Fréttablaðið - 20.10.2012, Síða 41
ÚLPUR & YFIRHAFNIR
LAUGARDAGUR 20. OKTÓBER 2012 Kynningarblað Kápuúlpur, dúnúlpur, loðkragar og jakkar Angelu Merkel.
Við höfum haft umboð fyrir Canada Goose-dúnúlp-urnar síðustu tólf ár og þær
hafa reynst frábærlega vel,“ segir
Kristinn Kristjánsson, sölustjóri
hjá Sportís.
„Canada Goose leggur mikla
áherslu á að tryggja gæði vör-
unnar og fyrirtækið hefur haldið
framleiðslunni í Kanada alla tíð
en úlpurnar hafa verið fram-
leiddar frá árinu 1957. Þær eru
framleiddar úr bestu fáanlegu
efnum, þaulsterkar og afar slit-
þolnar. Úlpurnar voru upphaf-
lega hannaðar fyrir erfiðustu að-
stæður á köldustu stöðum heims
og hafa verið notaðar í leiðangra
til dæmis á pólana tvo. Þær henta
því íslenskum aðstæðum mjög
vel.“
Kristinn segir Canada Goose-
dúnúlpurnar einn vinsælasta
útivistarfatnað í heimi og starfs-
stéttir sem þurfi að standa úti við
vinnu sína tímunum saman noti
Canada Goose. „Úlpurnar hafa til
dæmis verið mjög vinsælar meðal
kvikmyndagerðarfólks.“
Vinsældir Canada Goose hafa
líka orðið til þess að eftirlíkingar
eru framleiddar í stórum stíl og
segir Kristinn ástæðu til að vara
fólk við vefverslunum sem selji
svikna vöru. „Ég fæ mörg dæmi
þess inn á borð til mín að fólk
hefur pantað sér Canada Goose-
úlpu í góðri trú gegnum vefversl-
anir en fengið eftirlíkingu í hend-
urnar eða jafnvel alls ekki neitt,
þrátt fyrir að hafa greitt fyrir
vöruna. Slíkum síðum er lokað
á hverjum degi og full ástæða
til að hafa varann á. Ég hvet fólk
frekar til að líta við í verslun okkar
í Mörkinni 6.“
Endursöluaðilar Canada Goose
eru Sportís Mörkinni 6, Cintam-
ani Bankastræti 7, Everest Skeif-
unni og Sportver Akureyri.
Nánari upplýsingar um vöruna
er að finna á www.sportis.is og á
www.canada-goose.com.
Hágæða dúnúlpur frá Canada Goose
Sportís er ein stærsta sportvöruheildsala landsins og fer með umboð nokkurra af bestu vörumerkjum heims. Meðal annars Canada Goose.
Sportís keppist við við að halda úrvalinu sem mestu í verslunum. MYND/ANTONJóhann Konráð Birgisson, verslunarstjóri í Sportís, Mörkinni 6. MYND/ANTON
Hybridge lite
Expedition
Montebello
Kensington
SPORTÍS
MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK TEL:520-1000 SPORTIS.IS