Fréttablaðið - 07.09.2012, Side 54

Fréttablaðið - 07.09.2012, Side 54
7. september 2012 FÖSTUDAGUR34 HELGIN „Ég verð aðallega að undirbúa opnun síðunnar minnar og svo er ég að fara í myndatöku hjá Arnold ljósmyndara. Ég ætla mér samt tíma til að fá mér gott að borða og njóta með kærastanum mínum og litla stráknum hans.“ Bryndís Gyða Michelsen sem er að opna síðuna Hun.is „Ég er ekki að fara að spyrja fólk hvar það hafi keypt lampann í horninu eða teppið á gólfinu. Við erum meira að fara að skoða heimilin og velta upp spurn- ingum eins og hvað það sé sem geri heimili heim- ilisleg. Þess á milli kynnumst við viðmælendunum nánar og ræðum hvernig þeir tvinna saman heimilið og lífið,“ segir fréttamaðurinn Sindri Sindrason sem flestum er góðu kunnur úr þáttunum Ísland í dag. Sindri fer af stað með nýja lífsstílsþætti, Heim- sókn, á Stöð 2 þann 15. september. Þar kíkir hann í heimsókn til fólks sem hefur ekki opnað dyr sínar fyrir almenningi áður og kynnist heimilisháttum þeirra og persónulegu lífi. „Fagurkerarnir sem við heimsækjum eru jafn mismunandi og þeir eru margir og allir með mikinn áhuga á fallegum heim- ilum. Við erum með allt frá hönnuðum og arkitektum til pólitíkusa og svo allt þar á milli,“ segir Sindri og nefnir sem dæmi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, Rut Káradóttur og Kormák úr Kormáki og Skildi. Þættina kemur Sindri til með að vinna með- fram Íslandi í dag en sjálfur segist hann vera mikill áhugamaður um falleg heimili og áhugavert fólk. - trs Sindri heimsækir fagurkera HEIMSÓKN Sindri segist vera mikill áhugamaður um falleg heimili og áhugavert fólk, en það er akkúrat það sem nýju þættirnir hans, Heimsókn, fjalla um. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hallur Ingólfsson tónlistarmaður fer með hlut- verk í spennumyndinni Frosti sem frumsýnd verður í kvöld. Þetta er þriðja kvikmyndahlut- verk Halls sem segist hafa ofsalega gaman af því að spreyta sig á leiklistinni. „Ég hef ekki beint verið að sækjast eftir því að fá hlutverk, þetta hefur bara þróast þann- ig. Ég hef samið tónlist fyrir bæði leikverk og kvikmyndir og þannig hefur eitt leitt af öðru,“ segir Hallur. Hann leikur jöklafræðinginn Róbert í spennumyndinni Frost og viðurkennir að það hafi verið einstök upplifun að fá að verja tíma uppi á jökli. „Ég var við tökur í þrjá daga í það heila og lærði að keyra vélsleða og síga ofan í sprung- ur. Ég var þó aldrei hræddur þarna uppi því við vorum umkringd mönnum sem voru öllum hnútum kunnugir og öryggið var til fyrirmynd- ar.“ Inntur eftir því hvort hann finni nokkurn tímann til feimni að leika á móti faglærðum leikurum líkt og Birni Thors og Önnu Gunndísi Guðmundsdóttur svarar Hallur neitandi. Hann segir orðið „heiður“ koma fyrst upp í hugann. „Mér finnst þetta heiður og vil því standa mig sem best og leika eins vel og ég get.“ Hallur lék einnig vonda karlinn í myndinni Algjör Sveppi og dularfulla herbergið og fer að auki með hlutverk í mynd sem ber vinnuheitið Þetta reddast. Hann hefur þó ekki sagt skilið við tónlistina, sem er að hans sögn stóra ástin í lífi hans. „Tónlistin er enn þá aðal, það er stóra ástin. Ég er að fara að gera tónlist fyrir sjónvarps- þætti sem Lars Emil Árnason leikstýrir og fyrir leikverk eftir Jón Atla Jónasson. Svo er ég að vinna í sólóplötu og annarri plötu með hljóm- sveit sem ég er í. Sveitin er enn nafnlaus en við erum með fullt af tilbúnum lögum.“ - sm Heiður að fá að prófa leiklistina PRÓFAR LEIKLISTINA Hallur Ingólfsson tónlistarmaður fer með hlutverk í kvikmyndinni Frost. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Mér þótti það mikill heiður að hann skyldi biðja mig um þetta. Þetta sýnir í raun áhugann á íslenskum glæpasögum,“ segir spennusagnahöfundurinn Ragnar Jónasson. Stjórn bresku glæpasagnasam- takanna, Crime Writers Associa- tion (CWA), hefur samþykkt stofn- un sérstakrar Íslandsdeildar innan samtakanna. Aðeins níu deild- ir eru innan samtakanna og er Íslandsdeildin sú fyrsta utan Bret- lands. CWA hefur einnig nýlega stofnað samtök fyrir lesendur glæpasagna, The Crime Readers Association. Ragnar hefur sjálfur verið með- limur í CWA í tvö ár og hitti for- mann samtakanna, höfundinn Peter James, á glæpasagnaráð- stefnu í Bristol í vor. Þar koma saman höfundar glæpasagna héðan og þaðan úr heiminum og hittast. Ragnar tók þátt í pallborðsum- ræðum um glæpasögur og ræddi einnig við James, sem er vinsæll höfundur í Bretlandi. „Hann vildi stofna Íslandsdeild, en skandinav- ískar og íslenskar glæpasögur eru alltaf að vekja meiri og meiri athygli. Ég sagðist vera til í að aðstoða hann,“ segir Ragnar. Núna geta íslenskir glæpasagna- höfundar því skráð sig á heimasíðu CWA, Thecwa.co.uk, og mun Ragn- ar taka þátt í að safna félagsmönn- um. Útlendingar sem skrifa bækur sem gerast á Íslandi eru einnig gjaldgengir í samtökin og nefnir Ragnar þar til sögunnar höfunda á borð við Michael Ridpath og Quentin Bates. Að sögn Ragnars hefur Peter James einnig mikinn áhuga á að heimsækja Ísland og spjalla við íslenska höfunda. Sjálfur er Ragnar tilbúinn með sína fjórðu bók, glæpasöguna Rof sem kemur út í október. Hún fjallar um rannsókn á gömlu morð- máli norður í landi, í Héðinsfirði. Þar er mál rannsakað sem átti sér stað fyrir hálfri öld, áður en Héð- insfjarðargöngin voru opnuð og fjörðurinn var enn lokaður eyði- fjörður. freyr@frettabladid.is RAGNAR JÓNASSON: SÝNIR ÁHUGANN Á ÍSLENSKUM GLÆPASÖGUM Bresku glæpasagnasam- tökin stofna Íslandsdeild MIKILL HEIÐUR Ragnar Jónasson segir það mikinn heiður að stofnuð hafi verið Íslandsdeild innan CWA. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN CWA eru mjög virt samtök innan alþjóðlega glæpasagnaheimsins, en þau voru stofnuð árið 1953 og hafa tæplega 500 meðlimi. Samtökin veita árlega ein virtustu glæpasagnaverðlaun heims, Gyllta rýtinginn, sem Arnaldur Indriðason hlaut fyrir skáldsögu sína Grafarþögn. VIRT SAMTÖK

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.