
bílastæðahúsin, sem tillagan gerir
ráð fyrir, séu ein og sér á stærð við
tæplega tvo Borgarspítala. Hann
telur hins vegar að byggja eigi við
spítalann á Hringbraut, en hug-
myndin geri ráð fyrir allt of miklu
byggingarmagni.
Hjálmar Sveinsson, varaformað-
ur skipulagsráðs, segir að aukinni
umferð við spítalann verði mætt
með því að draga úr umferð við
Háskóla Íslands (HÍ) og hjá starfs-
mönnum Landspítalans. Gert sé
ráð fyrir að gjaldskylda verði í öll
bílastæði við þessar stofnanir, sem
og bílastæði á milli gömlu og nýju
Hringbrautar.
Hjálmar bendir á að um sextíu
prósent nemenda við HÍ komi á
einkabílum og ef takist að minnka
það í fimmtíu prósent, sem væri
engu að síður mjög mikið, mundi
draga verulega úr umferð um
Miklubraut. En hvað með aðra
háskóla, svo sem Háskólann í
Reykjavík (HR)?
„Við viljum líka vinna að því að
þar verði gjaldskylda. Við teljum
það ófært og tímaskekkju að hafa
þetta gríðarlega flæmi ókeypis
bílastæði við HR.“
Gísli segir einnig að engar
aðgerðir hafi verið kynntar til
mótvægis við þá miklu umferð sem
verði á framkvæmdatímanum, en
hann geti staðið í mörg ár.
„Þetta eru náttúrulega svaka-
legar framkvæmdir og ég veit ekki
hversu mörgum tonnum af rúm-
metrum verður mokað upp og ekið
burt, eða hvaða leið á að fara með
þá. Það þarf að koma í veg fyrir að
ryk fjúki við flutninga og úr grunn-
inum yfir íbúa Hlíðahverfis, nóg er
nú samt um svifrykið þar.“
kolbeinn@frettabladid.is
LANDSPÍTALINN Gísli Marteinn Baldursson segir að í forsögn skipulagsráðs hafi verið gengið út
frá því að ásýnd gamla Landspítalans héldist óbreytt. Freklega væri gengið gegn því í tillögunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
GÍSLI MARTEINN
BALDURSSON
HJÁLMAR
SVEINSSON
Gísli Marteinn segir að
í forskrift skipulagsráðs
hafi verið lögð áhersla
á að ásýnd gamla Land-
spítalans, sem Guðjón
Samúelsson teiknaði,
héldist óbreytt. Þá
hafi verið gert ráð fyrir
óbreyttri ásýnd að HÍ
frá gömlu Hringbraut,
enda séu menningar-
verðmæti fólgin í henni
og ásýndin dæmi um
borgarskipulagshug-
myndir í kringum 1930.
Tillagan geri hins
vegar ráð fyrir því að
byggingu verði komið
fyrir ofan á götunni
sem gangi þvert gegn
forskrift ráðsins. „Setja
á meðferðarhús beint
ofan á Gömlu-Hring-
braut, en það er alveg
óljóst hvers vegna. Það
fer fyrir framan gömlu
byggingu Guðjóns
Samúelssonar svo hún
hverfur alveg.“
Gegn forskrift skipulagsráðs
Á Vísi er hægt að horfa
myndskreyttan upplest
úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
á
ur
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið 1928
í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið endurprentað.
Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna hollenska meistarans
G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum börnum í tugi ára.
Til viðbótar við ríkulegan staðalbúnað
í Volkswagen Passat Comfortline Plus
er nú fullkomið leiðsögukerfi með
Íslandskorti ásamt bakkmyndavél.
www.volkswagen.is
Ratvís og
víðsýnn
Volkswagen Passat EcoFuel
Komdu og reynsluaktu Volkswagen Passat
Passat Comfortline Plus
sjálfskiptur kostar aðeins
4.390.000 kr.
Nú á enn
betra verði
Verð á
mann
í tvíbýli: 59.500 kr.
wowferdir.is
Nánari upplýsingar á wowferdir.is og í síma 590 3000
WOW ferðir bjóða upp á einstaka ferð til Berlínar á
WOW verði. Borgin verður sífellt meira spennandi
með öllum sínum veitingastöðum, bjórkjöllurum,
tónleikum og hámenningu.
Innifalið er flug með sköttum, hótel með morgunverði í 4 nætur og
einstaklega áhugaverð gönguferð.
Hjólaðu í
Berlín 15. – 19. október