Fréttablaðið - 07.09.2012, Side 12

Fréttablaðið - 07.09.2012, Side 12
7. september 2012 FÖSTUDAGUR12 FRAKKLAND, AP Átta klukkustundir liðu áður en franska lögreglan átt- aði sig á því að fjögurra ára stúlka væri á lífi í bifreið, sem fannst í frönsku Ölpunum síðdegis á mið- vikudagskvöld, skammt frá þorp- inu Chevaline. Í bifreiðinni voru þrjár látnar manneskjur, einn karlmaður og tveir kvenmenn, að öllum líkind- um foreldrar hennar og amma, en fyrir utan var sjö ára systir stúlk- unnar, illa særð en á lífi. Fyrir utan bifreiðina fannst einnig látinn hjól- reiðamaður, sem virtist hafa átt leið hjá fyrir tilviljun þegar árásarmað- ur eða árásarmenn drápu fólkið. Franska lögreglan vissi ekkert um árásarmennina eða ástæður morðanna. „Stúlkan fannst gersamlega hreyfingarlaus á gólfi bifreiðar- innar, bak við framsætið farþega- megin, undir fótum – undir pilsi – annarrar myrtu konunnar, þar sem hún lá við stóra ferðatösku, algerlega ósjáanleg og þögul, sem útskýrir af hverju enginn sá hana fyrr,“ sagði Eric Milhaud saksókn- ari. Hann sagði hana hafa verið skelf- ingu lostna og engan greinarmun hafa gert á illmennunum og öðru fólki: „Hún er ekki nema fjögurra ára.“ Hún var þó ómeidd og brosti þegar lögreglumenn opnuðu dyr bifreiðarinnar. Hún talaði ensku og sagðist hafa heyrt óp, en gat ekki lýst atvikum nánar. Systirin hafði verið illa barin, með skotsár á öxl og var flutt á sjúkrahús, en var úr lífshættu. Þrjú hinna látnu höfðu verið skotin beint í höfuðið, en lögregl- an vildi ekki strax upplýsa hvern- ig fjórða manneskjan hafði verið myrt. Önnur látna konan er sænsk. Faðirinn er ættaður frá Írak en er breskur ríkisborgari eins og dætur hans og móðir þeirra. Hann var sagður heita Saad al Hilli, búsettur í einu úthverfa London þar sem hann starfaði hjá ljós- myndafyrirtæki. Fjölskyldan var á ferðalagi í frönsku Ölpunum, þar sem hún hafði gist á tjaldsvæði skammt frá morðstaðnum. Ábending barst lögreglu frá íbúa skammt frá tjaldsvæðinu, sem hafði kynnst fjölskyldunni og skildi ekkert í því að hún væri ekki komin aftur. Lögreglan segir að stúlknanna sé vel gætt en þær verði yfir- heyrðar síðar. gudsteinn@frettabladid.is Faldi sig undir líki mömmu sinnar í 8 tíma Bresk fjölskylda fannst myrt í bifreið í frönsku Ölpunum, þar sem hún var á ferðalagi. Fjögurra ára stúlka lá í átta tíma hreyfingarlaus í felum undir líki móður sinnar. Systir hennar fannst illa særð. TJALDSTÆÐIÐ ÞAR SEM FJÖLSKYLDAN HAFÐI GIST Franska lögreglan hafði í nógu að snúast en hafði engar vísbendingar um ástæðu morðanna. NORDICPHOTOS/AFP VIÐSKIPTI Nýsköpunar- og frum- kvöðlasetrið Innovit hefur endur- nýjað samstarf sitt við Samtök atvinnulífsins og Marel. Munu aðilarnir áfram standa að hug- myndasamkeppninni Snilldar- lausnum sem haldin hefur verið síðustu þrjú ár. Þátttakendur í keppninni fá það verkefni að búa til sem mest virði úr einföldum hlut en keppnin er ætluð fyrir framhaldsskólanema. Árið 2009 þurftu þátttakendur að búa til verðmæta hluti úr herða- trjám, árið eftir úr pappakassa og í fyrra úr dósum. - mþl Innovit semur við Samtök atvinnulífsins og Marel: Keppt í snilldarlausnum VERÐLAUNUÐ FYRIR SNILLD Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, afhenti þátttakendum í Snilldarlausnum verðlaun árið 2009. VITA er í eigu Icelandair Group. VITA er lífið VITA | Suðurlandsbraut 2 | Sími 570 4444 | VITA.is Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is ÍS L E N S K A S IA .I S V IT 6 08 61 0 8/ 12 Verð frá 232.000 kr.* og 15.000 Vildarpunktar Roque Nublo 29. okt. - 30. nóv. / 32 nætur Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh. * Verð án Vildarpunkta: 242.000 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Skemmtanastjóri: Hjördís Geirs. Verð frá 147.200 kr.* og 15.000 Vildarpunktar Walkirias Hótel 22. des. - 5. jan. / 14 nætur Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh. * Verð án Vildarpunkta: 157.200 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Verð frá 157.300 kr.* og 15.000 Vildarpunktar Las Camelias 30. nóv. - 22. des. / 22 nætur Verðdæmið er m.v. 2 í íbúð m/1 svefnh. * Verð án Vildarpunkta: 167.300 kr. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting og íslensk fararstjórn. Skemmtanastjóri: Helga Hansen. Beint morgunflug með Icelandair, glæsilegur flugkostur. Kanarí í vetur VITA – ferðaskrifstofa á traustum grunni AÐVENT UFERÐ FRAMANDI VESTNORRÆN MENNINGARHELGI REYKJAVÍK 7.–9. SEPTEMBER 2012 Norræna húsið Flugvöllur Ráðhús Reykjavíkurhöfn Skoðaðu alla dagskrána á: www.facebook.com/NyjarSlodir Norræna húsið Sturlugata 5 101 Reykjavík S: 5517030 www.norraenahusid.is facebook.com/norraenahusid GÁMARNIR OPNA Á MORGUN, LAUGARDAGINN 8. SEPTEMBER. KL. 12.00, KÍKTU INN! TÓNLIST / MATUR / HÖNNUN / KVIKMYNDIR SKÁK / GRÍMUDANS ... OG MARGT MARGT FLEIRA. Á morgun, laugardaginn 8. september kl. 18.00: Tónleikar í flugskýli Flugfélags Íslands. Taktu þátt í skemmtilegum ratleik með flottum vinningum frá Flugfélagi Íslands, 66°Norður og DILL. Dagskrárbækling hátíðarinnar er hægt að nálgast í ráðhúsi Reykjavíkur, í Norræna húsinu og í flugstöð Flugfélags Íslands. Norræna Ráðherranefndin Stúlkan fannst ger- samlega hreyfingar- laus á gólfi bifreiðarinnar, bak við framsætið farþegamegin, undir fótum – undir pilsi – annarrar myrtu konunnar. ERIC MILHAUD SAKSÓKNARI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.