Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 07.09.2012, Blaðsíða 35
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2012 3 Formleg fræðsla fyrir þá sem sitja í stjórnum hefur ekki verið í boði í gegnum tíðina. Í staðinn hefur verið gert ráð fyrir að fólk viti hvernig það á að haga sér þegar það sest í fyrsta skipti í stjórn og nýliðarnir læri af hinum reyndari og hagi sér svo eins,“ út- skýrir Þóranna sem á námskeið- inu leiðbeinir jafnt stjórnarmönn- um með áratuga reynslu sem og nýliðum í stjórn. Hún bætir við að ekki sé þar með sagt að þeir sem voru áður í stjórn hafi hegðað sér rétt. „Eftir hrun kemur æ betur í ljós að stjórnir öxluðu ekki þá ábyrgð sem ætlast var til. Það var þó hvorki vegna brotavilja né af því að stjórn- armenn unnu ekki vinnuna sína heldur sökum þess að þeir áttuðu sig ekki nógu vel á hlutverki sínu. Þar af leiðandi var stjórnin ekki sá varnagli sem hún hefði þurft að vera í mörgum tilvikum.“ Þóranna segir vinsældir náms- línunnar felast í almennri ánægju þátttakenda og löngun þeirra til að standa sig enn betur í starfi. „Stjórnarmenn átta sig æ betur á þeirri miklu ábyrgð sem fylgir stjórnarsetu. Þeir vilja því vanda til verka og kemur flestum skemmtilega á óvart hvað þeir læra mikið á námskeiðinu.“ Hún segir jafnframt koma flest- um á óvart hvað hægt er að skoða hlutverk stjórna út frá mörgum sjónarmiðum. „Vitaskuld eiga stjórnir að gæta hagsmuna hluthafa en f lestum þykir einna áhugaverðast hvernig stjórnir vinna saman sem hópur og hvers vegna hópur en ekki einstak- lingur er settur í mestu ábyrgðar- stöðuna. Einnig hvað það þýðir þegar hópur tekur ákvörðun. Þá fara nemendur að setja ýmislegt í samhengi og hugsa málin upp á nýtt,“ útskýrir Þóranna. Námslínan nýtist jafnt reynd- um stjórnarmönnum og þeim sem hafa litla reynslu og er góður undir búningur fyrir þá sem hafa hug á að setjast í stjórn í fyrsta skipti. „Námslínan er heilsteypt um- fjöllun um stjórnir almennra hlutafélaga og eftirlitsskyldra aðila,“ segir Þóranna að lokum. Hugsað upp á nýtt Ein allra vinsælasta námslína Opna háskólans í HR er Ábyrgð og árangur stjórnarmanna. Dr. Þóranna Jónsdóttir leiðbeinir á einum hluta námslínunnar og fjallar um hlutverk og verklag stjórna. Þar er meðal annars fjallað um hvernig stjórnir geta gripið inn í aðstæður áður en allt er komið í óefni. Dr. Þóranna Jónsdóttir er framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá HR. MYND/GVA Fyrir stjórnarmenn fyrirtækja, stofnana og eftirlitsskylda aðila samkvæmt skilyrðum FME sem og þá sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu. Markmið námslínunnar er að efla faglegan grunn stjórnarmanna með þjálfun á sviði lagalegra, fjárhagslegra og siðferðilegra viðfangsefna. Námið er kjörið til undirbúnings fyrir þá sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarsetu, en á næsta ári taka gildi lög um kynjahlutfall í stjórnum íslenskra fyrirtækja. NÁMSLÍNAN OG LEIÐBEINENDUR: Grundvallaratriðin – Handbók stjórnarmanna Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðingur á fyrirtækjasviði KPMG Hlutverk og verklag stjórna Dr. Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar og stjórnunar hjá HR Viðskiptasiðfræði Stefán Einar Stefánsson, formaður VR Lagaleg viðfangsefni stjórna Jóhannes Rúnar Jóhannsson hrl, stundakennari við HR og HÍ Fjárhagsleg viðfangsefni stjórna Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Tanya Zharov, lögfræðingur hjá Auði Capital ÁBYRGÐ OG ÁRANGUR STJÓRNARMANNA Skráðu þig á www.opnihaskolinn.is eða hafðu samband við okkur í síma 599 6300 „Á stjórnarfundum er allt fjárhagslegt tekið fyrir og með hagnýtum hætti munum við kenna nemendum að taka afstöðu til upplýsinga og hafa lágmarksþekkingu á hlutum eins og ársreikningum og verð- mætamati sem er vitaskuld nauðsynlegt öllum stjórnendum. Þessi viðfangsefni koma óneitanlega við sögu í stjórnum og menn verða að geta tekið ákvarðanir um þau,“ segir Almar Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda. Almar er annar af tveimur leið- beinendum á námskeiðinu Fjár- hagsleg viðfangsefni stjórna sem er eitt fimm námskeiða í námslínunni Ábyrgð og árangur stjórnarmanna í Opna háskólanum í HR. Hinn leið- beinandinn er Tanja Zharov, lög- fræðingur hjá Auði Capital. „Við Tanja leggjum áherslu á að tvinna saman umræður um stefnu- mótun annars vegar og áætlana- gerð fyrirtækja hins vegar. Stund- um er stefnumótun unnin á einum stað og áætlanagerð, sem gerð er ár- lega eða oftar, á öðrum stað og ekki verið að tengja á milli. Því er mikil- vægt að stjórnir hjálpi stjórnendum að tvinna þetta tvennt saman og að markmiðasetning og þess háttar nái inn í áætlanagerð og ársreikninga. Þannig er auðveldara að ná settum markmiðum,“ útskýrir Almar. Á námskeiðinu er einnig farið yfir skráningu félaga á verðbréfamarkað út frá ýmsum sjónarhornum. „Eftir að hagkerfið tekur smátt og smátt að lyftast fer verðbréfa- markaðurinn að koma meira við sögu. Því leggjum við töluverða áherslu á ábyrgð stjórnenda með hliðsjón af skráningu fyrirtækja í Kauphöll Íslands, þar sem gilda ákveðnar lagareglur og kröfur um framsetningu talnalegra upplýsinga verða ýtarlegri.“ Settum markmiðum náð Almar Guðmundsson er framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda og leiðbeinandi hjá HR. MYND/ANTON KYNNING − AUGLÝSING heiti blaðs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.