Fréttablaðið - 20.10.2012, Qupperneq 36
20. október 2012 LAUGARDAGUR36
Þ
rír hafa hlotið fangels-
isdóma fyrir afbrot
tengd bankahruninu.
Þessir þrír dómar
eru samtals ellefu ár
að þyngd og ef til vill
vísbending um það sem koma skal
í þeim sakamálum sem þegar hafa
ratað til dómstóla og öllum þeim
sem enn eru ekki komin svo langt.
Það gekk ekki þrautalaust að
hefja sakamálarannsóknir tengdar
bankahruninu. Embætti sérstaks
saksóknara var stofnað með lögum
í desember 2008 en fyrsta atrenna
að því að ráða manneskju yfir emb-
ættið bar ekki árangur. Það sótti
einfaldlega ekki nokkur maður um.
Þá voru góð ráð dýr; yfirvöld fóru
á stúfana og fengu loks sýslumann
ofan af Akranesi til að gefa kost á
sér. Ólafur Þór Hauksson hét sá og
hann hefur síðan verið meðal mest
áberandi manna í íslensku þjóðlífi.
Ólafur fékk til liðs við sig sak-
sóknara og starfsfólk – ekki margt
í upphafi en því hefur fjölgað gríð-
arlega í nokkrum áföngum. Og
stjórnvöld fengu honum til ráðgjaf-
ar norsk-franska rannsóknardóm-
arann Evu Joly, sem komst hálf-
partinn í dýrlingatölu á Íslandi,
ekki síst vegna þess hversu opin-
skátt hún leyfði sér að tala um
glæpina sem hún fullyrti að hér
hefðu verið framdir.
Rassíur, varðhöld og dómar
Fimm mánuðum síðar, í maí 2009,
var ráðist í fyrstu stóru aðgerðina.
Leitað var á tólf stöðum og tutt-
ugu voru yfirheyrðir vegna lána
Kaupþings til sjeiksins Al Thani
frá Katar. Það mál leiddi til ákæru
í sumar. Síðan hefur hver rassían
rekið aðra og varla til sá íslenski
banka- og fjármálajöfur sem ekki
hefur gefið skýrslu í húsakynnum
embættisins.
Sérstakur saksóknari hefur
einnig talið nauðsynlegt að beita
þvingandi úrræðum á borð við far-
bann og gæsluvarðhald. Sá fyrsti
sem sætti slíkri meðferð var Jón
Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi
stjórnarformaður Byrs, sem var
úrskurðaður í farbann í desemb-
er 2009 vegna rannsóknar Exeter-
málsins. Síðan hafa fyrrverandi
hæstráðendur Kaupþings og Lands-
bankans, meðal annarra, sætt varð-
haldi og farbönnum.
Fyrsti dómur í máli sérstaks sak-
sóknara féll í fyrravor, þegar Bald-
ur Guðlaugson, sem áður var einn
æðsti embættismaður landsins, var
dæmdur í fangelsi fyrir innherja-
svik. Raunar hafa bara tvö mál
embættisins verið tekin til dóms,
og bæði endað með sakfellingu –
það síðara þurfti reyndar kollvörp-
un Hæstaréttar til.
Stöndum Frökkum á sporði
Embættið hefur vaxið gríðarlega.
Í upphafi voru þar innan við tíu
manns, en síðan hefur þeim fjölg-
TÍMAMÓT Það markaði þáttaskil í starfsemi sérstaks saksóknara þegar Hreiðar Már Sigurðsson var úrskurðaður í gæsluvarðhald vorið 2010 ásamt Magnúsi Guðmundssyni.
Þeir hafa nú báðir verið ákærðir fyrir svik og pretti í málinu kenndu við katarska sjeikinn Al Thani. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Baldur í fangelsi
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi Baldur Guðlaugsson,
fyrrverandi ráðuneyt-
isstjóra, í fyrra-
vor í tveggja
ára fangelsi
fyrir innherja-
svik með bréf
í Landsbankan-
um. Hæstiréttur
staðfesti dóm-
inn. Aldrei fyrr
hafði verið
sakfellt
fyrir
innher-
jasvik á
Íslandi.
Byrsmenn fá þungan dóm
Hæstiréttur sneri í sumar dómi
héraðsdóms og dæmdi Jón Þor-
stein Jónsson og Ragnar Z. Guð-
jónsson, fyrrverandi hæstráð-
endur Byrs, í fjögurra og hálfs
árs fangelsi fyrir umboðssvik í
svokölluðu Exeter-máli. Örlög
Styrmis Þórs Bragasonar, for-
stjóra MP banka, eru enn óráðin.
Ákært í Vafningsmáli
Lárus Welding, fyrrverandi for-
stjóri Glitnis, og Guðmundur
Hjaltason, sem var yfirmaður
í bankanum, voru í árslok 2011
ákærðir fyrir tíu milljarða lán til
Milestone í svokölluðu Vafnings-
máli.
Al Thani-fléttan
Kaupþingsmennirnir Hreiðar
Már Sigurðsson, Sigurður Ein-
arsson, Magnús Guðmundsson
og Ólafur Ólafsson voru í sumar
ákærðir fyrir 30 milljarða lán-
veitingu til Ólafs og
katarska sjeiksins
Al Thani.
Blekkingar í Existu
Lýður Guðmundsson og lögmað-
urinn Bjarnfreður Ólafsson voru
nýverið ákærðir fyrir að borga
bara milljarð, fenginn að láni,
fyrir það sem þeir kölluðu fimm-
tíu milljarða hlutafjáraukningu.
Bankahrunið var þjóðinni og okkur öllum mikið áfall. Sumarið 2008 sýndu bankarnir góðan hagnað og töldu sig eiga rekstrarfé
út árið 2009. Við höfðum fylgst með íslenskum viðskiptamönnum
fara með himinskautum erlendis í fjárfestingum og séð einkaflug-
vélar og glæsieignir þeirra í séð-og-heyrt-miðlum landsins.
Íslenska efnahagsundrið breyttist svo í íslensku martröðina á
einni nóttu. Einstaklingar áður nánast í guðatölu breyttust umsvifa-
laust í skúrka og reiðin sauð niðri í þjóðinni. Um það bil 20-30
einstaklingar úr viðskiptalífinu og stjórnsýslunni voru stimplaðir sem
sökudólgar og Rannsóknarskýrslan tók undir almannaróm og benti
jafnframt á veikleika í fjármála- og stjórnkerfinu.
Sérstakur saksóknari var settur á legg og hefur ekki setið auðum
höndum. Fjöldi starfsmanna hefur nálgast hundraðið og málafjöld-
inn mælst í tugum og fjöldi grunaðra vel á annað hundrað. Nokkrir
hafa þegar verið ákærðir og dæmdir og tugir bíða enn örlaga sinna.
Varla finnst nokkurt land í heiminum sem tekið hefur á kreppunni
með viðlíka hætti enda á bankahrunið okkar vart sinn líka í sam-
tímanum.
Hugmyndafræðin sem keyrði okkur fram að hengifluginu hefur
þó fengið minni athygli en efni standa til. Trúin á markaðinn frjálsa
sem leiðréttir sig sjálfur og á afskiptalítið ríkisvald plægði jarðveginn
fyrir ófarir okkar á sama tíma og aðgangur að lánsfé var nánast
ótakmarkaður erlendis. Fjárfestar nýttu sér hið hagstæða umhverfi
út í ystu æsar til ævintýralegra fjárfestinga sem hrundu síðan eins og
spilaborg framan í okkur í upphafi alþjóðlegu lánsfjárkreppunnar.
Barnsleg trú á yfirburði óheftrar markaðshyggju getur þó aldrei
réttlætt siðlausa og saknæma háttsemi viðskiptajöfra sem reyndu
hvað þeir gátu að bjarga fjármálastofnunum sínum og eigin skinni
á síðustu metrum gullæðisins. Sviptivindar á alþjóðamarkaði duga
heldur ekki sem afsökun. Til þess hafði verið teflt of djarft og tjón
saklausra vegfarenda of stórt. Dómstólar eiga þó síðasta orðið. Von-
andi verða þeir vandanum vaxnir hvernig sem fer að lokum.
Sönn og sérstök sakamál
Sakamál tengd bankahruninu eru orðin allnokkur og þeim á enn eftir að fjölga. Hæpið er að áætlanir sérstaks saksóknara um
að þau verði öll um garð gengin í árslok 2014 standist. Þrír hafa hlotið fangelsisdóma í hrunmálum og tugur annarra ákærður.
FJÖGUR ÁR FRÁ EFNAHAGSHRUNI – SJÖUNDA GREIN
Stígur
Helgason
stigur@frettabladid.is
■ HELSTU DÓMSMÁL SÉRSTAKS SAKSÓKNARA
Að loknu gullæði Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur skrifar
að stig af stigi og eru nú orðnir ríf-
lega hundrað talsins. Eva Joly lét
hafa eftir sér að embættið væri
orðið jafnöflugt og franska efna-
hagsbrotalögreglan í París.
Áætlanir þess um útgefnar
ákærur hafa hins vegar ekki geng-
ið eftir. Til stóð að reyna að gefa
út níu ákærur árið 2010 og 81 á
árunum 2011 til 2013. Enn hefur
hins vegar ekki verið ákært nema
í átta málum sem tengja má banka-
hruninu. Við það bætist þó fjöld-
inn allur af ákærum, einkum fyrir
skattalagabrot, í málum sem emb-
ættið fékk í fangið þegar það sam-
einaðist efnahagsbrotadeild Ríkis-
lögreglustjóra.
Fjöldi hrunmálanna sem er til
rannsóknar hefur risið hratt og
er nú yfir eitt hundrað. Bæði eru
jafnan fleiri en einn sakborningur
í hverju máli og margir sakborn-
inganna tengjast fleiri en einu.
Niðurstaðan er sú að sakborning-
arnir eru líka rúmlega hundrað.
Ásakanir um ofstæki og leti
Embættið hefur ekki farið varhluta
af gagnrýni, einkum þeirra sem
sæta rannsóknum og ákærum og
verjendum þeirra. Saksóknara er
legið á hálsi að beita óþarfri hörku,
vinna hægt miðað við mannafla,
hafa ekki næga þekkingu á við-
fangsefnum sínum og láta stjórn-
ast af almenningsálitinu. Stór hluti
gagnrýninnar hefur svo snúið að
helsta þyrninum í augum þessara
sömu manna: Evu Joly.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir að öllum málarekstri sér-
staks saksóknara vegna banka-
hrunsins yrði lokið árið 2014. Það
er ljóst að eigi það að takast þarf
allt að ganga upp – og gott betur.