Fréttablaðið - 20.10.2012, Blaðsíða 34
20. október 2012 LAUGARDAGUR34
J
æja strákar, segið mér nú frá
plötunni, er hún jafn góð og
Undraland?
Valdimar: Hún er miklu
betri (hlær). Þetta er ekki
nein systurplata Undra-
lands heldur stendur hún
alveg sjálf og er uppfull af nýjum
hugmyndum.
Ásgeir: Það er meira að gerast
á þessari og alls konar tilrauna-
starfsemi í gangi. Ég tók mér
kannski heilan dag í að taka upp 30
sekúndur, eða bara þar til ég var
fullkomlega sáttur við hljóminn.
Það var hægt núna því við unnum
hana svo mikið sjálfir og þurftum
minna að vinna eftir klukkunni.
Hún er sem sagt heimatilbúin að
miklu leyti?
Ásgeir: Já, við tókum hana mikið
til upp sjálfir og sömdum hana alla.
Núna var síðasta plata öll á
íslensku og þessi er það líka. Eruð
þið ekkert að eltast við heimsfrægð?
Ásgeir: Jú, jú, við héldum bara að
við gætum orðið frægir á íslensku.
Valdimar: Já, fyrst Sigurrós gat
það sáum við ekkert því til fyrir-
stöðu að við gætum það líka. Við
erum samt smám saman að átta
okkur á að við erum ekki Sigurrós.
Ásgeir: Það kemur að því að við
reynum við útlönd. Við erum bara
ekki búnir að ákveða hvenær eða
hvernig enn þá.
Þið hafið ekkert haft áhyggjur af
ruglingi með að nefna bandið í höf-
uðið á aðalsöngvaranum?
Ásgeir: Mér fannst þetta rosa-
lega hnyttið og skemmtilegt til
að byrja með, en svo varð þetta
bara vesen. Þegar við fórum að
velta upp nöfnum fór ég að hugsa
um þessi keflvísku bönd sem hafa
verið að gera það gott, Hljómar og
Hjálmar, og sá að þessi -mar end-
ing var greinilega að gera sig.
Okkur fannst Valdimar því augljóst
val. Við höfum held ég sannað enn
og aftur að þessi ending virkar vel
fyrir okkur Keflvíkingana.
Valdimar: Þá erum við búnir að
Valdimar var augljóst val
Hljómsveitin Valdimar gefur út sína aðra breiðskífu, Um stund, á miðvikudaginn en hún kom í forsölu á netinu á fimmtudag.
Valdimar Guðmundsson, söngvari hljómsveitarinnar, og Ásgeir Aðalsteinsson gítarleikari settust niður með Tinnu Rós Steinsdótt-
ur og fóru yfir nýju plötuna og breytingarnar sem hafa orðið frá því að fyrsta plata þeirra, Undraland, kom út fyrir tveimur árum.
VINIR FRÁ ÞVÍ Í GRUNNSKÓLA Þeir Valdimar og Ásgeir hafa verið vinir frá því í grunnskóla. Þeir félagar sömdu bróðurpartinn af nýju plötunni, Um stund, sem er öll samin af hljómsveitinni sjálfri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VALDIMAR Hljómsveitin Valdimar
samanstendur af sex manns,
þeim Högna Þorsteinssyni
gítarleikara, Kristni Evertssyni
hljómborðsleikara, Valdimar
Guðmundssyni söngvara, Ásgeiri
Aðalsteinssyni gítarleikara,
Þorvaldi Halldórssyni trommara
og Guðlaugi Guðmundssyni
bassaleikara.
Söngvarinn Valdimar segist ekki
muna til þess að hafa nokkurn
tíma verið grannur. Það var eftir
að hann sá sjálfan sig í þættinum
Hljómskálanum á RÚV að hann
segist hafa áttað sig á hversu feitur
hann var orðinn og ákvað í kjölfarið
að gera eitthvað í sínum málum.
210 kíló
Valdimar var orðinn 210 kíló um
áramótin en hefur nú misst rúm 30
kíló. Hann segist enn eiga langt í
land en vonast til að komast í kjör-
þyngd einn daginn. „Ég er ekkert
að stressa mig á neinni tölu eða
tíma þó ég sé kannski með ein-
hver ímynduð markmið sem væri
gaman að ná. Þetta snýst að svo
miklu leyti um viðhorfsbreytingu.“
Skynsemiskúrinn
Aðspurður hvaða leiðir hann noti
til að léttast segist hann vera á
skynsemiskúrnum. „Ég byrjaði á
að kaupa mér minna nammi, svo
hætti ég að drekka Pepsi Max og
tók þetta bara í skrefum.“ Valdimar
fær í dag aðstoð frá Íslensku
vigtarráðgjöfunum og borðar mat
frá heilsustaðnum Karma í Keflavík.
Þar að auki byrjaði hann í einka-
þjálfun fyrir tveimur mánuðum.
Má ekki stoppa
„Þó ég sé vissulega búinn að ná
ágætis árangri þá á ég ennþá slatta
eftir. Það þýðir ekkert að hætta
núna og fara að hreykja sér yfir
árangrinum þegar þetta er bara rétt
að byrja,“ segir Valdimar og segist
í raun bara vera farinn að haga sér
eins og venjulegur maður. „Þetta
eru engin geimvísindi, maður
borðar bara minna en maður
brennir. Þó það sé kannski erfiðara
en það hljómar.“
30 kíló farin
en enn langt í land
leka leyndarmálinu og nú fara öll
bönd frá Keflavík að heita nafni sem
endar á -mar, vel gert Ásgeir.
Já, samkeppnin fer kannski að
aukast í kjölfarið. En þið hafið nú
náð ágætis stöðu á markaðnum
á þessum tveimur árum. Þegar
Undraland kom út þekktu ykkur
fáir, en aðra sögu er að segja í dag.
Er öðruvísi að standa í plötuútgáf-
unni núna en það var síðast?
Valdimar: Það er auðvitað tölu-
vert auðveldara að koma sér á
framfæri núna. Síðast vissi enginn
hverjir við vorum og því enginn að
bíða eftir plötunni.
Ásgeir: Núna getum við sent fólki
póst og sagt „Hey, við vorum að gefa
út plötu, finnst þér það ekki merki-
legt“ – og þeim finnst það raunveru-
lega merkilegt.
Valdimar: Þetta var meira puð
síðast. Ég man að Ágúst Bogason
var fyrstur til að gefa okkur séns.
Þegar X-ið fór svo að spila lagið
Yfirgefinn á fullu og ég söng í
Okkar eigin Ósló fór þetta að ger-
ast fyrir alvöru. Ætli við getum ekki
þakkað Memfismafíunni velgengn-
ina að einhverjum hluta.
Hljómsveitin hefur líka breyst á
síðustu tveimur árum og nýr með-
limur bæst í hópinn, ekki satt?
Valdimar: Jú, jú, við erum orðnir
sex núna. Þegar Ásgeir fór út
fengum við Högna inn í afleysingar.
Svo fannst okkur hann bara svo
skemmtilegur gaur að við gátum
ekki hugsað okkur að láta hann fara
þegar Ásgeir kom aftur.
Ásgeir: Já, hann er ekkert spes
gítarleikari, bara svo skemmti legur
gaur. (hlær)
Valdimar: Hann er sólargeislinn
okkar.
Ásgeir: Á þessari plötu tókum
við svo öll lögin upp með tveimur
gíturum svo ég neyddist til að flytja
heim svo við þyrftum ekki að finna
annan staðgengil.
Ætlið þið að fylgja plötunni eitt-
hvað eftir?
Ásgeir: Já, við verðum með hlust-
unarpartí á Faktorý á þriðjudag-
inn, verðum fyrir norðan um næstu
helgi og fyrir austan helgina eftir
það. Svo verðum við að spila heilan
helling á Airwaves og verðum með
útgáfutónleika í Gamla bíói 16.
nóvember.
Valdimar: Svo er ég einn af gest-
unum í Jólagestum Björgvins í ár,
svo það er nóg fram undan.
En að lokum, eigið þið ykkur
uppáhaldslag á plötunni?
Valdimar: Ég er alltaf að skipta
um skoðun hvaða lag það er, þetta er
svo góð plata. Titillag plötunnar, Um
stund, er samt í mestu uppáhaldi hjá
mér núna. Lagið hans Ásgeirs.
Ásgeir: Oh, en fallegt. Ætli ég
verði þá ekki að velja eitt af þínum
lögum (hlær). Nei, það vill reyndar
svo til að Valdimar á mitt uppá-
haldslag, enda er hann uppáhalds-
lagahöfundurinn minn. Það er lagið
Ég man. Það er öðruvísi en hin lögin
og mér þykir rosalega vænt um það.
MYND/ÚR EINKASAFNI