Fréttablaðið - 07.09.2012, Page 26
4 • LÍFIÐ 7. SEPTEMBER 2012
Sjá nánar á visir.is/lifid
Fjölmenni mætti í Tjarnarbíó á formlega opnun
netverslunar Nike.is í gærkvöldi. Glæsileikinn og
ekki síður gleðin var allsráðandi en fjölmiðlakonan
Ragnhildur Steinunn var kynnir.
TAUMLAUS GLEÐI
Í TJARNARBÍÓI
ELÍN HRÖNN GEIRSDÓTTIR
„Já bókin sem breskar húsmæður dýrka og dá. Hvað
get ég sagt. Þessi bók verður seint talin til bók-
menntaafreka Breta en fær mann til að roðna
niður í tær við lesturinn og sjá já, ýmislegt í nýju
ljósi. Í Bretlandi er talað um húsmæðraklám.“
ÚRSÚLA LINDA JÓNASDÓTTIR
„Fyrsta bókin er geggjuð. Ég las hana á innan við
viku, gat ekki lagt hana frá mér, í staðinn fyrir að
hafa það kósý yfir sjónvarpinu á kvöldin þá var
bókin tekin og lesið og
lesið. Ég tók hana meira
að segja með mér í vinn-
una og las þegar ég hafði
lausan tíma. Það er eitthvað
við þessar bækur sem að fær þig
til að vilja lesa þær og ekki hætta.
Herra Grey er spennandi og dularfullur og þig
langar að vita meira eða allavega var það svo-
leiðis hjá mér. Ég las bækurnar eftir að tengdó
sagði að ég yrði að lesa þær og ég sé sko
ekki eftir því. Þetta eru geggjaðar bækur sem
að engin kona ætti að sleppa að lesa.“
50 GRÁIR SKUGGAR
eftir EL James
BÓKIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM
Hól vikunnar fær Svanhildur Hólm,
fyrrverandi framkvæmdastjóri þing-
flokks Sjálfstæðisflokksins, sem var í
vikunni ráðin aðstoðarmaður Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins. Það er vissulega fagnað-
arefni þegar íslenskar konur takast á
við krefjandi störf og þá sér í lagi þegar stjórn-
mál eru annars vegar. Lífið óskar Svanhildi, sem
starfaði meðal annars sem dagskrárgerðarkona
í Íslandi í dag á Stöð 2, farsældar í nýja starfinu.
HÓL VIKUNNAR5
MYNDIR/SIGURJÓN RAGNAR